10.9.11

Tíðindalítið en það er bara ágætt!


Hér hefur allt verið með kyrrum kjörum, sem betur fer.  Ekkert sem talist getur óeðlilegt eða neitt slíkt.  Ró mín er samt óttablandin, því magavesen hefst oft eftir um það bil 1-2 vikur.  Það er því ekki allt orðið öruggt ennþá, en ég verð að leyfa mér að vona það.

Ég var boðaður á fund stjórans hérna til að biðja mig að taka að mér tónleika fyrir gesta söngvara sem hefur ekki tíma.  Þeir eru búnir að vita af þessu síðan fyrir sumarfrí, og hafa samt ekkert gert í því fyrr en núna.  Ég sagðist hreinlega ekki geta gert þetta vegna vinnuálags, sem er sannarlega mikið þessa dagana.  En, vegna þess hversu vel ég er innrættur og alltaf tilbúinn að spila með, þá bauð ég honum að ég gæti gert þetta ef ég fæ að hafa nóturnar með mér á sviðinu.  Hann sagðist ætla að hugsa málið, og svo frétti ég frá kollega mínum, sem sem sér um þessa tónleika að honum hafi verið sagt að láta þetta ganga upp svona :)  En ég þarf ekki að stressa mig því ég verð með nóturnar með mér :)  Þetta er líka skemmtileg tónlist sem ég fæ að syngja, og mig hefur alltaf langað til að læra.

Fyrir áhugasama þá eru komnar inn myndir í Egilsdaughter albúmið(ótrúlega sniðugt að þurfa ekki að búa til nýjan account fyrir nýtt barn :))

Og svo hérna skemmtileg samanburðarmynd á þeim systrum þar sem þær eru báðar 3 daga gamlar.
Emilía-----------------------------------Júlía

Engin ummæli:

Skrifa ummæli