Farið var að skoða íbúðir í Mariendorf í dag, það verður að segjast eins og er að það er komin skoðunarþreyta í mann, en m.v ótrúlega flottar íbúðir sem við sáum í dag, þá er ekki öll von úti enn. Í dag sáum við eina sem er nokkuð góður kostur fyrir okkur, hún er vissulega aðeins dýrari en við vildum en viðráðanleg.......þ.e ef evran fer ekki að hækka mikið meira.
En við eigum nokkrar flottar eftir og maður skal ekki spyrja fyrr en að leikslokum. Gallin við það sem við skoðuðum í dag, er að ekki er sól á svölunum nema til kl 14, og einhverjar kæliviftur eru í gangi líklega allan sólarhringinn, fyrir neðan, þar sem þar er svona hagkaupsbúð, sem er mjög hentugt. En ég held að almennt séu íbúðir hérna vel hljóðeinangraðar, þannig að það ætti ekki að vera vandamál. Stigagangurinn var glæsilegur með fallegri stórri lyftu, og stutt í kennarann minn og einnig stutt í U6 lestina sem er ótrúlega gott. Hin íbúðin fannst mér ekko koma til greina, þó hún væri milljónsinnum minni kreppuíbúð en það sem við erum búin að vera skoða, og bara alveg boðleg fólki. Það eru svo tvær á morgun, og ég veit ekki hvað.
Við fórum í dag rosalega fínan steikarstað í hádeginu, sem er eiginlega í "hverfinu okkar", þar sem nánast 99% líkur eru á að við flytjumst til Tempelhof, maturinn var bara æðislegur og skítódýr, það eru reyndar einhver svaka tilboð þarna núna. Þannig að við borguðum sem svarar 28EUR fyrir tvær 200gr piparsteikur, með tveimur sósutegundum, frönskum og grilluðum tómar, og svo auðvitað einn stór og kaldur + stór kók. Það þótti okkur ekki mikið fyrir svona góðan mat.
Jæja við erum ekki lengi að hefja matarboð, og á morgun er létt matarboð hérna á Alte Schönhauser, eins og ég sagði verða birtar einhverjar myndir frá því. Annarst er bara lítið að gerast :)
Þið verðið allavega ekki svöng þegar þið komið heim frá Þýskalandi, that's for sure! :)
SvaraEyða