Hér er verið að reyna að koma Emilíu í einhvern svefn rythma, og erum við Soffía búin að eiga nokkra góða daga saman meðan allir aðrir sofa í smá stund. Höfum náð einum til tveimur þáttum á kvöldi, og það má bara teljast mjög gott!
Júlía er komin með niðurgang, þar sem slíkt er að ganga í leikskólanum, og það er frekar pirrandi. Henni líður samt ótrúlega vel og engin vanlíðan virðist fylgja því önnur en hin augljósa. Hún er orðin frekar frek/ákveðin og það er yfirleitt eitthvað vesen að koma henni í svefn, og að hafa ofan af fyrir henni á daginn. kannski er ég bara svona lélegt foreldri en mér finnst þetta mikið :)
Eins og flestir vita erum við á leið til Íslands í Febrúar, og ég hef í hyggju að halda þar einsöngstónleika í Aratungu og jafnvel í Reykjavík líka. Þetta er þó eins og annað ekki meitlað í stein. En ég vona að af þessu geti orðið. Efnisskráin verður hin glæsilegasta og áheyrilegasta og líklegt að þar muni allir finna eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin mun samanstanda aðallega af Ítölskum sönglögum, en að sjálfsögðu mun ég henda inn smá þýsku og íslensku líka, bara svona til að gæta jafnræðis. Þannig að það er von mín að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Mér dettur alltaf svo margt í hug sem ég ætti að skrifa um í þessu bloggi mínu, svo sem eins og einhverjar félgaslegar ádeilur eða gagnrýni á hitt eða þetta sem mér mislíkar. Eins og ég gerði einu sinni í gömlu bloggi, nær allt aftur til ársins 2004, og líklega væri hægt að núa nösum mínum uppúr einhverju sem ég segi þarna, en þetta er hluti af því sem ég var á þessum tíma og þó að ég sé ekki alltaf sammála öllu sem ég sagði þá, þá er þetta samt sá sem ég var og gerði mig að því sem ég er, þannig að því ber að taka sem slíku :)
Jæja, þangað til mér dettur eitthvað skynsamlegra í hug verður þetta bara að duga :)
Komnar eru inn myndir fyrir Desember mánuð