Úff, það verður nú að segjast að hitinn í dag var verulega hár. Mjög svo áreiðanlegar mælingar sem framkvæmdar voru hér um miðjan dag sýndu, svo ekki var um villst, að hitinn, í skugga fór í 36,5°C! Annað eins hefur maður ekki upplifað held ég. Og þó :) En þetta er spáin næstu 2-3 daga, svo á þetta nú að verða bærilegra. Á dögum sem þessum er gott að fá sér bjór og það er gott að vera bara inni :)
Í gær var brunað til Berlínar, í þeim tilgangi að ná í tengdó. Ég er kominn í mjúkinn hér hjá bílaleigunni Sixt, þar sem við leigjum vanalega okkar bíla. Þau láta mig alltaf fá nokkuð góða bíla, og það er ekkert annað en ánægjulegt. Þau þekkja mig þegar ég geng inn og heilsa mér með nafni. Reyndar sjá þau nafnið mitt alltaf á pöntunar seðlinum, því auðvitað vita þau að einhver er að koma að sækja bíl :) Allavega, ferðin gekk vel, og ég ákvað að nota ferðina til að hitta á Wolfgang kennarann minn í Berlín, það var einstaklega góður tími, og hann var mjög ánægður. Skildi vel ákvörðun mína um að hætta í þessu veseni, en ákvað samt að benda mér á að sækja um á þremur stöðum þar sem hann er í persónulegum kunningskap við aðalstjórnendur :) Auðvitað fagnaðarefni, en á endanum er það nú samt alltaf fyrirsöngurinn sem ræður, og þar stendur alla jafna hnífurinn í kúnni. En hann sýndi mér þó enn og aftur að ég get þetta alveg, og röddin er ekki vandamálið, skrítið samt að hann sé einn af örfáum sem virðast hafa þá skoðun!:)
Á morgun er svo fyrsti vinnudagurinn, hann hefst kl 10 þar sem öllum er smalað saman og nýjir aðilar kynntir til sögunar, og farið yfir breytingar eða hvaða rugl það er sem kemur til með að taka við okkur á komandi tímabili. Að því loknu eða um kl 11, þá hefst fyrsta æfing tímabilsins, og auðvitað er ég þar efstur á blaði í smáhlutverki mínu, og reyndar þarf ég að mæta um kvöldið líka. Ekki kæmi það mikið á óvart ef ég þyrfti hreinlega að mæta alla daga á næstunni, bæði kvölds og morgna. En svona er nú líf þeirra sem taka ruslið.
Barnið er ekkert að láta kræla á sér, sem er miður, en hver veit? kannski gerist eitthvað í nótt! Ég hringdi allavega í dag á fæðingardeildina til að spyrjast fyrir um hvort hægt væri að kom að skoða aðstöðuna, og það var nú reyndar lítið má. Við þurfum bara að hringja á undan okkur, og kanna hvort ekki sé allt laust. Það verður því reynt að detta í það á morgun. Annars bíðum við bara "spennt". Ég upplifi mun meira stress í þetta skiptið en áður. Ég veit ég kann ekki neitt, og sama hvað ég kann, þá er ekkert sem undirbýr mann fyrir "magabarn", það er bara þannig, og þetta er greinilega að eilífu brennt í geðið á manni! En svo lengi sem þetta verður ekki alvarlegra en það, þá ber manni að þakka fyrir?!?
Allavega, það er gott að vera búinn að fá tengdó hingað til að lækka álagsstigið um nokkur prik, við þurfum þá allavega ekki að hafa áhyggjur af Júlíu.
Ein matarmynd í lokin, og eins og áður sagði, þá verða fyrstu fréttir af væntanlegum co-erfingja settar inn á Google+
Góðar stundir,
 |
| Ótrúlega gaman að borða klúklingalæri :) |