Ég er ennþá, einhverra hluta vegna, ánægður með að vera að hætta þessu, þó vissulega sé mikið óöryggi í sálinni vegna framtíðarinnar. En ég hef einhvernvegin trú á því að það rætist úr þessu, það gerir það nú yfirleitt :) Síðustu daga höfum verið að selja húsgögnin okkar, MJÖG ódýrt, og margur þjóðverjinn hefur komist í það mjög feitt verð ég að segja. En við erum búin að selja flest öll stóru húsgögnin hér á bæ :) Þó er enn eftir sófinn, hjólið hennar Soffíu og líkamsræktartækið okkar fína :) En það verður bara að fara eins og það fer.
Dagskrá tónleikanna í febrúar er að taka á sig mynd og verður vonandi boðleg þeim sem ákveða að mæta. Maður stendur alltaf frammi fyrir mikilli sjálfsgagnrýni og nú er hún sú að fólki finnist þetta eftilvill ekki spennandi dagskrá, eða of mikið af "hitturum", en mig langar að gera þetta svona, og verð bara að ákveða að gera þetta svona samkvæt bestu vitund. Mig langar vissulega að flytja líka ljóðaflokka eftir R.Strauss, og fleiri góða, en ég held að það fái bara að bíða. Mér finnst ekki endilega að það þurfi alltaf að bjóða upp á eitthvað svoleiðis. Stundum má bara vera gaman á tónleikum, þarf ekki endileg að vera "áhugavert".
Hér er heimilið smátt og smátt að byrja að leysast upp, og sumt er komið í kassa, og annað er að finna sér leið uppúr geymslunni til þrifa og yfirhalningar. Það er skrítið að vera standa í því enn og aftur að fara flytja, við vitum nákvæmlega ekkert hvað við erum að fara flytja mikið heim til Íslands, en það verður vonandi ekki meira en 3-4 bretti. Sem er svosem alveg nógu dýrt.
Við erum búin að bóka flug til Köben þann 8.Febrúar, og svo frá Köben til Íslands þann 10. Svo taka við stífar æfingar, og að lokum tónleikar í Aratungu. Ekki er enn útséð með að halda tónleika í Söngskólanum, en það verður að koma í ljós á næstu vikum hvað mögulegt er í þeim efnum.
Komnar eru inn myndir frá Jólum og Áramótum hérna
..og svo fyrstu myndir frá nýju ári hérna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli