Í gær var frumsýnt verkið Candide eftir Leonard Bernstein, auðvitað með þýskum texta! Ég stóð mig bara vel og er nokkuð ánægður með þetta. Þó ekki með það hvað það virðist vera alltaf erfitt að muna texta, en það reddaðist einhvernvegin án mistaka í þetta skiptið sem er gott. Það getur verið pirrandi þegar velgengni á vinnustaðnum er eitthvað sem maður getur bara vonast eftir, en ekki beint unnið fyrir.
Hér má segja að vorið sé löngu komið. Frá síðasta bloggi hefur aldeilis snarhitnað, og í morgun sá ég hæstu tölur á mælinum sem ég hef séð á þessu ári. 18°C takk fyrir kl 10 um morgun :) Þetta kemur mér einhvernveginn alltaf jafn mikið á óvart og vekur alltaf upp jafnmikla gleði. En hitinn er búinn að vera í kringum 15 gráðurnar síðustu 4-5 daga, og það er ekki hægt að segja annað en að með sólinni kemur aukin gleði. Þó mikið hafi verið stressið síðustu daga. Næst hefjast svo æfingar fyrir La traviata en þar leik ég stóran þátt, en þvímiður ekki í sólóhlutverki, heldur er mikið um svokölluð "ensambles", þannig að það má eiginlega segja að ég sé í kórnum!
Ég er alveg að verða bilaður á ástandinu hérna við húsið. Eins og ég hef áður sagt frá hef ég verið að óska eftir því að ég fá stærri hlutverk við húsið, sem hefur verið mjög erfitt að gera fyrir mig. En það hefur leitt af sér að þeir hafa sagst vilja hlusta á mig til að meta það!!! Bíddu nú við, ég veit ekki betur en ég sé búinn að vera syngja fyrir þetta lið í heilt ár!!!!! Þeir vilja semsagt í raun annan fyrirsöng þar sem ég syng einhverjar aðalhlutverk! Ég er heyrði svo frá dramaturg, svokölluðum, hér í gær sem sagði mér að þeir vildu að ég syngi hlutverk Bürgermeister Schneck í Der Vogelhändler, sem kemur á næsta ári, fólki til upplýsinga, þá er þetta eitt af minnstu hlutverkunum í stykkinu!!! Af þremur tenórhlutverkum sem eru í boði fékk ég það langminnsta, ég var í raun búinn að sætta mig við að taka það næst minnsta því það er svosem ágætis hlutverk, þó það sé ekki aðalhlutverk. En þeir virðast ætla að ráða gestasöngvara í hin tvö hlutverkin! Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta!! Þetta er ekki til þess fallið að auka ánægju mína í starfi, nú eða gefa mér einhverja von fyrir framtíðina, en svona er þetta bara. Það eina sem ég get huggað mig við er að ég er næst launahæsti söngvarinn við húsið :) Það er þó búið að segja mér að þeir vilji að ég læri aðalhlutverkið bara til öryggis, þannig að það kann svosem eitthvað að gerast þar. En í grunninn er þetta samt mjög særandi fyrir mig og ég á bara ekki til eitt einasta orð til að lýsa vanþóknun minni á þessu skítaliði sem hér stjórna.
Að öllu jákvæðari fréttum: Gunnar vinur minn kíkti hér í heimsókn á Föstudaginn og ætlar að vera héna í nokkra daga, hann er þegar búinn að kíkja á tvær sýningar, og við spilum tölvuleiki þess á milli :) Fyrir valinu varð fyrst "Army of Two" sem er afar hressandi leikur þar sem tveir geta spilað í einu, sem er alltaf gaman :)
Svo á ég von á óléttu konunni minni og fjörugu dótturinni þann 11.Apríl, það er því margt að hlakka til.
Ég sendi sumarstrauma til allra komust hingað í lestri, og vona að næstu dagar verði ykkur góðir. Þangað til næst..
Engin ummæli:
Skrifa ummæli