Ég vil byrja á að þakka góð ráð og margvíslegan stuðning sem við höfum fengið frá okkar góða fólki og vinum. Ástandið hér á bæ hefur svosem ekki versnað. Soffía er búin að vera á afar einhæfu mataræði síðustu vikuna, í viðleitni okkar til að temja vanlíðan Emilíu, en þvímiður allt fyrir ekkert. Þetta virðist því vera óleysanlegt mál eins og með Júlíu! Sem er ótrúlegt helvíti. Þó erum við búin að fá hómópatalyf, núna sem nýji barnalæknirinn lét okkur fá. Ég fór og heimtaði bakflæðislyf, sofort, en því var hafnað, nema að við prufuðum þessi lyf fyrst, gott og vel, ég gat keypt rökin fyrir því. En ég gat ekki keypt rökin fyrir því að ef börn eru með bakflæði þá gubba þau mjög mikið. Ég tel það bara ekki vera rétt þar sem ég hef þjáðst af þessu síðan ég fæddist. Ég hef verið kominn nálægt því að gefa henni bara örlítinn skammt af mínum magalyfjum, sem eru að mestu leiti skaðlaus. En hafa bjargað lífi mínu. Eftir að hafa legið yfir rannsóknum og prófunum á netinu sem tengjast Colic hjá börnum, þá eru þar afar skýrar línur, 60-70% tilfella er um bakflæði að ræða. Tvennskonar bakflæði er til, annarsvegar það þar sem börn gubba mikið og þyngjast þar af leiðandi ekki og hinsvegar það sem börn gubba ekki, en sýran úr maganum nær að leka upp í vélindað og valda óþægindum. Það er vanalega vegna óþroskaðs eða slaks efri magaportvöðva. Þetta er hægt að stoppa með esomeprazole, sem hægt er að fá fyrir börn líka, en læknirinn vildi bara ekki heyra á það minnst, fyrr en ég var búinn að tuða í henni endalaust um þetta. Ef hún lætur okkur ekki fá þetta næst þegar við förum, þá geri ég þetta bara sjálfur :) Í gærkvöldi testaði Soffía það svo að fá sér nammi og meððí, og við höfum ekki tekið eftir neinni breytingu á Emilíu í kjölfar þess, sem ætti að segja okkur að þetta er ekki fæðutengt, heldur BAKFLÆÐI!! :) Bakflæðilyf var það eina sem við prufðum aldrei á Júlíu, fyrir utan Gaviscone, en það er ekki eiginlegt lyf.
Á morgun erum við Júlía svo að fara skoða leikskólann þar sem hún er að hefja nám í Nóvember :) Það er þegar komin tilhlökkun í menn. Héðan er annars allt gott, við erum að fá annað sumar þessa dagana, 20-22 stiga hiti og mjög ljúft. Ég man ekki hvort ég var búinn að blogga um þetta, en hjólinu mínu var stolið fyrir utan óperuhúsið þegar ég var á kvöldæfingu, sama kvöld og Emilía ákvað að koma í heiminn. Ég er að sjálfsögðu brjálaður yfir þessu, því það væri svo gott að vera fljótari heim og til vinnu þessa daganna. En í staðinn labba ég bara. Þetta var að sjálfsögðu tilkynnt til lögreglu, og nú er bara að sjá. Ég held satt best að segja að ekkert muni koma útúr því. Ég er á fullu á æfingum alla daga fyrir Vogelhändler, og þarf vart að segja frá því hvað mér leiðist að leika þetta hlutverk. Þetta er svosem skemmtilegt svo langt sem það nær, en reynir ekki á mig á neinn hátt. Ég var að taka það saman að ég mun líklega sýna yfir 90 sýningar á þessu tímabili, sem er fáranlega mikið! En ég ætti að fá um 2000 Evrur aukalega fyrir það, sem er svosem ágætt. En samt, fínt að dreyfa álaginu aðeins betur í þessu húsi.
Jæja, þarf að fara hendast á æfingu, nokkrar myndir í lokin.
 |
| Fyrsta baðið |
 |
| Á leiðinni í bæinn |
 |
| Hérna er oft legið og talað við litlu systur |