Við lentum á Íslandi í gærnótt um kl 1:37 að staðartíma. Flugið hafði verið frekar þreytandi svona eins og maður myndi búast við með smábarn með í för, en allt hafðist það nú.
Ferðin má segja að hafi hafist á Mánudeginum 6.Feb, en þá var opinberlega öllum skuldbindingum lokið í Görlitz og við komin a fullt að pakka í kassa og keyra út þau húsgögn sem við vorum búin að selja. Það gekk allt vel fyrir sig, og við tók svo hin mjög svo erfiði 7.Feb, en þann dag höfðum við pantað flutningabílinn heim að dyrum að sækja búslóðina, sem ég bjóst nú ekki við að yrði svo mikið en endaði í 6 brettum!! Dagurinn hófst á því að ég fór að skila blóðþrýstingsmæli sem ég var búinn að vera með í sólarhring, svona til að meta hvort lyfin væru að hafa tilætluð áhrif. Svo var brunað heim og byrjað að pakka á bretti, sem hefði aldrei verið mögulegt ef ekki hefði notið við aðstoðar nokkurra góðra aðila sem komu að hjálpa okkur að bera og passa stelpurnar. Án þeirra hefði þetta ekki gengið. Ég kláraði heilsuna í þessu, og er búinn að vera frekar raddlaus og veikur síðustu daga, ég er þó að vona að ég verði buinn að ná fullri heilsu á Laugardaginn eftir viku. Það er búið að vera mjög kalt í þýskalandi og við vorum nánast úti allan tíman að raða á bretti, plasta og bera, á endanum var ekkert eftir. Við eyddum svo þessum degi ásamt um 4 tímum af þeim næsta í að þrífa og henda rusli. Mikið var eftir sem erfitt var að henda, eða hreinlega átta sig á því hvert átti að setja. Við nutum góðrar hjálpar frá strák sem vinnur við húsið, og hann og faðir hans sögðu okkur að koma bara með allt sem við gætum ekki hent til þeirra og þeir myndu bara losa okkur við það!! Alveg ótrúleg góðmennska og gott hjartalag sem þjóðverjar hafa þegar maður kynnist þeim. Ég var skammaður fyrir að biðja ekki um hjálp, þegar þeir fréttu að við hefðum staðið í þessu ein, fólk hélt að við hefðum bara ráðið flutningafyrirtæki til að pakka og svona, eins og margir gera. Isländisches Stolz var það kallað.
Daginn eftir tók svo við ferð til Berlínar með troðfullan bíl í 15 stiga frosti. Þar var brunað í sendiráðið til að fá vegabréf fyrir litlu dömuna og detta í spjall hjá Gunnari Snorra, sendiherra. Þvínæst í verslunarmiðstöðina "okkar" í Tempelhof til að gera síðustu innkaupin í Þýskalandi i bili. Svo var farið á Tegel flugvöll til að tékka sig inn til Kaupmannahafnar. Á þessum tíma féllust mér hendur yfir magni farangurs sem við vorum með, en við náðum einhvernvegin að koma þessu um borð án þess að borga yfirvigt. Vopnaleitarfólkið var með því skemmtilegra sem ég hef lent í, ótrúlega almennileg og skilningsrík yfir ferðalögum með börn. Ein konan þarna tók meira að segja Emilíu á meðan við vorum að hlaða öllu á bandið. Okkur tókst svo að gleyma tveimur töskum hjá þeim og þau bara komu og leituðu að okkur í biðsalnum til að láta okkur vita, hefði þetta gerst annarsstaðar? Það veit ég ekki, en þetta létti vissulega aðeins á manni.
Í Kaupmannahöfn sótti okkur Þorvaldur, og keyrði til Ásu og Sörens þar sem við gistum á okkar stutta stop-over í höfninni. Við sváfum örstutt og hentumst svo næsta morgun til Málmeyjar, þar sem við heimsóttum Fjólu og Co á meðan Þorvaldur fékk afhentan styrk upp á 6.5 milljónir. Daginn eftir var svo farið aðeins niður í bæ og borðað og verslað. Svo var heljarinnar matarveisla hjá Ásu og Sörra áður en við héldum út á völl til að fljúga heim. Í check-in var okkur tjáð að sumar töskurnar væru of þungar, og því þurftum við að standa í því að færa á milli, sem var svosem í lagi, því við vorum ein að tékka inn, þrátt fyrir að vélin væri full. Þannig að það reddaðist allt. Önnur flugfélög eins og til Airberlin, tékkuðu bara allt inn þó sumar töskur væru 2-3 kg of þungar, því heildar þyngdin var langt undir. En ekki Iceland Express, þvímiður. Skil ekki svona umburðarleysi.
Jæja, flugið tók um 3 tíma, og vorum við lent Keflavík um kl 1:30 eftir miðnætti, og komin heim í holtið um 4. Svo erum við bara búin að vera slaka á núna og ég að reyna að ná heilsu til að syngja eftir tæpa viku! :)
12.2.12
6.2.12
Að kveðja gott fólk
Í gær var hér haldin heljarinar veisla íslenskum stíl. Hangikjöt, rúgbrauð, harðfiskur og hákarl, auk brennivínsins góða. Rúgbrauð og hangikjöt rauk út en minna fór fyrir því að harðfiskurinn færi sem er afar skrítið, því fólki fannst hann mjög góður. Það kom mér merkilega á óvart að mjög margir fengu sé hákarl, og oftar en einusinni, og var það mál manna að þetta smakkaðast nú bara alveg eins og einhverjir franskir ostar :) Og íslenska brennivínið þótti gott með, þó vissulega væri það ekki allra eins og venjan er. Ég lét mig því hafa það að raunverulega smakka hákarl í fyrsta skipti, ekki get ég sagt að það hafi verið eitthvað hræðilegt, en ég mun ekki leggja mér þetta til munns aftur nema bara svona í félagslegum tilgangi. Það kemur mér líka alltaf á óvart hvað íslenska brennivínið getur smakkast vel svona nýkomið úr frysti.
Hér mættu örugglega um 20 manns og var mikið gaman, veislan byrjaði kl 16:00 og var búin um kl 20:00 sem er bara nokkuð gott, Júlía komst í háttinn á svona nokkurvegin réttum tíma og við líka.
Hér fékk ég að skilnaði alveg stórkostlegar gjafir, og ég er öllum vinum mínum afar þakklátur fyrir að hugsa svona hlítt til mín. Hér voru margir mjög sorgmæddir yfir því að ég væri að fara, og auðvitað er ég það líka að mörgu leiti. Mér leið að vissu leiti eins og ég væri að fara eftir 40 ára farsælt starf þegar þau gáfu mér sésmíðað úr frá Görlitz í skilnaðargjöf, þetta er eitt af aðeins 250 úrum sem framleidd eru, þannig að þarna er um flottan safngrip að ræða. Ég fékk svo forláta músamottu með áprentaðri mynd af okkur flestum, þessi mynd var tekin í hléi á næst síðustu sýningunni minni hérna. Og meira hefði ég ekki getað óskað mér að skilnaði allt þetta frábæra fólk.
Nú tekur við mikið stress og pökkun. Flest húsgögnin verða keyrð út í dag og verður því afar tómlegt hér um að litast í kvöld og á morgun. Ég hendi inn myndum af veislunni við tækifæri, þar sem ekki finnst usb snúra ákkúrat þessa stundina :)
Hér mættu örugglega um 20 manns og var mikið gaman, veislan byrjaði kl 16:00 og var búin um kl 20:00 sem er bara nokkuð gott, Júlía komst í háttinn á svona nokkurvegin réttum tíma og við líka. Hér fékk ég að skilnaði alveg stórkostlegar gjafir, og ég er öllum vinum mínum afar þakklátur fyrir að hugsa svona hlítt til mín. Hér voru margir mjög sorgmæddir yfir því að ég væri að fara, og auðvitað er ég það líka að mörgu leiti. Mér leið að vissu leiti eins og ég væri að fara eftir 40 ára farsælt starf þegar þau gáfu mér sésmíðað úr frá Görlitz í skilnaðargjöf, þetta er eitt af aðeins 250 úrum sem framleidd eru, þannig að þarna er um flottan safngrip að ræða. Ég fékk svo forláta músamottu með áprentaðri mynd af okkur flestum, þessi mynd var tekin í hléi á næst síðustu sýningunni minni hérna. Og meira hefði ég ekki getað óskað mér að skilnaði allt þetta frábæra fólk.
Nú tekur við mikið stress og pökkun. Flest húsgögnin verða keyrð út í dag og verður því afar tómlegt hér um að litast í kvöld og á morgun. Ég hendi inn myndum af veislunni við tækifæri, þar sem ekki finnst usb snúra ákkúrat þessa stundina :)
![]() |
| Músamottan fína |
30.1.12
Af smáum skrefum
Sem foreldri þekkir maður sérhvert svipbrigði, hreyfingu og hljóð sem litla barnið manns gefur frá sér, og fagnar nánast eins og afar veikur maður á ólöglegum lyfjum, við hverja nýja áskorun sem barnið stenst. Auðvitað, sem faðir, legg ég mikið á mín börn svo þau megi nú læra að gera hlutina sjálf og án aðstoðar, og kannski stundum of snemma, en aldrei of mikið :)
Í dag var ég að sýna íbúðina fyrir tilvonandi leigjendum og Soffía og Júlía fóru út í garð að leika sér á meðan. Að sýningu lokinni fórum við Emilía út í glugga að fylgjast með, og ég fór að prufa að láta hana standa sjálfa, þar sem hún hefur mjög gaman af því að reyna að vera alltaf á fótum, og viti menn, það tókst, og ekki með svo miklum erfiðleikum :)
Á morgun er ég svo að sýna síðustu sýninguna mína hérna í Görlitz, en það er Litla Töfraflautan. Þó eru samt tvær sýningar eftir en þær eru í Bautzen, og það verður mikill léttir þegar það er afstaðið verð ég að segja.
Hér er að hefjast svona létt panik yfir komandi dögum því það á eftir að gera ansi margt og flest af því er svo mikið háð öðrum. T.d á ég eftir að klára að skila skattaskýrslu fyrir 2011, er kominn með tíma í það á morgun, sem betur fer. Ég þarf að skrá okkur til heimilis á nýjan stað, lesa af rafmagni, fara til læknis og fá uppáskrifað öll lyfin mín fyrir heimferðina, láta meta líkamlegt ástand osfrv. Svo er auðvitað létt partý hérna á Sunnudaginn kemur fyrir kollega og vini í Görlitz, og þvínæst eru bara flutningar! Þannig að næsta vika verður mjög þétt og erfið.
En aftur að smáu skrefunum, hérna eru tvær myndir af Hertoginjunni af Bies að kíkja út:
25.1.12
Að nenna eða ekki nenna?
Þetta er auðvitað ekki spurning um það lengur, heldur erum við á heimleið. Í dag var gengið frá samningum við Samskip um að flytja búslóðina okkar til Íslands, eða allavega það sem eftir stendur, sem virðist nú alveg vera slatti! Hér á bíll að koma að sæka fullpökkuð bretti Þriðjudaginn 7.Febrúar. Það er kannski verið að taka smá séns með þessu, því ef það verður einhver seinkun þá erum við í djúpum skít. En við borgum auka 30 Evrur fyrir að þeir komi nákvæmlega á réttum tíma og það er bara eins gott að það haldi. Heimilið er í rúst vegna flutninganna og það er erfitt að finna suma hluti hér á bæ, og þetta ástand er aldrei skemmtilegt. Þa
Það er skrítin tilfinning að þurfa ekki lengur að mæta á æfingar, ég mæti vissulega alla morgna kl 8:30 niður í hús til að undirbúa tónleikana á Íslandi, og það er ólíkt skemmtilegra að vinna svona tónlist sem manni þykir falleg og skemmtileg heldur en pínulítil smáhlutverk sem fara illa með röddina og sálina. Í morgun t.d kíkti ég á æfingu hjá kollegunum, og það var ekki laust við að ég fyndi fyrir svona c.a 2% söknuði að vera ekki með þeim. Þar er kominn gestasöngvari fyrir mig, og ekki er hann að gera mikið, frekar en venjulega. Ég er því bara nokkuð ánægður með þessa ákvörðun mína.
Ég ákvað að bóka mér miða á Frumsýningu ÍÓ á La boheme, M&P hafa ákveðið að slást í hópinn. Þetta verður vonandi mjög góð sýning, fyrir allan peninginn eins og það heitir víst. Svo daginn eftir hendist ég norður í land, þar sem ætlunin er að hitta fjölskylduna mína, og hugsanlega að fara á tónleika hjá Kristni Sigmunds á Dalvík. Þannig að það er nóg að gera þá helgina allavega :)
Tónleikaprógrammið fyrir Íslandstónleikana mína er tilbúið og plakat er tilbúið, þannig að nú er bara ekki eftir neinu að bíða nema bara fara æfa með Kristni Erni, píanóleikara :)
Jæja fleirra var það nú ekki í bili, ætli maður fari ekki að detta í bjór og tölvuleik :)
Komnar eru inn fullt af nýjum vídeóum og myndum í albúm þeirra systra hérna.
Og svo ein af þeim systrum í lokin

18.1.12
Að þurfa að telja smáaurana!
Í gær losnuðum við við stóran hluta af þungum og erfiðum húsgögnum og það er vissulega eins og þungu fargi sé af manni létt. Þó eru nokkrir stórir hlutir eftir eins og rúm og sófi. En vonandi losnar um það fljótlega.
Hér snjóaði í fyrradag af einhverri alvöru í fyrsta skipti í vetur. Hér hefur hiti einnig verið í kringum frostmarkið síðustu daga. Ekki mikill vetur verð ég að segja, en þó í áttina.
Hér var byrjað að sýna "Der Besuch der alten Dame" í Bautzen um síðustu helgi. Ekki það skemmtilegasta sem ég hef sungið, en mjög erfitt. Eftir hlé, á ég stutta setningu að syngja en ég var enn í búningkslefanum og ekki í búning þegar ég heyrði tónlistina byrja, ég hafði ekki heyrt kallið um að við værum að byrja, þannig að ég rauk af stað og klæddi mig í búninginn á leiðinni, og rétt náði inn á svið til að klára það sem mikilvægt var. Það tók engin eftir þessu nema þeir sem þekkja atriðið, þannig að það var ekki nein katasrófa.
Hér vorum við svo búin að safna saman öllum smápeningum til að fara með í bankann til að láta telja og leggja inn á okkur, og viti menn, ekki var peningatalningavél í bankanum en þess í stað þarf fólk að fá þar tilgerðan pappír, telja sjálfur allt smælkið og pakka því inn á sérstakan hátt, aðeins þannig er hægt að fá eitthvað fyrir það! Ég ef oft nánast misst andlitið í samskiptum mínum við þýska kerfið, en þetta var eiginlega toppurinn, og trónir þar núna með því að "ekki sé hægt að borga með pening og það sem upp á vantar með korti" vandamálinu.
Í fyrramálið kl 10 er svo fyrsta sýning af "Litlu Töfraflautunni", þetta finnst mér nú fullsnemmt, en svona er það nú bara. Það eru nefnilega líka ástæður fyrir því að ég nenni ekki þessu starfi :)
Hér styttist og styttist í brottför, og við hendum og hendum dóti, meðal annars dóti sem ekki hefur komið upp úr kassa í tæp 4 ár! Það ætti að segja sitt um hversu mikið það er notað :)
Hér eru annars allir bara eldhressir og Júlía talar um lítið annað en að fara til Íslands, og ætlar með litlu prinsessu ferðatöskuna sína sem er nú þegar tilbúin til brottfarar. Emilía er búin að vera fá sinn fyrsta graut, og virðist bara kunna nokkuð vel við, þó hún kunni ekki borða almennilega. En það er hægt að fyrirgefa það. Júlía fer af og til inn á "Nick Jr" vefinn til að spila Dóru leiki í tölvunni, hún skilur ekki alveg nógu vel ennþá hvert samhengið er milli músarinnar og bendilsins, en hún er að reyna. Þetta getur gert mann alveg geðveikan að reyna að útskýra fyrir henni hverngi þetta virkar :)
Ég skil ykkur eftir með nokkrar myndir til að skoða, þangað til næst..
| Mikil vinna liggur í þessu :) |

| Að setja á sig gloss |
| Mmmmm að borða sjálf |
| Græðgin algerlega búin að ná tökum |
15.1.12
Það sem koma skal, mun koma!
Ég held að það sé í raunveruleikanum að byrja að sígjast inn að við séum að flytja burt, og hið venjulega tilfinningarót sem tengist breytingum er að byrja! Það er aldrei þægilegt og aldrei gaman. Það er allavega ljóst að ég mun ekkert fara að vinna fyrr en í Ágúst í fyrsta lagi, þ.e ef mér tekst að finna einhverja vinnu. Fyrsta merki þess að allt er að fara breytast er að færri blogg eru byrjuð að detta inn. Ég hef lítinn áhuga á að ræða vinnuna hérna meira og það sem hér gerist, þó það sé vissulega alltaf eitthvað að gerast, eins og t.d í gær þegar sviðskallið kom allt of seint og ég mætti ekki á svið fyrr en um 10 sekúndum of seint! Þetta er mjög vond tilfinning og má aldrei aftur endurtaka sig. Ég get rifið mig niður endalaust fyrir þetta, en þökk sé lyfjunum mínum, veldur þetta mér ekki eins miklu hugar angri og ég hélt. En kannski eru þetta ekki lyfin, kannski er þetta bara vegna þess að ég er hvort sem er að hætta hérna og þessvegna er mér skítsama? Hver veit? Ég er allavega feginn að vera fara.
Við erum líklegast búin að selja flest allt af stóru hlutunum sem við ætluðum að losa okkur við, og ef allt gengur upp erum við búin að fá upp í helminginn af því sem það kostar að flytja búslóðina til Íslands. Við erum líklegast að fara missa fataskápana og aðra kommóðuna á Þriðjudaginn kemur, sem er svosem fínt, en þá þurfa fötin öll að fara í kassa :(
Það er líklega til mikils ætlast, en okkur fjölskylduna vantar c.a 4 herbergja íbúð í Reykjavík frá og með Ágúst/September á þessu ári, þannig að ef einhver sem þetta blogg les veit um eitthvað sem er að losna, eða er að leigja og leita að ábyrgum og góðum leigjendum, þá endilega senda mér skilaboð :)
Við erum búin að redda núna E-104 fyrir Soffíu vegna þess að hún flytur á undan okkur til Íslands. Við hin eigum áfram lögheimili í Þýskalandi, því ég er enn samningsbundinn hérna til loka Júlí. Ég er í kjölfarið búinn að semja við góða konu hérna um að leigja okkur litla íbúð fyrir lítinn pening fram til 1.Ágúst. Svo verður að koma í ljós hvað gerist. Soffía þarf allavega að leita sér að vinnu líka og við erum að fara detta í venjulegt fjölskyldulíf., og líklegast þennan sama góða rythma og maður var vanur, þar sem lífið missir ákveðin tilgang annan en þann að mæta í vinnuna og gera það sama á hverjum degi. Það er svosem visst öryggi í því, en er það það sem ég vil? Nei ég held ekki. Ætli maður finni sér þá ekki fljótlega eitthvað að gera eins og venjulega :)
Í lokin hérna smá myndir af þeim systrum 4 mánaða gömlum.

5.1.12
Dagskrá nýs árs
Jæja, kæru vinir og fjölskylda. Það er komið nokkuð síðan ég skrifaði hérna eitthvað siðast og það helgast aðallaega af því að virkasti hluti heilabúsins hefur verið að vinna í öðru. Hér hefur verið æft stíft fyrir næstu sýningu, sem er reyndar endurupptekning á sýningu sem sýnd var fyrir rúmu ári síðan. En það er einmitt sýningin sem ég hóf ferilinn á :)
Ég er ennþá, einhverra hluta vegna, ánægður með að vera að hætta þessu, þó vissulega sé mikið óöryggi í sálinni vegna framtíðarinnar. En ég hef einhvernvegin trú á því að það rætist úr þessu, það gerir það nú yfirleitt :) Síðustu daga höfum verið að selja húsgögnin okkar, MJÖG ódýrt, og margur þjóðverjinn hefur komist í það mjög feitt verð ég að segja. En við erum búin að selja flest öll stóru húsgögnin hér á bæ :) Þó er enn eftir sófinn, hjólið hennar Soffíu og líkamsræktartækið okkar fína :) En það verður bara að fara eins og það fer.
Dagskrá tónleikanna í febrúar er að taka á sig mynd og verður vonandi boðleg þeim sem ákveða að mæta. Maður stendur alltaf frammi fyrir mikilli sjálfsgagnrýni og nú er hún sú að fólki finnist þetta eftilvill ekki spennandi dagskrá, eða of mikið af "hitturum", en mig langar að gera þetta svona, og verð bara að ákveða að gera þetta svona samkvæt bestu vitund. Mig langar vissulega að flytja líka ljóðaflokka eftir R.Strauss, og fleiri góða, en ég held að það fái bara að bíða. Mér finnst ekki endilega að það þurfi alltaf að bjóða upp á eitthvað svoleiðis. Stundum má bara vera gaman á tónleikum, þarf ekki endileg að vera "áhugavert".
Hér er heimilið smátt og smátt að byrja að leysast upp, og sumt er komið í kassa, og annað er að finna sér leið uppúr geymslunni til þrifa og yfirhalningar. Það er skrítið að vera standa í því enn og aftur að fara flytja, við vitum nákvæmlega ekkert hvað við erum að fara flytja mikið heim til Íslands, en það verður vonandi ekki meira en 3-4 bretti. Sem er svosem alveg nógu dýrt.
Við erum búin að bóka flug til Köben þann 8.Febrúar, og svo frá Köben til Íslands þann 10. Svo taka við stífar æfingar, og að lokum tónleikar í Aratungu. Ekki er enn útséð með að halda tónleika í Söngskólanum, en það verður að koma í ljós á næstu vikum hvað mögulegt er í þeim efnum.
Komnar eru inn myndir frá Jólum og Áramótum hérna
..og svo fyrstu myndir frá nýju ári hérna.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)