Síðustu daga/vikur höfum verið að reyna að ákveða nafnið á nýjan fjölskyldumeðlim. Það hefur bara nánast ekkert gengið. Við erum þó sammála um tvö nöfn sem passa alls ekki saman en eru hvort um sig mjög fín. Nú höfum við í raun verið að leita logandi ljósi að einhverju hentugu millinafni sem gæti farið með þessu, og þar stendur hnífurinn í kúnni. Það sem er jákvætt við að búa úti er að mannanafnanefnd hefur ekkert að segja með þau nöfn sem við ákveðum að nota, sem er ákveðinn léttir, ekki það að við séum að skoða einhver óeðlileg nöfn, en það er bara fínt að vera ekki með einhverja nafnapúrista að væla yfir því hvað fólk má og má ekki heita.
Ég er byrjaður að sötra áfengislausan bjór, og það kemur mér á óvart að uppgötva að ég var kannski ekki að sækja í sjálft áfengið, heldur er það bragðið og sykurleysið sem heillar. Það er nefnilega vöntun á gosdrykkjum sem innihalda lítið af sykri, en eru samt bragðgóðir og ekki með einhverjum gerfiefnum. Bjórinn uppfyllir allar kröfur hvað þetta varðar. Hann bragðast vissulega ekki eins vel, en slær á sárasta hungrið og áfengisþörfina :)
Jæja fleira var það ekki í bili, best að fara leggjast yfir nöfn og sjá hvað kemur upp úr pottunum :) og kannski að grípa í svosem eins og einn Motorstorm eða Hunted á PS3.
Góðar dagfarir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli