Eurovision vita allir hvernig fór, og ég ætla því ekki að tjá mig neitt um það, þrátt fyrir sterkar skoðanir á því sem þar fór fram. Við vorum að sjálfsögðu með létt partí hér á bæ þar sem við fylgdumst spennt með þessu öllu saman. Ekki mikil spenna fyrir þesssu hérna í Berlín þar sem Hertha Berlín var að vinna einhvern leik og það virðist svona hafa verið aðal málið. Ekki það að það skipti einhverju máli.
Það er í raun frá litlu að segja, nema kannski því að þessi vika hefst með því að svefnþjálfun skal hefjast fyrir ungfrúnna af einhverri alvöru! Ég þarf að fara taka mig verulega á í lærdómi fyrir óperuna miklu í sumar og vonandi gengur að samræma þetta alltsaman svo best sé.
Ég er búinn að henda inn nokkrum myndum í albúmið hennar Júlíu fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Það styttist svo í komu foreldranna og kórsins góða frá Íslandi sem kennir sig enn við Skálholt. Það verður flott ferð, ég vona bara að veðrið verði eins gott að og það lítur út fyrir að verða næstu daga.
Hér var gaman og þessi mynd er til vitnis um það (skál og góða ferð Begga)

Skál minn kæri og enn og aftur takk fyrir mig -
SvaraEyða:)