Ég var svo farinn að kvíða því að fara til Frankfurt í fyrramálið, en það kom upp úr dúrnum við nánari athugun að það er víst til annað Frankfurt í Þýskalandi......kemur á óvart!!! Þetta Frankfurt er semsagt ekki nema um 90mín akstur frá Berlín og er á landamærum Pólands og Þýskalands og er kallað "Frankfurt an der Oder" en aðal Frankfurtið er "Frankfurt am Main", það verður því hægt að rölta yfir til Póllands í frítímanum, sem er ansi mikill, þar sem við leggjum af stað kl 8 í fyrramálið og ég á ekki æfingatíma með hljómsveitinni fyrr en kl 18. Það er allavega mikill léttir að vita til þess að ferðalagið á morgun verður um 2 tímar í staðin fyrir 10 :)
Hér eru vinkonur Soffíu búnar að gera sig klárar til heimferðar, og ná að pakka öllu sem þær versluðu :) Næsta heimsókn er svo næstu helgi, en þá kemur ástkær frænka mín BKBen, vona bara að veðrið verði skaplegt, þar sem hér er svo miklu skemmtilegra að vera í góðu veðri.
Meira var það ekki, ég mun birta meira hér að loknum tónleikum á miðvikudag, og vonandi verður videóið sem ég ætla að láta taka birtingarhæft og þá mun ég að sjálfsögðu setja það hérna inn.
Þangað til næst, Guð blessi Ísland
Það er reynsla mín að tenórar ná vel saman :)
SvaraEyðaEitthvað hefur klikkað í landafræðikennslunni, eða kannski náminu - meira að segja hvarflar hugur minn til landafræðitíma í barnaskóla þar sem það var eitt grundvallaratriða að vita muninn á Frakfurtunum tveim. Ó, já.
btw - þú hefur auðvitað beðið að heilsa Friedrich?
SvaraEyðaLandafræðikennslan hefur aldrei minnst á þetta við mig.
SvaraEyðaÉg veit svo ekki hver Friedrich er... sem þú minnist á.
Ég klikkaði, aldrei þessu vant: Þú áttir að biðja að heils Dietrich Fischer-Diskau, lílega faðir þessa - afar þekktur í musikverden
SvaraEyða