2.8.11

Rólegheit í Ágúst

Hér hefur nú verið frekar rólegt síðustu daga, við erum bara heima að dunda okkur.  Veðrið hefur ekki verið að gera annað en að ýta  undir heimveru hvort sem er (rigning, kuldi og rok).  Í dag er þó sól og vel heitt, loksins.

Mér tókst að hella mér í veikindi í fyrradag og er búinn að vera jafna mig á því síðustu tvo daga.  Ég hef varla getað sest við PSinn í leik :)  En nú líður mér bara þokkalega og er að ná fyrri styrk.  Soffía hefur það bara fínt á 8unda mánuði og er búin að vera dunda sér við að bera dót niður í geymslu, ryksuga, klifra upp á stóla til að taka til í skápum og svo mætti lengi telja.  Kemur mér svosem lítið á óvart, en svona er það bara.  Júlía er svo bara hress eins og venjulega og er klósett þjálfun komin á fullt, og hefur gengið vonum framar.  Aðeins 2-3 lítil slys síðustu daga, þannig að það er bjart framundan.

Í dag var svo tekið til í tölvuherberginu, og ég skil ekkert í því afhverju maður nær ekki og reynir ekki að halda þessu snyrtilegu, það er svo miklu þægilegra og skemmtilegra að vera hérna inni þegar svona er umhorfs.  Reyndar finnst mér alger synd að get ekki notað þetta stóra herbergi með besta útsýninu fyrir setustofu þar sem hægt er að setjast inn og lesa eða hlusta á tónlist.  Það vantar bara eitt herbergi í viðbót í þessa íbúð, það er nú bara þannig.

Svo lagðist ég í ótrúlega leiðinlegt verk, en það er að hringja í Sjúkratryggingarnar og Foreldraorlofssjóð.  Foreldraorlofsssjóðurinn ætti nú að ganga ágætlega að ég held, við fáum send einhver gögn sem við eigum að fylla út, easy peasy, en tryggingarnar verða annað mál!!!  Þetta er svolítið flókið mál því þeir hérna úti vilja vita hvar við vorum tryggð 6.Júlí til 18.Ágúst, og sannleikurinn er sá að við vorum tryggð á Íslandi.  En þegar ég flutti lögheimilið, þá var það gert afturvirkt, veit ekki alveg afhverju það var gert þannig, en svoleiðis er nú það.  Þannig að líklegt er að það verði að einhverju massívu vandamáli sem ekki á eftir að sjá fyrir endan á!   Skil ekki alveg hvernig svona lagað eltir okkur uppi?!?

Svona í öðrum fréttum þá hef ég að MJÖG VEL ígrunduðu máli, ákveðið að vera ekki lengur í Görlitz eftir næsta sumar.  Það er erfitt að taka svona ákvörðun án þess að vita hvað tekur við, því ég veit að ég á hér trygga vinnu til sumars 2013 allavega.  Ég get bara ekki boðið sjálfum mér og fjölskyldunni upp á þetta líf, og líklegt er að ég hætti alfarið söngstandi í þýskalandi.  Þegar ég skrifa þetta fyllist ég vissulega smá sorg, en þetta er bara ekki að gefa mér neina gleði lengur.  Það er gaman að syngja, ekki misskilja það, en allt í kringum bransann hérna er bara svo neikvætt og erfitt.  Þegar ég segi erfitt, þá á ég ekki við að stundum sé þetta erfitt og stundum frábært, heldur hefur nánast hver einasti vinnudagur síðasta ár verið mér kvöl og pína.  Að hluta vegna þess að ég er ekki nógu góður til að framkvæma það sem ég er beðin um, og að hluta vegna þess hvernig komið hefur verið fram við mig. Ég veit vel hvað ég kann og hef, og veit að ég er fullboðlegur í þessum bransa, en mér líður bara ekki vel í því sem ég er að gera og þá er það til lítils.  Að mæta vínnuna á hverjum degi og vita ekki hvort dagurinn verði góður eða slæmur.  Þegar ég var að vinna í tölvunum, þá vissi ég, áður en ég fór í vinnuna að ég myndi fá krefjandi og skemmtileg verkefni, og að ég hefði kunnuáttu og þolinmæði til að takast á við þau verkefni.  Jæja nóg um rólegan Ágúst í bili.

Nótið þess sem eftir lifir sumars :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli