5.12.11

Þriggja ára í dag!

Hún stórkostlega litla Júlía okkar er 3ggja ára í dag og hefur notið þess í botn.  Nammi og gjafir flæða útúm allt og gleðin skín úr andlitinu hennar.  Hún fór í leikskólann í morgun með köku handa krökkunum og fékk kórónu þegar hún mætti á svæðið, og sat við enda háborðsins þegar matast var, það er líklegast einhver smá upplifun fyrir svona lítið skott.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli