11.1.08

Jákvæðir straumar

Er svosem ekki mikið frá því að jákvæðir straumar séu að virka, þar sem við erum búin að bóka okkur í 5-6 skoðanir í næstu viku. Núna ætla ég að taka frí frá áhyggjum yfir helgina og njóta þess að vera hérna.......þó hér sé pínulítið kalt, er allavega bjart yfir daginn. Það byrjar að birta upp úr kl 6, en það kvöldar upp milli 16 og 17. Þannig að maður þarf allavega ekki að kljást við eitthvað helvítis skammdegisþunglyndi :)

Alltaf erum við að finna nýjar og nýjar íbúðir til að skoða, og fundum DRAUMA íbúðina í dag, en hún er andskotan ekki laus fyrr en 15.febrúar, og það liggur við að maður vilji bíða eftir henni. Þó held ég að barist verði um hana, þar sem hún er að besta stað í bænum og í rosalega´fallegu nýtískulegu húsi og ákkúrat nógu stór/lítil.

Meira síðar

Engin ummæli:

Skrifa ummæli