Í dag voru sendar um 10 blaðsíður í faxi til leigumiðlunarinnar, og vonandi dugar það til að klára þetta mál. Síðan þarf að fara með undirritað blað frá leigumiðluninni á sérstaka hverfisskrifstofu í Tempelhof og fá þau til að stimpla og staðfesta. Það þurfum við síðan að nota til að geta fengið bankareikning hérna, til þess að geta fengið íbúðina.....?!?!? Þetta er allt óttalega skrýtið og furðulega flókið. En ég held að þetta ætti að geta gengið.
Janet var svo dásamleg að taka við okkur og pappírunum okkar í dag, og einnig var hún með faxtæki og tölvu þannig að við gátum klárað þetta að mestu í dag. Vona svo að þetta skýrist allt á morgun og við getum bara farið að andskotast til að flytja inn, við eigum bara eftir eina viku hérna í fallegu íbúðinni á Scönhauser, og svo förum við bara vonandi beint inn í nýja íbúð á föstudag, eða í síðasta á mánudag.
Ég var svo í tíma í dag, sem gekk ekkert allt of vel, en svona er þetta bara, þetta gengur upp og niður, þó las ég að þetta væri væri versti dagur ársins samkvæmt einhverhjum útreikningum, og ég ákvað að skrifa þetta all á það :)
Það verður nú samt voða fínt að vera loksins komin með allt dótið sitt og búið til svona sitt "heim" :)
SvaraEyðaFrábært að þetta sé að verða komið á hreint. Ég endurtek bara það sem ég sagði á blogginu hennar Sobbu að ég hlakka til að koma og fá að lúlla í tölvu/gestaherberginu með fínu veröndinni.
SvaraEyðaHaldið áfram að vera sæt og fín :-)
Kv, BKBen