Þá er maður kominn í tímabundna húsnæðið sitt í Berlín. Dagurinn hófst í morgun kl 8 þegar maður þurfti að rífa sig upp :), og fara að klára að pakka í töskur það sem átti að taka með sér. Við lögðum af stað og komum fyrst við í ápótekinu í laugarásnum, til að sækja eintak af aðventutónleikum skálholtskórs, ég bölvaði því að að vera ekki með CD spilara í bílnum!! en.... ég var hvort sem er að fara að selja hann :) Selfoss tók við og bílnum hent á bílasölu, og svo var brunað í bæinn þar sem minn ástækri bróðir hafði útbúið dýrindis máltíð handa okkur. Þar var svo sagt bless og haldið á flugvöllinn.
Á vellinum biðu ekki góðar fréttir, þar sem helvíts express rukkaði okkur um 30.þús krónur í yfirvigt, og ekkert sem hægt var að gera til að breyta því!! Það sorglega við þetta er að vélin var hálftóm, og því hefði þetta ekki átt að vera vandamál. Icelandair, mega eiga það að þau hafa ALDREI, og ég hef flogið nokkuð oft, rukkað mig um yfirvigt, sama hvað. Þó hef ég aldrei farið 15 kg yfir, en ég hef farið 10 kg yfir og samt sloppið. Ég mun forðast Express héðan í frá.
Erum í þessari líka rosalega flottu íbúð hérna á Alte-Schönhausersrasse 42, þvílíkt nýtískuleg og flott!!! Maður nennir eiginleg ekkert að vera leita að nýrri íbúð núna :) En við erum bara hérna fram á næsta sunnudag, og svo þurfurm við að fara annað, hótel, nýja íbúð ,eða bara það sem tekur við..........mjög spennandi!
Fórum í sushi á Aiko Sushi í kvöld og það var top notch, þó ekkert komi til með að toppa Asia Kan í New York i bráð.
Meira síðar og jafnvel myndir.
Viel spass
Sæl kjútís.
SvaraEyðaBara kvitta fyrir mig. Hjúkkitt að allt gengur vel so far.. fyrir utan kúkalabbana hjá Express.. buhu á þá.
Bið að heilsa í bili, gangi ykkur vel.
Begga :-)
Heyrðu, express lifa víst á þessum óhroða. Þú átt í raun ekki að taka meira en stuttbuxur og stuttermabol í farangur. En handfarangur má nefnilega vera fjandanum fyrirferðarmeiri... merkilegur andskoti.
SvaraEyða- Hallur
Jæja það er flott að þetta hafi nú gengið svona nokkuð stórslysalaust fyrir sig :)
SvaraEyða