Janúar verður erfiður mánuður því ég þarf að vinna mjög oft með þessum mjög svo ómanneskjulega og leiðinlega stjórnanda. En svona er það bara, ég get það bara vegna þess að ég veit að þetta er að verða búið. Það sem ég hef þurfta að þola hérna vita þeir sem reglulega lesa að er ekki nokkrum manni bjóðandi. Og að ekki skuli vera hægt að ræða málin af skynsemi og virðingu er mér algerlega fyrirmunað að skilja.
Hvað tekur svo við er flóknara mál og vægast sagt mjög erfitt. Því ég vil ekki fara heim alveg strax, því þau réttindi sem við eigum hérna eru svo miklu meiri og sterkari en það sem manni getur dreymt um á Íslandi. Hér er ennþá fjöldin allur af óperuhúsum sem sem eru að leit að fólki. Vandamálið er bara það að eftir reynsluna hérna hef ég ekki mikin áhuga á þessu starfi í því formi sem það er í boði í húsunum, það hentar mér einfaldlega ekki, þar sem ég er ekki einstæður og barnlaus. Ég er því að hugsa um það sem mikilvægara er. Ef ég á að syngja eitthvað með því, þá geri ég það og með mikilli ánægju :)
Þar sem ekkert er fast í hendi eins og er, þá er nærtækast að flytja til Íslands með allt draslið, og reyna svo að koma sér út í staðin í einhver verkefni. Hafi maður áhuga á því! Kannski að fara í skóla, og kannski að fara bara að vinna við eitthvað allt annað! Þetta eru allt möguleikar sem nú þarf að fara að skoða og það sem fyrst.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli