Þriðja sýning á Candide var í dag kl 15:00 og það gekk svosem ágætlega, en ég hef nú svosem sýnt betri takta á sviðinu. Einn tónn hjá mér gekk ekki eins og ég hefði óskað, og það er alltaf ákveðið tap, maður verður einfaldlega að vera fullkominn alltaf í þessum bransa, annars verður ekki mikið úr manni. Ég fór að sjá sýningu frá Metropolitanóperunni í gær með tenórnum Juan Diego Florez, sem söngkennarinn minn kallar "eggjalausan" :), hann var vægast sagt stórkostlegur, og það eru fáir sem geta sungið það sem hann er að syngja. EN á móti kemur að hann á ekki um margt að velja af því allra flottasta og þekktasta. Söngvararnir sem voru að syngja þarna eru vissulega á toppnum og á svipuðum aldri og ég! Þetta fær mann til að hugsa að baráttan um að verða einhverntíma eitthvað sé töpuð! Heimskuleg hugsun en læðist alltaf að mér af og til og gerir mér lífið leiðara.
Hér áttum við Gunnar saman ánægjulega viku saman að spila PS3 og náðum að klára tvo stóra leiki á þeim tíma, og ég hef sjaldan sungið betur! Ég fór því að velta því fyrir mér í dag hvort það að "berjast" eins og maður gerir í þessum leikjum og hafa alltaf betur eftir mikla vinnu geti haft það að verkum að geðslagið fari ansi vel upp á við? Ég held að það sé margt til í því, mér fannst ég ósigrandi áður en ég steig á svið og hef sjaldan verið eins öruggur með sjálfan mig! Mjög þægileg tilfinning sem mig langar að eiga meira af, en er það raunhæft? Er það einhver langtímalausn, að spila tölvuleik til að koma sér í baráttuástand? Það gæti verið það. Sú lausn kostar vissulega um 300 Evrur + tölvuleikir, sem er reyndar hægt að leigja hérna ekki svo dýrt. Ég held að þetta fái nú að fara í salt í dágóðan tíma, ég held ég muni svosem ekki hafa tíma fyrir þetta, en tilfinningin var verulega góð. Natural high....það er ef skilgreining nær yfir PS3 :)
Nú eru kona og dóttir að koma aftur til mín á morgun. Það verður gaman að fá þær aftur, sumarið að koma og allt byrjað að blómstra. Það eru því vonandi ánægulegir tímar framundan, þrátt fyrir stærsta kvíðahnút sem ég hef nokkurntíma fundið fyrir tónleikum sem ég þarf að syngja í Maí.
Að lokum langar mig að deil með ykkur litlu myndbandi af krónprinsessunni á hestbaki :)
https://picasaweb.google.com/egilsdaughter/LitlaHestakonan#5593922532834627154
Dugleg hestakona.
SvaraEyðaBestu kveðjur
Sigrún