Í dag var merkilegur dagur, þar sem ég fór og afhenti uppsagnarbréf og tilkynningu um að ég hyggst nýta þann rétt sem ég hef til að fara í foreldraorlof frá og með 7.Febrúar nk. Ég gaf mér viku til að "sofa" á þessu, og á þessari viku breyttist ekki neitt, þannig að það hlítur að vera rétt. Nú er bara spurning hvað við gerum? Segjum við upp húsnæðinu hérna frá og með 1.Apríl? Og leikskóla þar með líka? Við förum til Íslands í Febrúar, en svo þarf ég að koma aftur, líklegst einn að pakka og flytja. Þannig að það er útlit fyrir skemmtilegan Mars mánuð hér á bæ. Ég hef vissulega smá ótta í brjósti við að hitta stjóranna eftir að ég afhenti bréfin. En ritari framkvæmdastjórans tók við þeim fyrir mig og hefur líkast til komið þeim til skila í dag. Sem var fínt, ég nenni ekki og get ekki farið að verja þessa ákvörðun mína enn einusinni. En eins og áður hefur komið fram, er ég að syngja 6 sýningar í Janúar með hrokafulla stjórnandanum, og það er ekki eitthvað sem ég hlakka mikið til verð ég a segja. En það er kannski við hæfi að ljúka á því stykki, því það er einnig fyrsta stykkið sem ég söng hérna í Görlitz, "Der Besuch der Alten Dame"
Hér eru svo hafnar æfingar fyrir jólatónleika sem hefjast 3.Des. Við erum 3 tenórarnir sem skiptum þessu með okkur, en annar þeirra er veikur og hinn ekki væntanlegur fyrr en 4.Des, þannig að hver haldið þið að þurfi að mæta á allar æfingar kvölds og morgna? Tadaaaaaaaaa!!! Ég! Þetta er vissulega þreytandi, en svona er það nú bara í þessum bransa, eins og komið hefur fram áður. Ég hlakka til að kveðja kollega mína hérna með viðeigandi hætti í Desember/Janúar, það er ekki komin nein dagsetning á það ennþá, en það verður vonandi hægt að pússla því saman.
Komnar eru inn nýjar myndir í albúm þeirra systra hérna
Svo ein í lokin af þeirri yngstu, en hún er farin að hafa mjög gaman af því að fá að standa, og það gleður hana alltaf mjög mikið að finna fyrir þessu valdi sem hún hefur. Hún er einnig farin að sofa mun betur og er mikill munur að sjá og upplifa. Kannski eigum við bara eftir að eiga gleðileg jól og áramót hér í Görlitz? :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli