Hér er að byrja að grænka og páskaliljurnar(held þetta sé kallað það) að byrja að spretta uppúr grösum. Hér sér hægt og rólega fyrir endan á vetrinum, þó það sé nú ekki alltaf hægt að gefa sér neitt slíkt þegar kemur að því. Hitinn hefur verið á bilunu 7-14 gráður síðustu daga og maður þarf ekki lengur að fara í þykkri dúnúlpu í vinnuna :)
Júlía er búin að fá pláss í leikskóla 1.Nóvember, sem er allt of seint! En ég fór og tékkaði á tveimur öðrum skólum í nágreninu og á öðrum staðnum er engin séns að fá pláss, en á hinum gæti það gerst í byrjun September. Óvissan er mikil. Hér er ætlast til að börn séu mætt fyrir kl 9 á morgnanna og plássið kostar að vissuleiti sitt, 4,5 tímar eru á 50 Eur, 6 tímar á 74 Eur og 9 tímar á 112 Eur. Geri ráð fyrir að þetta sé sambærilegt og á Íslandi, en það er sama, þetta verður að gerast og til þess erum við að fá Kindergeld geri ég ráð fyrir :)
Heilsan er skrítið fyrirbæri og ég sem skyndilega komst á gamals aldur á einum degi, tek nú daglega blóðþrýstingslyf og magasýrulyf!! Þetta er alveg magnað! Ég hef þó tekið ýmislegt í gegn hjá mér í kjölfarið, eins og brauðát, bjórdrykkju og sykurneyslu. Er ekki frá því að Eplaedikið eyði sykurlöngun! EN það þarf svosem ekkert að vera, því ég drekk orðið líka um 2-3 lítra af vatni á dag með edikið blandað samanvið, og vatnið eitt og sér getur haldið haldið svona sykur löngunum niðri! En svona er það bara, ég reyni og reyni, og það verður alltaf erfiðara og erfiðara. Velkominn á gamalsaldurinn Egill minn!
Af vinnumálum er lítið að frétta annað en að síðasti fasi æfinga fyrir Candide er að hefjast, það er sá fasi þegar æfingum á einstaka þáttum er hætt og einbeitingin komin á að renna stykkinu í gegn, helst í búningum og með öllu því sem tilheyrir. Seinnipartinn í dag hefst fyrsta svoleiðis æfingin. Í gærkvöldi var svo sitzprobe, en það er fyrsta æfing með hljómsveit, þar stóð ég mig bara vel og uppskar mikið klapp, sem er óvenjulegt :) En þetta gekk bara vel og ég fagna því.
Nóg um blaður, hérna er vormynd í lokin, góðar stundir.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli