21.1.08

Kurfurstenstrasse 75

Tekin hefur verið óformleg ákvörðun um að fara þangað ef hægt er. Hérna má skoða myndir úr íbúðinni, þetta eru nótabene myndir sem eru teknar af myndavélalömuðum þjóðverja, þannig að íbúðin sést kannski í öllu sínu veldi, t.d sést ekki risastóra og flotta veröndin sem er einmitt mjög flottur sölupunktur. Ég held bara hér sé fólk alveg snar....

Allavega, hérna eru myndirnar:
http://picasaweb.google.com/egilltenor/Kurfurstenstrasse75

Annars er það að frétta af okkur héðan af Schönhauser, að við héldum hérna lítið matarboð á föstudagskvöldið, þar sem Janet Williams, kennarinn minn og Davíð Ragnarsson bassi komu, og við skemmtum okkur hið besta saman. Nú á laugardeginum þá áttum við að fara skoða íbúð en auminginn sem var að sýna mætti ekki, þannig að það varð lítið úr því. Við skelltum okkur þvínæst í IKEA sem er nú bara ekki langt í burtu, og skoðuðum þar úrvalið. Það versta er að staða evrunar er það leiðinleg um þessar mundir að hlutirnir kosta orðið það sama og á Íslandi. Þ.e sófi á íslandi kostar 39.900.- og hann kostar hérna 399 Evrur. Maður er því ekki að spara neitt rosalega hérna nema í mat og húsnæði, sem eru vissulega stórir kostnaðarliðir og það er bara gott mál. Maður á ekki alltaf að vera kaupa kaupa kaupa (sagt með rödd Drafnar Þorvaldz).

Nú á Sunnudag fór ég í undirleikstíma hjá mjög fínum píanóleikara sem heitir Scott Curry, hann er búinn að búa hérna og starfa í yfir 20 ár, og búinn að spila með ansi mörgum, þar á meðal Gunnar Guðbjörnssyni. Hann sagði mér að ég ætti alls ekki eftir að lenda í vandræðum með að fá eitthvað að gera við söng með þessa rödd og fannst ég ansi raddlega fjölhæfur að geta sungið Wagner og Mozart í sama tímanum án þess að það virtist erfitt....... :) Ég var auðvitað í skýjunum með þessar yfirlýsingar, en það eru samt sem áður MÖRG atriði sem þarf að vinna með þangað til ég treysti mér í einhvern svona söngpakka. Ég ætla bara ekki að fara óundirbúinn í þennan bransa, sama þó það þýði kannski styttri líftími sökum aldurs. Vil ekki vera þekktur sem tenórinn sem söng yfir sig og kláraði sig á allt of þungum hlutverkum. Ég hlakka því mikið til að vinna áfram með honum á næstu mánuðum. Við erum búnir að ákveða 2 af 3 aríum sem ég ætla að fara með í audition 8.febrúar nk. Nú er bara að finna þá síðustu og þá er ég bara reddí.

Ding dong.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli