Þetta hófst semsagt á því að ég var boðaður í áheyrnarprufu á bilinu 18-20!, en ég á átti að mæta og skrá mig kl 16:30. Auk þess fékk ég að heyra að þau væru um 30 mín á eftir áætlun. Þetta þýddi það að ég þurfti í raun ekkert að mæta þarna fyrr en um 18:30. Ég fór því bara í Dussmann(stóra plötu og bókabúð), og eyddi drjúgum tíma þar, hentist svo á kaffihús og leit lauslega yfir nóturnar mínar. Svo þegar ég kom til baka fékk ég nokkrar mínútur með píanóleikaranum, sem var bara fínn. Nú svo kom að prufunni 10 mínútur í 20. Ég gekk inn og þau voru 3 sem voru að horfa. Ég byrjaði á að syngja "se di lauri" úr Mitridate eftir Mozart, það hefði hugsanlega getað gengið betur, en það gekk stórslysalaust. Svo eyddu þau smá tíma í að ákveða hvað ég ætti nú að syngja næst, og þau völdu alls ekki það sem ég átti von á, heldur völdu þau "La donna e mobile"!! Sem var bara fínt, því gjörsamlega negldi það eins vel og ég hef nokkrusinni gert. Ég geng því furðusáttur útúr þessari áheyrnarprufu. Ég fæ svo að vita í dag ef ég komst áfram til að syngja á stórasviðinu næsta laugardag. Ég hendi því hérna inn um leið og ég frétti eitthvað, ef ekki..... nú þá komst ég ekki áfram :)
Í gærkvöldi komu hér góðir gestir, og sú litla var nokkuð góð framanaf, en svo upphófst gráturinn mikli. Við erum að fara kaupa snuð handa henni í dag, og vonandi dregur það eitthvað úr óróleika við það. Nú góðu gestirnir komu færandi hendi. Það vildi svo skemmtilega til að konan hans Gunnars, Erla, átti einmitt afmæli sama dag og sú litla fæddist. Hún var því búinn að baka og útbúa dýrindis marens köku með súkkulaðu.....slurp, eins komu þau með brauðrétt. Einar kom með og svo kom Patricía líka. Þetta var skemmtilegt kvöld að vanda. Og ekki skemmdi nú fyrir fáránlegur dugnaður hennar Erlu en hún tók það að sér að vaska upp eftir herlegheitin. Bestu þakkir fyrir það Erla :)
Tengdó lenda svo í kvöld og erum við búinn að taka bílaleigubíl og mun ég sækja þau útá völl. Svo koma mínir foreldrar á föstudaginn, með sömu vél og tengdó fara til baka. Við þurfum að fá fæðingarskírteini hérna í þessari viku og fara með barnið í U2 skoðun í vikunni, þannig að það er nóg að gera næstu daga.
****Fékk póst um að ég hefði ekki komist áfram í Staats, jæja lífið heldur áfram****
Góð æfing í bransanum.
SvaraEyðaþannig er lífið já...
SvaraEyðaþrátt fyrir sjarma og fleira
....
Ykkur gengur svo bara allt í haginn (hefi gjört galdur þar um)... gimsteinninn blómstrar...
og hver getur beðíð um meira...
Hirðkveðill
Kvistholts- PMS og fD