2.8.11

Rólegheit í Ágúst

Hér hefur nú verið frekar rólegt síðustu daga, við erum bara heima að dunda okkur.  Veðrið hefur ekki verið að gera annað en að ýta  undir heimveru hvort sem er (rigning, kuldi og rok).  Í dag er þó sól og vel heitt, loksins.

Mér tókst að hella mér í veikindi í fyrradag og er búinn að vera jafna mig á því síðustu tvo daga.  Ég hef varla getað sest við PSinn í leik :)  En nú líður mér bara þokkalega og er að ná fyrri styrk.  Soffía hefur það bara fínt á 8unda mánuði og er búin að vera dunda sér við að bera dót niður í geymslu, ryksuga, klifra upp á stóla til að taka til í skápum og svo mætti lengi telja.  Kemur mér svosem lítið á óvart, en svona er það bara.  Júlía er svo bara hress eins og venjulega og er klósett þjálfun komin á fullt, og hefur gengið vonum framar.  Aðeins 2-3 lítil slys síðustu daga, þannig að það er bjart framundan.

Í dag var svo tekið til í tölvuherberginu, og ég skil ekkert í því afhverju maður nær ekki og reynir ekki að halda þessu snyrtilegu, það er svo miklu þægilegra og skemmtilegra að vera hérna inni þegar svona er umhorfs.  Reyndar finnst mér alger synd að get ekki notað þetta stóra herbergi með besta útsýninu fyrir setustofu þar sem hægt er að setjast inn og lesa eða hlusta á tónlist.  Það vantar bara eitt herbergi í viðbót í þessa íbúð, það er nú bara þannig.

Svo lagðist ég í ótrúlega leiðinlegt verk, en það er að hringja í Sjúkratryggingarnar og Foreldraorlofssjóð.  Foreldraorlofsssjóðurinn ætti nú að ganga ágætlega að ég held, við fáum send einhver gögn sem við eigum að fylla út, easy peasy, en tryggingarnar verða annað mál!!!  Þetta er svolítið flókið mál því þeir hérna úti vilja vita hvar við vorum tryggð 6.Júlí til 18.Ágúst, og sannleikurinn er sá að við vorum tryggð á Íslandi.  En þegar ég flutti lögheimilið, þá var það gert afturvirkt, veit ekki alveg afhverju það var gert þannig, en svoleiðis er nú það.  Þannig að líklegt er að það verði að einhverju massívu vandamáli sem ekki á eftir að sjá fyrir endan á!   Skil ekki alveg hvernig svona lagað eltir okkur uppi?!?

Svona í öðrum fréttum þá hef ég að MJÖG VEL ígrunduðu máli, ákveðið að vera ekki lengur í Görlitz eftir næsta sumar.  Það er erfitt að taka svona ákvörðun án þess að vita hvað tekur við, því ég veit að ég á hér trygga vinnu til sumars 2013 allavega.  Ég get bara ekki boðið sjálfum mér og fjölskyldunni upp á þetta líf, og líklegt er að ég hætti alfarið söngstandi í þýskalandi.  Þegar ég skrifa þetta fyllist ég vissulega smá sorg, en þetta er bara ekki að gefa mér neina gleði lengur.  Það er gaman að syngja, ekki misskilja það, en allt í kringum bransann hérna er bara svo neikvætt og erfitt.  Þegar ég segi erfitt, þá á ég ekki við að stundum sé þetta erfitt og stundum frábært, heldur hefur nánast hver einasti vinnudagur síðasta ár verið mér kvöl og pína.  Að hluta vegna þess að ég er ekki nógu góður til að framkvæma það sem ég er beðin um, og að hluta vegna þess hvernig komið hefur verið fram við mig. Ég veit vel hvað ég kann og hef, og veit að ég er fullboðlegur í þessum bransa, en mér líður bara ekki vel í því sem ég er að gera og þá er það til lítils.  Að mæta vínnuna á hverjum degi og vita ekki hvort dagurinn verði góður eða slæmur.  Þegar ég var að vinna í tölvunum, þá vissi ég, áður en ég fór í vinnuna að ég myndi fá krefjandi og skemmtileg verkefni, og að ég hefði kunnuáttu og þolinmæði til að takast á við þau verkefni.  Jæja nóg um rólegan Ágúst í bili.

Nótið þess sem eftir lifir sumars :)

28.7.11

"Sumar" á norðulöndum

Litli ferðalangurinn
Þá erum við nýkomin heim að loknu 13 tíma lestarferðalagi frá Álaborg.  Þetta tveggja vikna sumarfrí hófst á því að við rifum okkur upp kl 5 um morgun og héldum í lestina, eina af þremur sem við áttum að taka þennan dag. Allt gekk vel, ungfrúin var afar hress og engin vandamál. Við höfðum þó áhyggjur af því að ná ekki lestinni í Berlín, því það var ansi tæpt með eina ólétta og smábarn :)  En allt gekk það nú upp. Við höfðum pantað barnaklefa frá Berlín til Köben, og það er varla hægt að sjá eftir því núna, því hann er alveg lokaður og pláss fyrir 6 í sæti. Á leiðinni keyrði lestin svo inn á ferju sem tók okkur frá Puttgarden til Rödbyhavn, þetta var vegna fremkvæmda skilst mér, en var samt afar sérstakt að upplifa.  Fjóla sótti okkur svo á Aðalbrautarstöð Kaupmannahafnar og við héldum til Malmö þar sem við dvöldum svo í tæpa viku ásamt tengdamömmu og Írisi Magnúsdóttur, það þótti Júlíu sko ekki leiðinlegt. Malmö er æðisleg borg í mínum huga og ég myndi gjarnan vilja búa þar. Við fórum í barnatívolí og á ströndina auk þess að skoða nokkrar búðir :)  Þvímiður rigndi alla dagana nema einn, sem var þá notaður í strandferð. Við höfðum afnot af bíl mest allan tímann, og það bjargaði þessari ferð algerlega, þar sem Fjóla býr eilítið útúr. Að lokinni frábærri heimsókn var haldið í aðra góða til Kaupmannahafnar, nánar til Auju og Co í Ishøj þar sem við vorum gestir einn Sunnudagseftirmiðdag.  Þangað kom svo Ása frænka með stráka tvo, þá Sebastian og Benjamin, sem er fæddur á sama ári og Júlía.  Það var því gaman hjá þeim tveim :)  Að því loknu var okkur skutlað eins og konungbornum í litlu íbúðina hennar Guðnýjar systur, þar sem við gistum nóttina.  Það var vissulega ekki verið að spandera í fermetrana í þessari íbúð en hún var afar notaleg samt sem áður. Morguninn eftir  rölltum við á nærliggjandi leikvöll með Júlíu á meðan við vorum að bíða eftir því að Þorvaldur og fjölsk, kæmu að ná í okkur á 7 manna bílnum, Júlía fann sér þar strák til að leika sér við sem heitir Emil :)  Alltaf gaman fyrir okkur foreldrana að sjá þegar barnið nær svona góðu sambandi við aðra krakka.

Álaborg
Mynd ferðarinnar
"Ó nei!!" var líklega það fyrsta sem ég heyrði þegar Álaborgar familían mætti á svæðið, en það var Gabríel litli sem sagði þetta nánast linnulaust fyrstu mínúturnar :) Júlía og Gabríel, náðu svosem ekki mikið saman, en það er nú bara aldursmunurinn sem er þar að trufla held ég.  Við tók svo 5-6 tíma ferð til Álaborgar.  Fyrst var keyrt til Kalundborg, þar sem við fengum okkur að borða og biðum svo eftir ferjunni.  Ferjuferðin tók um 3 tíma og svo var keyrt í rúman klukkutíma til Álaborgar frá Arhúsum. Veðurspá var frekar slæm, eða rigning og 15-18 stiga hiti mest allan tímann, en það varð sem betur fer ekki svo slæmt í raun.  Þó var alls ekki of hlýtt.  Ég tók svo eftir því að eftir að við fórum eru framtíðarhorfur bara léttskýjað og 22-25 stiga hiti!!!  Ef það er ekki bara mjög týpískt, þá veit ég ekki hvað. Við fengum nokkra góða daga samt sem áður, þar sem ekki var of heitt en bara svona mátulegt. Okkur tókst að fara á ströndina, í dýragarðinn og Jumboland með börnin og það þótti sko langt frá því að vera leiðinlegt. Sjálf gerðum við vel við okkur í mat og drykk og fórum við Soffía meira að segja ein út að borða, líklega í síðasta skipti í langan tíma.Ég skellti mér svo í  go-kart með Þorvaldi og Stulla (sem er eiginmaður Valborgar, systur hennar Ástu), eftir það var okkur öllum svo boðið í höfðinlega matarveislu hjá þeim hjónum, sem búa ekki langt frá. Að því loknu fórum við þrír í bjórsmökkun niðri í miðbæ Álaborgar.  Það kvöld var afar vel heppnað og skemmtilegt. Ferðin heim til Görlitz tók svo um 13 tima, með misgóðum lestum, en sem betur fer var lengsti kafli ferðarinnar farinn með ICE lest, þar sem við fengum barnaklefa fyrir sex manns, og vorum þar alveg ein, á meðan margir þurftu að sitja á gólfinu :) Alger snilld að ferðast svona, en lestin sem tók okkur frá Berlín til Dresden var alger horror!  Við vorum með talsverðan farangur, og sú lest bauð ekki upp á neinn stað til að geyma hann, það voru því þröngir og afar óþægilegir 2 tímar.

Það var ótrúlega gaman að hitta litla bró og fjölskyldu.  Synd að það er svona langt á milli, annars myndi maður líklegast gera þetta oftar. Hérna hefur verið stikklað á stóru í ferðasögunni.  En til að glöggva og segja það sem ekki hægt er að segja með texta, þá eru komnar inn myndir frá þessari síðustu ferð fjölskyldunnar í bili (í núverandi mynd).

17.7.11

Sumarpásan

Við erum semsagt komin í sumarfrí og ætlum að njóta nokkurra daga í Svíþjóð og Danmörku.  Ítarlegur pistill verður settur hér inn eftir lok ferðarinnar þann 26.Júlí nk.
Ég er virkur á Google+ þannig að þeir sem vilja nýta sér það til að fylgjast með geta það að sjálfsögðu.




28.6.11

Sorgarferlið og framtíðin

Þá er svo komið að ég er búinn að sættast við það sem hér hefur verið að gerast! Það furðulega er, í mínum huga, hvað þetta hefur tekið stuttan tíma. Og ég þakka það blóðþrýstingslyfjunum. En ég er núna á síðasta stigi sorgarviðbragða, sem er "sátt", þó ég sé nú langt frá því að vera sáttur, þá er samt eitthvað í mér sem segir að þó þetta sé ekki eðlileg framkoma, þá sé það líklegast betra til lengri tíma litið, að bara slaka á og gera það sem mér er sagt. Hvort það sé eðlilegt að lúffa fyrir svona löguðu skal ég ekki segja, en ég þarf að vega og meta ýmislegt, sem ekki er mælanlegt. En það er t.d að launin eru nokkuð góð, öryggi og heilbrigðistryggingar fyrir alla fjölskylduna, fín íbúð og svo framvegis. Margfallt betra en Ísland, að frátöldu því að stórfjölskyldan er fjarri. Það eru í raun allt of margir þættir sem rugla kerfið og gera manni erfitt fyrir. Ég hef því sætt mig við að spila minna hlutverk í húsinu en mér finnst ég ætti að gera, og verð að vona, því samhliða að eitthvað betra sé á leiðinni. Svo forlagatrúar er ég nú venjulega ekki, en það er ekkert annað í boði að svo stöddu. Það er gott að upplifa svona frelsistilfinningu, tilfinninguna að manni sé alveg sama, það er dásamlegt! En oft endist hún þvímiður ekki nógu lengi. Næst tekur við, LÍN, skatturinn, sjúkratryggingarnar hérna úti, atvinnuleit, flutngingar og ég veit ekki hvað annað sem vekur kátínu!

Ég hef oft velt því fyrir mér hvort ég sé bara svona ótrúlega leiðinlegur og neikvæður einstaklingur, eða hvort ég lendi bara hreinlega allt of oft í neikvæðum og leiðinlegum aðstæðum? Það er afar erfitt að svara þessu, án utanaðkomandi álits, en ég hallast að því að aðstæður sér óhentugar. Margir gætu samt sagt að ég hafi hlotið og fengið að upplifa hluti sem flesta gæti aðeins dreymt um, og það gæti vel verið satt, en hvaða máli skipta þeir hlutir þegar þeir færa manni ekkert annað en það að hafa klárað þá? Kannski er ég bara svona vitlaus að kunna ekki að meta það sem ég á og hef (sem er ekki svo vitlaus skýring). En það er oft erfitt, þegar maður uppsker í kjölfarið ekki að maður hafi vissulega verið að gera eitthvaða sem er stórkostlegt, miklfenglegt og merkilegt. Þýskur sérvitringur að nafni Eckhart Tolle skrifaði merkilega bók sem nefnist "Að lifa í núinu", þessi bók er mjög merkileg og þörf lesning, en þegar maður nær ekki að innleiða boðskapinn í sitt eigið líf, skiptir það litlu máli. Ég held að þetta sé bara þvímiður aldurs- og reynslutengt. Þú munt ekki læra fyrr en þroskinn er til staðar, og þannig er það nú bara. Andlegur, líkamlegur eða guðlegur þroski er það sem maður þarf til að meðtaka svona lagað. Ég er opinn fyrir því og móttækilegur, en ég er bara ekki kominn þangað ennþá.

Framtíðin er því, sem alltaf, óskrifað blað, og lítið annað hægt að gera í daglegu lífi annað en að lifa því og halda áfram að bregðast við aðstæðum af eðlislærðri hvöt, og skynsemi. Annað er hreinlega ekki hægt að gera. Maður getur þvingað fram breytingu, eins og fíklarnir gera, en er það raunveruleg breyting? Vissulega bót á ástandi, en er það raunveruleg breyting? Kannski er einhver andlegur viðsnúningur með í för, en er breytingin verður að vera svo áþreifanleg og raunveruleg að engum dylst það annars mun það bara aldrei ganga upp.

Þakka viðlit þeirra sem hingað náðu í lestri :) Þangað til næst.......tchüssss

23.6.11

Weisses Rössl

Á morgun er frumsýning á "Hvíti Hesturinn", léttri óperettu sem gerist á samnefndu hóteli við Wolfgang vatn í Austurríki. Þetta er svona open-air sýning, og því hangir margt á veðrinu, við þurftum t.d að gera um klukkutíma hlé á æfingu í gærkvöldi vegna þess að ringdi svo mikið. Það er svo spáð rigningu næstu daga, og það verður gaman að sjá hvernig næstu 4 dagar verða, þar sem við erum að sýna á hverjum degi fram á Sunnudag.

Ég fer með hlutverk Sigismund Sülzheimer.  Það sem ég hef að syngja þarna er svosem ekki flókið eða erfitt, en er eitt þekktasta stefið úr þessu verki. Þessu fylgir svo auðvitað mikill dans, og það er í sjálfu sér svolítið skemmtilegt :)  Versta er að ég þarf enn og aftur að vera með skalla, sem er ótrúlega leiðinlegt og óþægilegt.  Hef velt því mikið fyrir mér hvort ég eigi ekki bara að raka allt af og spara mér mikinn tíma sem fer í sminkið.  En ég held ég láti það bíða í bili. :)

(Mynd: Nikolai Schmidt, www.fotokolja.de)

19.6.11

Jákvæða bloggið! nýja barnið :)

Við familían skelltum okkur til Berlínar þann 17.Júni, því það hittist einmitt þannig á að ég gat fengið frí þennan eina dag í æfingaferlinu.  Við áttum líka tíma í Berlín til að fara í nákvæma sónarskoðun vegna naflastrengs vandamálsins sem hugsanlega gæti verið mjög alvarlegt, og svo ætluðum við að hitta vini, versla skó á Júlíu og fara í fögnuð í ráðherrabústaðnum.

Það er skemmst frá því að segja að þetta var allt strikað út af listanum eftir þessa ferð :)

Sónarinn gekk vel og það er mikill fjársjóður fyrir okkur að hafa fundið þetta klínik, því fólkið sem vinnur þarna er afar vingjarnlegt og manni líður vel þarna.  Ólíkt aðstæðunum hérna í Görlitz.  Allt leit mjög vel útí skoðuninni og Hákon (læknir) sagði okkur að við þyrftum ekki að hafa frekari áhyggjur af þessu, barnið vex eðlilega og nóg blóðflæði er til barnsins þrátt fyrir aðeins eina slagæð.  Þetta var því mikill léttir.  Við erum því byrjuð að huga að nafni sem verður að vanda nokkuð erfitt mál, en það hlítur að hafast á endanum.  Við fengum einnig að vita kyn barnsins og það væri gaman ef gestir síðunnar myndur taka þátt í laufléttri skoðanakönnun hérna hægramegin á síðunni, bara svona til gamans :)

Til að hjálpa til við valið sýni ég ykkir hérna sónarmynd sem við fengum.  Mun skýrari en sú sem við fengum af Júlíu. Og gæti líklegast hjálpað þeim sem ekki þegar "finna það í beinunum" hverskyns þetta er nú :)