Í gær losnuðum við við stóran hluta af þungum og erfiðum húsgögnum og það er vissulega eins og þungu fargi sé af manni létt. Þó eru nokkrir stórir hlutir eftir eins og rúm og sófi. En vonandi losnar um það fljótlega.
Hér snjóaði í fyrradag af einhverri alvöru í fyrsta skipti í vetur. Hér hefur hiti einnig verið í kringum frostmarkið síðustu daga. Ekki mikill vetur verð ég að segja, en þó í áttina.
Hér var byrjað að sýna "Der Besuch der alten Dame" í Bautzen um síðustu helgi. Ekki það skemmtilegasta sem ég hef sungið, en mjög erfitt. Eftir hlé, á ég stutta setningu að syngja en ég var enn í búningkslefanum og ekki í búning þegar ég heyrði tónlistina byrja, ég hafði ekki heyrt kallið um að við værum að byrja, þannig að ég rauk af stað og klæddi mig í búninginn á leiðinni, og rétt náði inn á svið til að klára það sem mikilvægt var. Það tók engin eftir þessu nema þeir sem þekkja atriðið, þannig að það var ekki nein katasrófa.
 |
| Mikil vinna liggur í þessu :) |
Hér vorum við svo búin að safna saman öllum smápeningum til að fara með í bankann til að láta telja og leggja inn á okkur, og viti menn, ekki var peningatalningavél í bankanum en þess í stað þarf fólk að fá þar tilgerðan pappír, telja sjálfur allt smælkið og pakka því inn á sérstakan hátt, aðeins þannig er hægt að fá eitthvað fyrir það! Ég ef oft nánast misst andlitið í samskiptum mínum við þýska kerfið, en þetta var eiginlega toppurinn, og trónir þar núna með því að "ekki sé hægt að borga með pening og það sem upp á vantar með korti" vandamálinu.
Í fyrramálið kl 10 er svo fyrsta sýning af "Litlu Töfraflautunni", þetta finnst mér nú fullsnemmt, en svona er það nú bara. Það eru nefnilega líka ástæður fyrir því að ég nenni ekki þessu starfi :)
Hér styttist og styttist í brottför, og við hendum og hendum dóti, meðal annars dóti sem ekki hefur komið upp úr kassa í tæp 4 ár! Það ætti að segja sitt um hversu mikið það er notað :)
Hér eru annars allir bara eldhressir og Júlía talar um lítið annað en að fara til Íslands, og ætlar með litlu prinsessu ferðatöskuna sína sem er nú þegar tilbúin til brottfarar. Emilía er búin að vera fá sinn fyrsta graut, og virðist bara kunna nokkuð vel við, þó hún kunni ekki borða almennilega. En það er hægt að fyrirgefa það. Júlía fer af og til inn á "Nick Jr" vefinn til að spila Dóru leiki í tölvunni, hún skilur ekki alveg nógu vel ennþá hvert samhengið er milli músarinnar og bendilsins, en hún er að reyna. Þetta getur gert mann alveg geðveikan að reyna að útskýra fyrir henni hverngi þetta virkar :)
Ég skil ykkur eftir með nokkrar myndir til að skoða, þangað til næst..
 |
| Að setja á sig gloss |
 |
| Mmmmm að borða sjálf |
 |
| Græðgin algerlega búin að ná tökum |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli