Þá er það loksins komið á hreint og maður getur andað aðeins léttar. EN.....það er líklegt að við fáum hana ekki afhenta fyrr en 1.febrúar. Og það þýðir bara hótelgisting í eina viku eða svo. Sem ætti svosem ekki að vera mikið mál, en ég bara nenni því ekki. Ég get svosem ekki kvartað, er búinn að fá allt upp í hendurnar hérna og það er ég verulega þakklátur fyrir.
Við förum svo í fyrramálið að undirrita leigusamning á þýsku, vona bara að það sé ekkert smátt letur :) Ég mun reyna að pressa sem mest ég má á það að fá afhent fyrr, þar sem íbúðin er tóm, og ég get ekki séð að þeir tapi eitthvað á því að við komumst inn 3-4 dögum fyrr. En við sjáum til.
Við fórum aðra ferð í IKEA í gær, og fengum okkur að borða þar, alveg skítsæmilegt fyrir þennan pening. Þar fundum við rúm, fataskáp, sjónvarpsborð og sófa sem við getum hugsað okkur ásamt fleira dóti, ég leit bara svo á að þeim mun ódýrari húsgögn sem við kaupum, þeim mun dýrara sjónvarp get ég keypt mér :) ..........en það kemur allt í ljós.
Allavega, þetta er staðan í dag, kl 13:25 að þýskum tíma.
vá geggjað!
SvaraEyðaskil ekki alveg hverju það skiptir hvort þið komist inn 3-4 dögum fyrr... kannski bara níska, að tíma ekki að leyfa ykkur að vera þarna í nokkra daga án þess að greiða fyrir það ;)
til lukku!
SvaraEyðaLille ven
Jæja þá er íbúðarruglinu loksins lokið allavega. Ólíkt þýskurum að vera með hártoganir varðandi afhendinguna. Skemmtið ykkur bara vel við að flytja þetta "litla" magn af dóti upp stigana. Verður ss ekkert mál.
SvaraEyðaKveðja from down unda
Þú ættir að kíkja á þennan tenór:
SvaraEyðahttp://www.youtube.com/watch?v=XKxfYS2oilY
ég held að þú gætir lært ýmislegt af honum:)
Til lukku bæði tvö. Frábært.
SvaraEyðaEr annars Soffía sammála þessu með sjónvarpið :D. Bara spyr
hulda: hún er sammála, annars þarf hún að fara segja fólki að hún hafi gengið á hurð.... :)
SvaraEyða