Þá er mjög erfiðum dögum lokið. Búið að koma meirihluta búslóðar í geymslu hjá "parental units", og restin farin í ruslið (4 ferðir í SORPU á stórum bíl) eða á bretti til Berlínar.
Það er blanda af tilhlökkun og sorg fólgin í því að yfirgefa svona landið sem maður hefur búið á í rúm 30 ár. Fullt af nýjum hlutum að fara taka við og mun fleiri tækifæri í boði en áður. Maður verður bara að taka sig saman í andlitinu og læra að njóta þess sem koma vill :)
Hér verður virkt blogg um tap og sigra í Berlín, ásamt öllu því sem fylgir því að flytja til annars lands.
Meira á mánudaginn.....
Þangaðtil þá,
Egill
Hlakka til að fá ykkur í bæinn!
SvaraEyðaOg ekki gleyma, laugardag eða sunnudag kl 20, í Charlottenstr. 55!