13.3.09

Ástarbannið

Þá er ég kominn með nóturnar í hendurnar og það er ekki laust við að manni hafi eilítið brugðið, þar sem þetta er ekkert smáræði, en ég vissi það nú reyndar fyrir :)  Þá er maður allavega kominn á fullt að reyna að læra  þetta.   Við fáum aðeins 10 daga í æfingar og svo er sýnt, þetta er semsagt concert uppfærsla, ss ekki leikið á sviði, sem eru vissulega vonbrigði, en það er sama þetta er mikil kynning og eins gott að gera þetta vel.

Á eftir erum við svo að fara í "Babytreffen" það eru semsagt þeir sem voru saman á geburtsvorbereitungskursinum að hittast 3 mánuðum eftir að síðasta barn fæddist.  Það verður vissulega áhugavert, en ég get ekki sagt að ég hlakki mikið til, þar sem mér leiðist nú yfirleitt eitthvað svona.

3 ummæli:

  1. Ástarbann, hljómar nú ekki vel í mín eyru.
    En þú getur örugglega komist í gegnum það!

    Ættarfylgjan

    SvaraEyða
  2. Babytreffen er örugglega alveg við þitt hæfi. :)

    SvaraEyða
  3. Þvílík fegurðardís hún Júlía litla, frábærar myndir af henni. Litli trukkurinn :)

    SvaraEyða