Jæja, von okkar um að fá nú að njóta þess að eiga ungabarn er úr myndinni! Guð geðveiki og hans föruneyti af hálfvitum frá Satanshólum 5, hefur ákveðið að við eigum að fá að ganga í gengum það aftur að eiga "magabarn". Þetta er verulega svekkjandi, og mun þýða það að í fysta lagi í Janúar getur maður farið að "njóta" þess að eiga barn, þ.e ef maður verður ekki algerlega búinn að tapa geðheilsunni. Það gerðist næstum því síðast, en þá þurfti ég ekki að vinna neitt, og gat verið heima eins mikið mögulegt var. Nú er það ekki svo og ég er nánast ekkert heima, flesta daga, kem nánast bara heim til að sofa, og Júlía þarf á allri manns athygli að halda þann litla tíma sem maður er heima.
Ég veit að hlutirnir gætu verið verri með alvarlegum veikindum eða öðru slíku. En þeir sem ekki hafa átt alvöru "magabarn", heldur bara börn sem grenja 1-2 tíma á sólarhring, vita ekki hvað er verið að tala um hér.
Ég var að koma fra Berlín fyrir nokkrum mínútum, að skutla Tengdó á flugvöllinn. Júlía kom með mér og það gekk bara afar vel. Það er ekki laust við að að mér setjist kvíði þegar ég hugsa til þess að núna við höfum engan til að hjálpa okkur. Hún hefur reynst algerlega ómissandi, eftir andvökunætur, þannig að Soffía geti allavega hvílt sig á meðan ég er í vinnunni. Hún sá hér um ýmis heimilsverk, svo við gætum hvílst. Það er hætt við að hér fari bara allt í steik. Það er skrítið að tala svona þegar liðin er rétt rúm vika, en líkamsminnið og andleg reynsla segir okkur í hvað stefnir. Við vorum alltaf bjartsýn með Júlíu, því við þekktum þetta ekki, og við bjuggumst alltaf við því að þetta væri að verða betra, og að við gætum einhverju breytt með mataræði, lyfjum eða öðru. En nú vitum við bara að EKKERT virkar annað en að bíða í 3 mánuði!
Æ;Æ; Egill minn þetta lagast.Bestu kveðjur.
SvaraEyðaSigrún afasystir
Þú hefur áreiðanlega heyrt þetta og jafnvel prófað og ekki virkað .... en samt: Báðir strákarnir okkar voru með magakrampa sem ungabörn. Við komumst sjálf að því að mjólkurprótín sem heitir kasein er mjög algeng orsök magakrampa. Kasein er í öllum andskotanum, sérstaklega í öllum vörum sem innihalda undanrennuduft. Málið með eldri strákinn (Mána) leystist þegar ég hætti með hann á brjósti og hann lifði á gerviþurrmjólk (Nutramigen) fyrsta árið (hann þoldi heldur ekki sojamjólk). Í venjulegri þurrmjólk er uppistaðan undanrennuduft = glás af kaseini. Í flestum tilbúnum barnamat (t.d. krukkumat) er undanrennuduft svo slíkt kom ekki til greina (þegar krakkinn eltist) heldur varð að sérstappa og sérelda ofan í hann. Eftir 1 árs aldur var þetta kaseinóþol horfið (það mælist ekki í ofnæmisprufum og íslenskt heilsugæslufólk, þ.m.t. læknar, voru mjög ókunn þessu en sem betur fer vann Atli í bóksölu stúdenta og fann þessar upplýsingar í næringar-og læknisfræðibókum).
SvaraEyðaYngra eintakið (Vífill) reyndist alveg eins. Það varð ekki vandmál því við kunnum þá á þetta. Ég hafði hann á brjósti í tæpt ár og fór sjálf á kasein-frían kúr, sem þýddi að ég gat neytt rjóma og smjörs en alls ekki drukkið mjólk, léttmjólk, notað sólblóma, smjörva eða aðrar hor-vörur, því þær eru fullar af undanrennudufti. Sama gildir um brauð, nema rúgbrauð. Því miður er voða fátt sælgæti sem kemur til greina að mjólkandi móðir gaddi í sig ...
Fyrirgefðu framhleypnina en ég vildi koma þessu á framfæri af því ég veit hvernig það er að vera með ungabarn sem sefur samtals 6 tíma á sólarhring, í misjafnlega stuttum dúrum, og hágrætur og engist jafnvel sundur og saman því magakrampi/ristilkrampi er mjög sársaukafullur.
Það má prófa þetta ráð. Kasein er yfirleitt talið upp í innihaldslýsingum á matvörum. Sé barnið á brjósti verður mamman að vera á kaseinfríu fæði.
P.S. Raunar hafa íslenskir vitað þetta af alþýðuvísindum: Það þekktist í gamla daga að gefa mjög óværum / magaveikum börnum kaplamjólk (mjólk úr merum). Það er eina mjólkin sem ekki inniheldur kasein. En ég reikna með að það sé erfitt að ná í kaplamjólk á þínum slóðum ;)