1.5.11

Austurþýskaland og 20 vikur

Það er ekki alltaf auðvelt að búa í þýskalandi, þó það sé vissulega ekki sérstaklega erfitt heldur, en eins og annarsstaðar er margt hérna sem er verulega pirrandi og oft á tíðum þannig að maður bara hreinlega skilur það ekki.  Það er kannski helst að nefna reykingar, hér virðist sem svo að nánast annarhver maður reyki, það heyrir til undantekninga, þegar ég geng til vinnu á hverjum degi, að ég lendi ekki á eftir einhverjum sjúklingi úti á götu, og þarf þá annaðhvort að auka hraðan talasvert til að þurfa ekki að anda að mér óumbeðnum reyk nú eða fara aðra leið eða hægja verulega á mér.  Umburðarlyndi mitt gagnvart reykingum er ekki að aukast við það að búa hérna, svo mikið er víst.

Um daginn átti ég von á smá pakka frá útlöndum, og þar sem virði vörunnar var ekki skráð á pakkann, því ég fékk vöruna án þess að greiða fyrir hana, þá var hann að sjálfsögðu stoppaður í tollinum.  Og ég átti þess eiginlega bara kost að sækja hann.  Sem þýddi lestarferð sem kostaði mig 10Evrur og svo um 45mín labb hvora leið.  Heilsbót, en ekki mjög einfallt. Ég átti reyndar von á meira veseni við að leysa pakkann út, því virði vörunnar var hvergi skráð.  Ég sagði þeim einfaldlega hvað þetta kostaði og þeir tóku það bara gilt, sem kom mér verulega á óvart.

Hér er mikið að gerast næstu tvær vikurnar eða svo, lokaæfingar fyrir La traviata, mjög erfiðir tónleikar, með tilheyrandi æfingum.  Ég er kominn á jaðar þess sem ég þoli, eins og venjulega.  Mér líður í raun eins og allt sé að hrynja í kringum mig og að ég ráði ekki neitt við neitt.  Ekki bætir svo úr að ég virðist vera að fá kvef eða einhver leiðinda veikindi, sem er svosem ekki skrítið þannig séð, þar sem tveir söngvarar hér í húsinu eru þegar orðnir veikir, og það er ekkert smá taugatrekkjandi að vita af því svona stuttu fyrir stóra og mikilvæga tónleika.

Hér hefur veður farið kólnandi og er framtíðarspáin í raun ekkert svakalega spennandi, þannig séð.  Hitinn í kringum 10-13 stig og sól.  Það er frekar kalt verð ég að segja.

Af barnamálum er það að frétta að við erum búin í 20 vikna sónar og þar leit allt vel út nema eitt atriði sem gæti verið slæmt en gæti líka ekki skipt neinu máli.  Þannig að Soffía þarf að fara í regluleg tékk fram að fæðingu. Einnar slagæðar naflastrengir hafa verið tengdir við hjartagalla í börnum, en það á að sjást strax í ítarlegum sónar, sem við einmitt fórum í, allt leit vel út. Það þarf samt að fylgjast með hvort barnið fái nóg næringu og vaxi eðlilega.  Ekki alveg það sem vantaði upp á stressið, en svona er það nú bara.

Hér er lokasýning á Carmen í kvöld, mikið er ég nú glaður að vera laus við það. Einnig er lokasýning á Fledermaus næstu helgi, sem ég mun hugsanlega fagna með kampavíni!!  Djöfull verð ég feginn að losna við það hlutvek úr efnisskránni!  Ég skrifaði bréf til listræns stjórnanda við húsið og lýsti í raun frati á þær ákvarðanir sem hér eru teknar, allavega hvað mig varðar og óskaði eftir svörum um það afhverju ég er ekki að fá stærri hlutverk?  Ég fékk svar í gær og þeir vilja hitta mig í smá óformlegu spjalli, því listrænn stjórnandi ræður í raun ekki miklu en ég gæti hugsanlega fengið að vita eitthvað um mína stöðu hér við húsið.

Meira var það ekki í bili, góðar stundir.

24.4.11

Les Pâques og sumar

Gleðilega páska til allra þeirra sem halda upp á það.  Páskar er asnalegt orð og er komið af hebreska orðinu pesach, lýsir reyndar ágætlega því sem gerist með þá eins og annað, þeir ganga yfir :) .  Í mínum huga eru páskarnir svosem ágætir, þó vissulega hafi þeir enga trúarlega þýðingu. Þetta er lengri helgi, vinni maður, "venjulega vinnu", en ég þarf að vinna í dag og á morgun, sem gerir þessa helgi svosem ekkert sérstaka eða spennadi í mínum huga. Þó bjargar góða veðrið öllu því sem bjargað verður, hér fór hitinn hátt í 25°C í gær, og við notuðum daginn og hjóluðum stóran hring hérna í bænum.  Hér voru svo grillaðar lambalundir í gærkvöldi.



Ungfrúin fékk svo sín páskaegg í morgun og var auðvitað alsæl með þau. Hún er búin að vera mjög dugleg og þolinmóð.  Þegar pakkinn kom, þá var henni tilkynnt að hún fengi á egg á Sunnudaginn.  Síðan þá hefur hún verið að minnast á þetta af og til, og tiltekur alltaf sérstaklega Sunnudag í því tilviki, þó hún viti ekkert hvað Sunnudagur er :)

18.4.11

20 vikur, ræktun, skatturinn og sumarið

Nú styttist í 20 vikna sónarinn vinsæla, og ætlunin er að þessu sinni að fá að vita um hvort kynið er að ræða.  Ætlunin er einnig að halda þeim upplýsingum leyndum fyrir fjölskyldu og vinum :)  Reyndar á það allt eftir að koma í ljós.  Og líklegra en ekki að þessu verði blaðrað fljótlega á einhverjum miðlum eða öðrum fjarskiptatækjum.

S&J eru mættar á svæðið, ungfrúin hefur vissulega bætt við sig í þroska síðan ég sá hana síðast.  Hún talar mjög mikið og syngur einnig mjög mikið, sem er gaman að heyra.  Mikil lífsgleði í gangi og líklega gæti maður lært sitthvað af þeirri litlu.  Það er búið að taka smá tíma að koma svefnmálum í samt lag, en það virðist nú allt vera komið núna.  Ég sef hinsvegar verr, þá á ég við að gæði svefnsins virðast hafa minkað eitthvað.  En það virðist nú líka vera jafna sig til hins betra.  Eftir fréttir af heilsufari mínu, hefur reynst afar auðvelt að hætta áfengisdrykkju, bjór heyrir nú sögunni til og rauðvín tók við í einhvern tíma.  En ég finn bara afar litla löngun í þetta og það virðist halda nokkuð vel.  Þó veit ég ekki alveg hvað ég á af mér að gera á kvöldin, því þetta var komið í svo mikin vana.  En sódavatn skilar sínu og vel það.

Ekki langt að sækja garðyrkjugenið :)
Við ákváðum að prufa að planta nokkrum fræjum af spínati og steinselju í þartilgerðan ílangan blómapott(veit ekki hvort slíkt ber eitthvað annað heiti).  Það verður áhugavert að sjá hvort eitthvað komi útúr því.  Hér sárvantar ferskt spínat, það er hvergi til hér í búðum.  Skilst að það sé að mestu selt frosið í þýskalandi!!

Nú fer að styttast í að skila þurfi skattaskýrslu hér á bæ.  Það er fínt að fá að gera það mitt í öllu stressinu, og á tungumáli sem þjóðverjar sjálfir eiga oft erfitt með að skilja.  Eins og gefur að skilja veldur þetta mér talsverðu stressi, en einhverra hluta vegna finn ég ekki þennan óþægilega óútskýranlega kvíða sem ég er vanur.  Skýringar er líklegast að leita í því að ég er á lyfjum sem lækka blóðþrýsting og er hættur að drekka áfengi!  En maður veit aldrei!

Sumarið er enn á leiðinni, og fengu þær stöllur fyrsta almennilega sumarveðrið í dag, en það var mjög hlýtt og gott í dag og því var tekinn smá túr niður í bæ, þar sem skoðuð var nýja og stórglæsilega H&M verslunin á staðnum.  Það er afar langt síðan ég hef séð H&M af þessari stærðargráðu.  Þetta gladdi líka konuna á heimilinu meira en orð fá lýst, því nú er komin "óléttudeild" :)

Annars er það komið héðan í bili, komnar eru inn myndir á myndasvæðið hennar Júlíu, frá Íslandsför, og 2-3 myndbönd frá sömu för.

Líklegt þykir að næsta blogg verði um páska, sem að þessu sinni verða fátæklegir, því ég er að vinna! Annars hefði stefnan verið tekin eitthvað útúr borginni.

Fyrsta sápukúlubaðið, nú kemst ekkert annað að :)

10.4.11

Að vera sigurvegari í einhverju!

Þriðja sýning á Candide var í dag kl 15:00 og það gekk svosem ágætlega, en ég hef nú svosem sýnt betri takta á sviðinu.  Einn tónn hjá mér gekk ekki eins og ég hefði óskað, og það er alltaf ákveðið tap, maður verður einfaldlega að vera fullkominn alltaf í þessum bransa, annars verður ekki mikið úr manni.  Ég fór að sjá sýningu frá Metropolitanóperunni í gær með tenórnum Juan Diego Florez, sem söngkennarinn minn kallar "eggjalausan" :), hann var vægast sagt stórkostlegur, og það eru fáir sem geta sungið það sem hann er að syngja.  EN á móti kemur að hann á ekki um margt að velja af því allra flottasta og þekktasta.  Söngvararnir sem voru að syngja þarna eru vissulega á toppnum og á svipuðum aldri og ég!  Þetta fær mann til að hugsa að baráttan um að verða einhverntíma eitthvað sé töpuð!  Heimskuleg hugsun en læðist alltaf að mér af og til og gerir mér lífið leiðara.

Hér áttum við Gunnar saman ánægjulega viku saman að spila PS3 og náðum að klára tvo stóra leiki á þeim tíma, og ég hef sjaldan sungið betur!  Ég fór því að velta því fyrir mér í dag hvort það að "berjast" eins og maður gerir í þessum leikjum og hafa alltaf betur eftir mikla vinnu geti haft það að verkum að geðslagið fari ansi vel upp á við?  Ég held að það sé margt til í því, mér fannst ég ósigrandi áður en ég steig á svið og hef sjaldan verið eins öruggur með sjálfan mig!  Mjög þægileg tilfinning sem mig langar að eiga meira af, en er það raunhæft?  Er það einhver langtímalausn, að spila tölvuleik til að koma sér í baráttuástand?  Það gæti verið það.  Sú lausn kostar vissulega um 300 Evrur + tölvuleikir, sem er reyndar hægt að leigja hérna ekki svo dýrt.  Ég held að þetta fái nú að fara í salt í dágóðan tíma, ég held ég muni svosem ekki hafa tíma fyrir þetta, en tilfinningin var verulega góð.  Natural high....það er ef skilgreining nær yfir PS3 :)

Nú eru kona og dóttir að koma aftur til mín á morgun.  Það verður gaman að fá þær aftur, sumarið að koma og allt byrjað að blómstra.  Það eru því vonandi ánægulegir tímar framundan, þrátt fyrir stærsta kvíðahnút sem ég hef nokkurntíma fundið fyrir tónleikum sem ég þarf að syngja í Maí.

Að lokum langar mig að deil með ykkur litlu myndbandi af krónprinsessunni á hestbaki :)
https://picasaweb.google.com/egilsdaughter/LitlaHestakonan#5593922532834627154

3.4.11

Candide, sumarið og PS3

Í gær var frumsýnt verkið Candide eftir Leonard Bernstein, auðvitað með þýskum texta!  Ég stóð mig bara vel og er nokkuð ánægður með þetta.  Þó ekki með það hvað það virðist vera alltaf erfitt að muna texta, en það reddaðist einhvernvegin án mistaka í þetta skiptið sem er gott.  Það getur verið pirrandi þegar velgengni á vinnustaðnum er eitthvað sem maður getur bara vonast eftir, en ekki beint unnið fyrir.

Hér má segja að vorið sé löngu komið. Frá síðasta bloggi hefur aldeilis snarhitnað, og í morgun sá ég hæstu tölur á mælinum sem ég hef séð á þessu ári.  18°C takk fyrir kl 10 um morgun :)  Þetta kemur mér einhvernveginn alltaf jafn mikið á óvart og vekur alltaf upp jafnmikla gleði.  En hitinn er búinn að vera í kringum 15 gráðurnar síðustu 4-5 daga, og það er ekki hægt að segja annað en að með sólinni kemur aukin gleði.  Þó mikið hafi verið stressið síðustu daga.  Næst hefjast svo æfingar fyrir La traviata en þar leik ég stóran þátt, en þvímiður ekki í sólóhlutverki, heldur er mikið um svokölluð "ensambles", þannig að það má eiginlega segja að ég sé í kórnum!

Ég er alveg að verða bilaður á ástandinu hérna við húsið.  Eins og ég hef áður sagt frá hef ég verið að óska eftir því að ég fá stærri hlutverk við húsið, sem hefur verið mjög erfitt að gera fyrir mig.  En það hefur leitt af sér að þeir hafa sagst vilja hlusta á mig til að meta það!!!  Bíddu nú við, ég veit ekki betur en ég sé búinn að vera syngja fyrir þetta lið í heilt ár!!!!!  Þeir vilja semsagt í raun annan fyrirsöng þar sem ég syng einhverjar aðalhlutverk!  Ég er heyrði svo frá dramaturg, svokölluðum, hér í gær sem sagði mér að þeir vildu að ég syngi hlutverk Bürgermeister Schneck í Der Vogelhändler, sem kemur á næsta ári, fólki til upplýsinga, þá er þetta eitt af minnstu hlutverkunum í stykkinu!!!  Af þremur tenórhlutverkum sem eru í boði fékk ég það langminnsta, ég var í raun búinn að sætta mig við að taka það næst minnsta því það er svosem ágætis hlutverk, þó það sé ekki aðalhlutverk. En þeir virðast ætla að ráða gestasöngvara í hin tvö hlutverkin! Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta!! Þetta er ekki til þess fallið að auka ánægju mína í starfi, nú eða gefa mér einhverja von fyrir framtíðina, en svona er þetta bara.  Það eina sem ég get huggað mig við er að ég er næst launahæsti söngvarinn við húsið :) Það er þó búið að segja mér að þeir vilji að ég læri aðalhlutverkið bara til öryggis, þannig að það kann svosem eitthvað að gerast þar.  En í grunninn er þetta samt mjög særandi fyrir mig og ég á bara ekki til eitt einasta orð til að lýsa vanþóknun minni á þessu skítaliði sem hér stjórna.

Að öllu jákvæðari fréttum: Gunnar vinur minn kíkti hér í heimsókn á Föstudaginn og ætlar að vera héna í nokkra daga, hann er þegar búinn að kíkja á tvær sýningar, og við spilum tölvuleiki þess á milli :)  Fyrir valinu varð fyrst "Army of Two" sem er afar hressandi leikur þar sem tveir geta spilað í einu, sem er alltaf gaman :)
Svo á ég von á óléttu konunni minni og fjörugu dótturinni þann 11.Apríl, það er því margt að hlakka til.

Ég sendi sumarstrauma til allra komust hingað í lestri, og vona að næstu dagar verði ykkur góðir.  Þangað til næst..

23.3.11

Er sumarið á leiðinni?

Hér er að byrja að grænka og páskaliljurnar(held þetta sé kallað það) að byrja að spretta uppúr grösum. Hér sér hægt og rólega fyrir endan á vetrinum, þó það sé nú ekki alltaf hægt að gefa sér neitt slíkt þegar kemur að því.  Hitinn hefur verið á bilunu 7-14 gráður síðustu daga og maður þarf ekki lengur að fara í þykkri dúnúlpu í vinnuna :)
Júlía er búin að fá pláss í leikskóla 1.Nóvember, sem er allt of seint!  En ég fór og tékkaði á tveimur öðrum skólum í nágreninu og á öðrum staðnum er engin séns að fá pláss, en á hinum gæti það gerst í byrjun September. Óvissan er mikil.  Hér er ætlast til að börn séu mætt fyrir kl 9 á morgnanna og plássið kostar að vissuleiti sitt, 4,5 tímar eru á 50 Eur, 6 tímar á 74 Eur og 9 tímar á 112 Eur.  Geri ráð fyrir að þetta sé sambærilegt og á Íslandi, en  það er sama, þetta verður að gerast og til þess erum við að fá Kindergeld geri ég ráð fyrir :)

Heilsan er skrítið fyrirbæri og ég sem skyndilega komst á gamals aldur á einum degi, tek nú daglega blóðþrýstingslyf og magasýrulyf!!  Þetta er alveg magnað!  Ég hef þó tekið ýmislegt í gegn hjá mér í kjölfarið, eins og brauðát, bjórdrykkju og sykurneyslu.  Er ekki frá því að Eplaedikið eyði sykurlöngun!  EN það þarf svosem ekkert að vera, því ég drekk orðið líka um 2-3 lítra af vatni á dag með edikið blandað samanvið, og vatnið eitt og sér getur haldið haldið svona sykur löngunum niðri!  En svona er það bara, ég reyni og reyni, og það verður alltaf erfiðara og erfiðara. Velkominn á gamalsaldurinn Egill minn!

Af vinnumálum er lítið að frétta annað en að síðasti fasi æfinga fyrir Candide er að hefjast, það er sá fasi þegar æfingum á einstaka þáttum er hætt og einbeitingin komin á að renna stykkinu í gegn, helst í búningum og með öllu því sem tilheyrir.  Seinnipartinn í dag hefst fyrsta svoleiðis æfingin.  Í gærkvöldi var svo sitzprobe, en það er fyrsta æfing með hljómsveit, þar stóð ég mig bara vel og uppskar mikið klapp, sem er óvenjulegt :)  En þetta gekk bara vel og ég fagna því.

Nóg um blaður, hérna er vormynd í lokin, góðar stundir.

18.3.11

Vídeóin sem búið var að lofa :)

Fyrsta vídeóið er frá óperuballinu hérna í Görlitz, þar sem ég fór með hlutverk Caramello, sem sjálfur bregður sér svo í hlutverk gondólaræðarans. Seinna vídeóið er svo úr Litlu Töfraflautuni, sem er sýning fyrir börnin á staðnum :)

Þetta er að sjálfsögðu ekki fullkomið eins og maður vildi, en ég er nokkuð sáttur samt sem áður :)  Vona að þið verðið það líka.