31.5.09

Ekkert kemur fyrir hornið....

Eins og fyrirsögnin ber með sér er ekkert að gerast, það er nákvæmlega þannig og búið að vera þannig síðustu daga.  Rigning kalt og ekkert að gerast!  Ég sest ekki niður og læri, heldur förum við í mollið, komum heim og ég hef farið að horfa á vídeó!  Þetta er svona spírall sem ég ræð ekkert við, því þegar heim er komið er ég allt of þreyttur og annars hugar til að geta sest niður að læra.  Ég fékk þó einn dag í vikunni þar sem ég sat nánast allan daginn að læra og það var afskaplega gott.

Næsta vika verður talsvert atburðameiri en sú sem liðin er.  En þar má nefna að ég fer í tvo söngtíma einn meðleikstíma, StudioClass, Terminator, Læknisheimsókn með Júlíu og svo má ekki gleyma foreldrunum sem koma ásamt Skálholtskór til að halda tvenna tónleika, og mun ég koma fram með þeim á öðrum tónleikunum.   Það er því alveg nóg að gerast.

Í rigningunum sem hafa verið hér undanfarið hefur eitthvað borið á því að það leki eitthvað inni á baðherbergi hjá okkur, eða ölluheldur virðist leka úr pípum sem koma úr loftinu, en ég tel að það leki einhversstaðar inn í allri þessari rigningu og það flæði hér einhversstaðar eftir sprungum í steypunni.  Ég hreinlega nenni ekki að hringja útaf þessu þar sem þetta er ekki það mikið, þó pirrandi sé.  Merkilegt að maður er búinn að vera hérna í eitt og hálft ár og veigrar sér samt við að nota þýskuna.   Það er nú kannski líka afþví að maður talar eiginlega bara íslensku og ensku hérna, þannig er nú bara það.  

Júlían er við sama heygarðshornið, og sefur svosem ágætlega á nóttunni, en pirringur á daginn hefur aukist margfallt, og ef maður er ekki stanslaust að hafa ofanaf fyrir henni, þá er hún vælandi sem er alveg einstaklega lýjandi, og veit ég að það er hluti af því afhverju ég á svona erfitt með að koma mér að því að læra.  Þó gerist það (2x á hennar stuttu ævi) að hún sofnar alveg ein og alveg sjálf án þess að þess sé beinlínis ætlast til af henni.  Það er alltaf magnað og í tilefni síðasta lúrs var þessi mynd hérna tekin.......  
Það er ekki laust við að gaman væri að skreppa heim og taka þátt í veislu sem þar á sér stað í dag, en ég er ekki almáttugur útrásarvíkingur með botnlausa vasa af peningum, því verður  það að bíða eitthvað.

Enn og aftur til hamingju með daginn kæri bróðir.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli