Þá er einum viðburðarríkasta deginum til þessa í þessari Berlínarför lokið. Við hófum daginn á að vakna mjög snemma, og ganga frá, svo þurftum við að hringja í taxa til að keyra okkur til Davíðs á Wiesenstrasse 30 í Wedding, við þurftum stóran bíl, þar sem við erum með um 7 töskur, þar af 5 mjög stórar. Þetta er ekki mjög auðvelt líf. En það gekk allt vel, og við vorum komin þangað von bráðar, svo var bara að bera allt upp 4 stiga, það var sjúklega gaman. Nú að því loknu fórum við á veitingahúsið Via Nova við Friedrichstrasse lestarstöðina, þar er frítt internet og mjög góður og ódýr matur. Þar vorum við í rúma 2 tíma að leita að íbúðum, en lítið fannst, við erum í raun nokkurnvegin búin að skoða allt sem við höfum mögulega efni á. Við fengum svo frábæra aðstoð í dag frá þýskri stelpu sem er einnig að læra hjá sama kennara og ég, hún fór með okkur að skoða eina íbúð í dag, þær áttu að vera tvær, en önnur klikkaðu vegna þess að fávitinn sem átti að sýna okkur mætti ekki, og þetta er í annað skipti sem þetta gerist!!! Ég á bara ekki til orð yfir dónaskapnum í þessum fasteignaleigugaurum. Nú en hin íbúðin var svosem allt í lagi, eldúsiinu má kannski lýsa best með því að segja ekkert, en restin var svosem þolanleg. Þó var stigagangurinn eins og versta nauðgunarmyndmál, þar sem hann var bara leiðinlegur og ljótur og ég fékk strax vonda tilfinningu fyrir þeirri íbúð.
Nú við hringdum út af annari íbúð á Schönbergstrasse 1, sem er ótrúlega falleg og ódýr, en reyndar bara 2 herb, og hrikalega vel staðsett. Ég er að vona að við náum henni, þá erum við góð og ánægð. Skoðum hana á laugardag, og eftirvæntingin er mikil, ég ætla þó að hringja aftur á föstudag og doubletékka, nenni ekki að fara fýluferð í það skiptið.
Nú svo eru fleiri gleðifréttir, en það ég hringdi í samskip í Bremen, þar sem búslóðin okkar er að koma til lands, og þeir geyma hana fyrir mig í heila viku, og svo þarf ég bara að borga um 20 evrur á dag eftir það, sem er bara mjög vel sloppið. Eins bauð kennarinn minn okkur að gista hjá sér alveg fram í febrúar, þar sem hún er með lausa íbúð og internet. Á þeim tímapunkti ætlaði ég varla að trúa mínum eigin eyrum. En þetta er sko ekki búið.......ó nei........haldiði ekki bara að mér hafi boðist stórkostlega íbúðin hérna á Schönhauserstrasse aftur!!!!!!!! hvaða andskotans rugl er þetta eiginlega, ég er bara búinn að vera í hálfgerðir vímu núna í kvöld og er svo sannarlega búinn að taka gleði mína aftur..........í bili :)
Fyrsti söngtíminn var svo í dag og það var ótrúlega gaman, haldið var áfram að vinna með lága barkastöðu, og þrönga munnstöðu til að passa að þetta verði ekki alltsaman sundurlaust. Nenni ekki að skrifa meira í bili, þar sem þú nennir eflaust ekki að lesa meira :)
There´s no such thing as global warming, chuck norris was cold and so he pulled the sun a little closer
SvaraEyða