Það sér ekki fyrir endan á veseni hérna úti, ég sem hélt að við værum komin á lygnan sjó eftir að hafa afgreitt tryggingamál farssællega, eða svo hélt ég. Þetta hefst þannig að þegar við vorum hjá lækni, þá tilkynnit hún okkur að við ættum rétt á því að hringja á sjúkrabíl vegna fæðingar. Fínt mál, og það var bara það sem við ætluðum að gera. En NEIIIIIIIII, ekki var það alveg svo einfallt, þegar við hittum ljósðmóðurina sagði hún okkur að til þess að geta tekið sjúkrabíl, þurfum við svokallað Transportschein, sem við eigum að fá uppáskrifað hjá lækninum. En þær í móttökunni hjá lækninum segja að við þurfum að fá staðfestingu frá sjúkratryggingunum um að þeir muni borga, sem þeir gera. En sjúkratryggingarnar segja að þeir gefi ekki út neinn slíkan pappír, en að þeir muni borga ef læknirinn skrifar upp á það. Þannig að við erum ekki að fara fá neinn svona pappír, og þurfum því líklega að taka leigubíl!! Sem við vitum ekki einusinni hvort muni vilja taka okkur.
Í framhaldi af kvörtun sem ég sendi svo til sjúkratrygginganna hérna fékk ég símtal í dag þar sem mér var tjáð að Soffía og Júlía væru ekkert tryggðar hérna! Sem vakti bæðu furðu mína og konunar sem ég talaði við því bæði Soffía og Júlía eru með tryggingaskírteini frá umræddu fyrirtæki og ég er með staðfestingu á því að þær séu tryggðar hérna. En ég þurfit samt sem áður aftur að fylla út eyðublöð, aftur!, til að þær yrðu aftur tryggðar. Ég er löngu hættur að skilja þetta bull, en ég kláraði umræddapappírsvinnu núna áðan og sendi. Þannig að áhugavert verður að sjá hvað gerist næstu daga.
Ég veit ekki hvort ég á að vera þora að storka örlögnum, en á morgun kemur tengdó, til að aðstoða okkur með Júlíu á meðan barnið kemur í heiminn. Þar sem Soffía er gjörsamlega komin á steypirinn, þá erum við frekar hrædd um að eitthvað fari að gerast í dag eða á morgun. Það má hreinlega ekki gerast, en ég tel að miðað við þá heppni sem við erum þekkt fyrir þá mun þetta líklegast gerast á morgun fjótlega eftir að við erum lögð af stað héðan. Ef ekki, þá er það bara frábært mál og þakkarvert. En betra væri ef þetta myndi fá að bíða fram á Miðvikudag :)
Hér hefur veðurfar breyst umtalsvert síðustu vikuna, og hér er um 25-28°C hiti alla daga og spáin fyrir seinni helming vikunnar er rúmlega 30°C, þannig að við erum að fá allt góða veðrið á einu bretti, og með því koma moskítóflugurnar sem allir elska. Lítið við því að gera, nema reyna að láta það ekki á sig fá.
Ljósmóðir býst við að eitthvað fari að gerast í þessari viku og því er viðbúið að eitthvað fari að gerast.
Fyrstu fréttir munu detta inn á Google+ og kannski seint og um síðir á Facebook og svo þetta blogg.
Þannig að ef þú ert ekki komin á Google+ þá er hérna boðsmiði að skrá sig :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli