| Guðný og Emilía "The Hut" |
Hér hefur heldur betur kólnað síðustu vikuna. Í morgun var hitinn í -2°C, og loftið svo rakt að morgun mistrið var þykkt og fallegt. Ég skondraðist á hljómsveitaræfingu í morgun til að syngja einu setninguna mína sem ég er með í fyrsta þætti, og svo heim aftur. Þvímiður varð það til þess að ég gat ekki fylgt systu á lestarstöðina. En hún reddar þessu nú held ég :)
Núna fara að taka við lokaæfingar á "Schwanda der Dudelsackpfeifer" sem þýðir að ég verð meira og minna ekki heima næstu tvær vikurnar!! Sem er svosem ekki nýtt, en er að verða ansi þreytandi :( Ég tilheyri þar Olsen-banden, en það er skrifað inn í þessa uppfærslu, líklega til að vera eitthvað fyndið, en hvað veit ég svosem. Þetta er allavega ekki mikið sem ég þarf að syngja, en að vanda þarf ég að vera á sviðinu mjög mikið.
Ég er eins búinn að vera skoða tónleika sem mér var sagt að ég ætti að syngja í Mars. Ég hef nýverið komist að því að mér ber ekki að syngja þessa tónleika þar sem þeir eru ekki hluti af eðlilegu prógrammi óperunnar. Ég fæ sérstaklega borgað fyrir að syngja þetta. Þetta er hluti af Sinfóníutónleikaröð hljómsveitarinnar sem starfar hérna í húsinu. Tvær af kollegum mínum hérna syngja líka svona tónleika en munirinn er sá að þær eru að syngja heila ljóðaflokka, og svona eitthvað sem gæti nýst þeim í framtíðinni. Ég er hinsvegar bara að syngja "lalla la la la la la la la la la" í svona 2 mínútur og svo er það bara búið. Fyrir þetta fæ ég vissulega borgað, en ef horft er til æfinga og fjarveru frá heimili (6 tímar) þessu tengt, þá er þetta ekki þess virði. Auk þess sem Mars er einn stærsti mánuðurinn hvað sýningar varðar. Eða 9 sýningar, sem er nánast 2-3 hverja helgi, auk þess sem við verðum að detta í lokaæfingar á nýju stykki sem var sérstaklega skrifað fyrir okkur. Þannig að það er hætt við að sá mánuður verði mjög erfiður. Þessvegna ætla ég að segja nei við þessum tónleikum. Ég þarf að skrifa undir sérstakan samning vegna þessa, og hlít því að geta neitað. En hvort sem það verður teki gillt eða ekki, þá mun ég ekki syngja þessa tónleika. Nú svo fékk ég í morgun aðdáendapóst frá konu sem kemur reglulega á sýningar í óperuna. Mér þótti það auðvitað afar gaman, en þar sem ég syng nánast ekki neitt, skil ég ekki alveg hvaðan aðdáunin kemur :) En svona er það bara.
Hér gengur allt sinn vana gang, Emilía er þó að byrja að skána eitthvað, en það borgar sig ekkert að vera tala um það hér, þar sem reynnslan hefur kennt mér að slíkt sé ekki til góðs. Júlía er að mestu búin að ná sér af hóstanum og veikindunum sem hafa verið að hrjá hana undanfarna daga, þó ákváðum við að hún færi ekki í leikskólann í morgun vegna þess að hún svaf lítið í nótt vega þess að henni var illt í höfðinu. Hvort það sé svo sannleikurinn er ekki ljóst, en hún er allavega eldhress núna, og það er búið að taka mig um klukkutíma að skrifa þetta litla blogg.
Svo eru hér að vanda nokkrar myndir í lokin.
![]() |
| Á Starbucks í Dresden |
![]() |
| Með Frúarkirkjuna og jólamarkaðinn í baksýn |



Gaman að koma í heimsókn til ykkar og vonandi að ég hafi allavega getað hjálpað eitthvað til!
SvaraEyðaEr ekki bara gaman að hafa fengið fan-mail? gott þegar fólk lætur vita þegar það er ánægt með eitthvað, greinilega manneskja með viti ;)
Emilía lofaði mér annars að vera stillt..