Það má segja að sparnaður hafi bjargað okkur í bili. Ég á að vísu von á ágætis peningaupphæð vegna tónleika síðust helgar. En ákkúrat núna er bara allt tómt, fyrir utan 250 evrur í sparnað. Þetta er afar leiðinlegt ástand, en þvímiður sjálfskapað! Nú verðum við bara að reyna að þrauka í viku í viðbót, sem er ótrúlega langur tími. En svona er það nú bara.
Þann 18.Maí lét ég loka VISA kortinu mínu. Ég tók eftir 4 færslum sem ég kannaðast ekki við, færslurnar voru í sænskum krónum og töldu samtals um 100.þús krónur. Það kom mér verulega á óvart að sjá hvað ég skuldaði mikið miðað við að ég hef lítið sem ekkert notað kortið. Ég er því búinn að láta loka kortinu og þurfti líka að senda kortið til baka til Valitor. Ásamt kvörtun. Þetta hefur skapað möguleika á ákveðnu vandamáli í sumar. En ég á lestarmiða í sumar, og þarf að nota visakortið sem staðfestingu á kaupum! Engu máli skiptir þó ég get vel sannað hver ég er með persónuskilríkjum, ef ég er ekki með visa kortið gæti þetta orðið mikið vandamál. En ég vona ekki. Það er samt búið að greiða fyrir miðann, og ég sé fyrir mér að stórvandamál verði úr þessu. Það sem verra er er að við erum að fara í sumarfrí á þessum lestarmiða, og við fengum hann á fáránlegagóðu verði. 78 Evrur fyrir lestarferð fyrir okkur 3 til Kaupmannahafnar, það verður ekki mikið ódýrara en það. Við förum þann 12.Júlí og ætlum að vera í um 2 vikur. Byrjum á að dvelja í Malmö í nokkra daga og jafnvel eittvað í Köben. Síðan er ferðinni heitir til Álaborgar þar sem við ætlum að dvelja seinni vikuna. Þetta hangir auðvitað allt saman með því að Soffía verði í ástandi til að ferðast og að við þurfum ekki að vera í einhverjum skoðunum hérna á þessum tíma.
Á næstunni hefur mér verið boðið að syngja fyrir í húsi hérna nálægt, mig langar að gera það en það er verið að leita að tenór til að syngja aðalhlutverk í léttari kantinum. Sem er kannski ekki nákvæmlega fyrir mig, en ég held að það geti samt verið áhugvert að reyna, þar sem ég nenni ekki að vera hérna lengur. Vandamálið við þetta er að þeir eru að leita að tenór frá og með 1.September nk. Sem þýðir flutningar og vesen með lítið barn nú eða stress og vesen að bíða. En laun og möguleikar fyrir mig eru mun betri. Auðvitað er þetta ekki síðasta tækifærið sem mér býðst, en ég gæti trúað því að þetta eigi ekki eftir að ganga upp þrátt fyrir góðan vilja og löngun. Ég er að fá þetta í gegnum umboðsmann konu sem ég þekki frá námskeiðunum með David Jones hér í þýskalandi. Oft eru þetta bara sambönd og aftur sambönd. Þessi umboðsmaður hringdi í mig og sagðist sjaldan hafa heyrt svona fallega tenórrödd og var viss um að hún gæti komið mér í eitthvað. Þetta er víst mjög krítisk kona og líka mjög góður umboðsmaður, þannig að þetta gæti nú verið verra. Hér er allavega allt í farvegi og þetta verður bara að gerast þegar það gerist.
Sumarið er komið með tilheyrandi hita og þrumuveðri þess á milli. Lífið gæti ekki verið betra nema ef við ættum risastórt heimili og allt of mikið af peningum :)
22.5.11
15.5.11
Leyfðu mér að vera fullur áfram!!
.....svo hljóðar síðasta setning tenórsins í sinfóníunni "Das Lied von der Erde" eftir Mahler, sem lesendum þessa bloggs er líklegast orðið ljóst, að ég var að syngja um helgina. Það er væri líklega lygi ef ég segðist hafa hlakkað til að syngja þetta, því líklegast hef ég sjaldan fyllst jafnmiklum kvíða og fyrir þessa tónleika. Það sem bjargaði þessu öllu saman var að stjórnandinn Howard Griffiths er algert gull af manni, og vinnur virkilega vel með söngvurum. Svo er auðvitað hljómsveitin æðisleg. Þetta er í sjöunda skipti sem ég syng með þeim og það er alltaf jafn gaman. Fyrstu tónleikarnir voru á Föstudaginn, og gengu nú ekki alveg áfallalaust fyrir sig, þó ekki svo slæmt að upplifun fólks hefði verið neikvæð. Það eru held ég afar fáir sem geta sungið þetta og skorið í gegnum háfaðan í hljómsveitinni og ég held ég hafi ætlað mér fullmikið þar sem ég gaf allt í botn, oft á tíðum meira en ég réði við. Það varð til þess að eftir fyrsta ljóðið vissi ég hreinlega ekki hvort ég myndi ná að klára þetta, því tilfinningin í hálsinum var eins og allt sem þarf var væri horfið. Mjög óþægilegt, og ég hef sjaldan verið jafn hræddur í svona aðstöðu. En það gekk alltsaman án vandamála. Næsta dag vaknaði ég raddlaus af kvefi og óttaðist þá auðvitað um sýningu kvöldsins! En það gekk allt upp líka og hljómsveitin stillti sig í hóf í þetta skiptið, þannig að ég gat aðeins minnkað kraftinn. Ég fann fyrir gífurlegri raddþreytu í síðasta ljóðinu, og náði að klára þetta á kraftinum einum saman, held að það hafi verið fátt í þeim flutingi mínum sem kallast má fágað :) Það gladdi mig einnig mjög að sjá sendiherra okkar Íslendinga meðal áhorfenda. Ég hef aðeins kynnst þeim manni í gegnum tónleikahald mitt hér í þýskalandi og hann er mikill áhugamaður um tónlist og reynir að sækja sem flesta viðburði. Hann kaus að koma frekar á tónleika hjá mér heldur en að horfa á Eurovision :)
Konurnar á heimilinu dvöldu á meðan í Berlín hjá Telmu og Emilíu, þar sem þær vinkonurnar Júlía og Emilía léku sér eins og þær hefðu aldrei gert annað. Þær fóru í dýragarðin, þar sem margt var að sjá og upplifa. Maður verður glaður sem foreldri að geta boðið barninu upp á allar þessar upplifanir sem verða vonandi seinna ánægjulegar minningar. Bara verst að ég er ekki hluti af þessum minningum því ég var að vinna fyrir peningunum til að gera þetta allt mögulegt! En svona er það nú bara, maður fórnar einu fyrir annað á altari lífsins, takk fyrir það.
Nú tekur við stressandi skattaskýrslugerð, fyrirsöngur og æfingar á "Im Weisses Rössl" hefjast. Það er því langt frá því að vera komið eitthvað frí hér. En búið er að ganga frá miðakaupum til Danmerkur í sumar þegar sumarfríið hefst hérna í húsinu. Þar er ætlunin að hitta á ættingja og reyna að slaka aðeins á áður en slökun heyrir algerlega sögunni til næstu árin.
Í dag er rigningarlegt um að litast, og hitastigið um 14°C. Ég finn mikin mun á því að vera hér í Görlitz, og svo Frankfurt, en þar var gífurlega mikill raki og frekar óþægilegt. Hérna er bara svallt og þurrt, sem er nokkuð mikill kostur, sérstaklega á nóttunni :) Svo er bara nokkuð góð spá næstu daga, þannig að allt er gott.
Jæja meira var það ekki í bili, vona að þetta sé ekki of samhengislaust hjá mér, þar sem ég á það stundum til að nenna ekki að lesa yfir, eins og núna :) Það hefur aldrei liðið eins langur tími milli blogga hjá mér síðan við fluttum út og það hefur auðvitað sínar ástæður eins og annað. Nýjar myndir af ungfrúnni í eru væntanlegar, ég hendi þeim hér inn við tækifæri.

1.5.11
Austurþýskaland og 20 vikur
Það er ekki alltaf auðvelt að búa í þýskalandi, þó það sé vissulega ekki sérstaklega erfitt heldur, en eins og annarsstaðar er margt hérna sem er verulega pirrandi og oft á tíðum þannig að maður bara hreinlega skilur það ekki. Það er kannski helst að nefna reykingar, hér virðist sem svo að nánast annarhver maður reyki, það heyrir til undantekninga, þegar ég geng til vinnu á hverjum degi, að ég lendi ekki á eftir einhverjum sjúklingi úti á götu, og þarf þá annaðhvort að auka hraðan talasvert til að þurfa ekki að anda að mér óumbeðnum reyk nú eða fara aðra leið eða hægja verulega á mér. Umburðarlyndi mitt gagnvart reykingum er ekki að aukast við það að búa hérna, svo mikið er víst.
Um daginn átti ég von á smá pakka frá útlöndum, og þar sem virði vörunnar var ekki skráð á pakkann, því ég fékk vöruna án þess að greiða fyrir hana, þá var hann að sjálfsögðu stoppaður í tollinum. Og ég átti þess eiginlega bara kost að sækja hann. Sem þýddi lestarferð sem kostaði mig 10Evrur og svo um 45mín labb hvora leið. Heilsbót, en ekki mjög einfallt. Ég átti reyndar von á meira veseni við að leysa pakkann út, því virði vörunnar var hvergi skráð. Ég sagði þeim einfaldlega hvað þetta kostaði og þeir tóku það bara gilt, sem kom mér verulega á óvart.
Hér er mikið að gerast næstu tvær vikurnar eða svo, lokaæfingar fyrir La traviata, mjög erfiðir tónleikar, með tilheyrandi æfingum. Ég er kominn á jaðar þess sem ég þoli, eins og venjulega. Mér líður í raun eins og allt sé að hrynja í kringum mig og að ég ráði ekki neitt við neitt. Ekki bætir svo úr að ég virðist vera að fá kvef eða einhver leiðinda veikindi, sem er svosem ekki skrítið þannig séð, þar sem tveir söngvarar hér í húsinu eru þegar orðnir veikir, og það er ekkert smá taugatrekkjandi að vita af því svona stuttu fyrir stóra og mikilvæga tónleika.
Hér hefur veður farið kólnandi og er framtíðarspáin í raun ekkert svakalega spennandi, þannig séð. Hitinn í kringum 10-13 stig og sól. Það er frekar kalt verð ég að segja.
Af barnamálum er það að frétta að við erum búin í 20 vikna sónar og þar leit allt vel út nema eitt atriði sem gæti verið slæmt en gæti líka ekki skipt neinu máli. Þannig að Soffía þarf að fara í regluleg tékk fram að fæðingu. Einnar slagæðar naflastrengir hafa verið tengdir við hjartagalla í börnum, en það á að sjást strax í ítarlegum sónar, sem við einmitt fórum í, allt leit vel út. Það þarf samt að fylgjast með hvort barnið fái nóg næringu og vaxi eðlilega. Ekki alveg það sem vantaði upp á stressið, en svona er það nú bara.
Hér er lokasýning á Carmen í kvöld, mikið er ég nú glaður að vera laus við það. Einnig er lokasýning á Fledermaus næstu helgi, sem ég mun hugsanlega fagna með kampavíni!! Djöfull verð ég feginn að losna við það hlutvek úr efnisskránni! Ég skrifaði bréf til listræns stjórnanda við húsið og lýsti í raun frati á þær ákvarðanir sem hér eru teknar, allavega hvað mig varðar og óskaði eftir svörum um það afhverju ég er ekki að fá stærri hlutverk? Ég fékk svar í gær og þeir vilja hitta mig í smá óformlegu spjalli, því listrænn stjórnandi ræður í raun ekki miklu en ég gæti hugsanlega fengið að vita eitthvað um mína stöðu hér við húsið.
Meira var það ekki í bili, góðar stundir.

24.4.11
Les Pâques og sumar
Ungfrúin fékk svo sín páskaegg í morgun og var auðvitað alsæl með þau. Hún er búin að vera mjög dugleg og þolinmóð. Þegar pakkinn kom, þá var henni tilkynnt að hún fengi á egg á Sunnudaginn. Síðan þá hefur hún verið að minnast á þetta af og til, og tiltekur alltaf sérstaklega Sunnudag í því tilviki, þó hún viti ekkert hvað Sunnudagur er :)
18.4.11
20 vikur, ræktun, skatturinn og sumarið
Nú styttist í 20 vikna sónarinn vinsæla, og ætlunin er að þessu sinni að fá að vita um hvort kynið er að ræða. Ætlunin er einnig að halda þeim upplýsingum leyndum fyrir fjölskyldu og vinum :) Reyndar á það allt eftir að koma í ljós. Og líklegra en ekki að þessu verði blaðrað fljótlega á einhverjum miðlum eða öðrum fjarskiptatækjum.
S&J eru mættar á svæðið, ungfrúin hefur vissulega bætt við sig í þroska síðan ég sá hana síðast. Hún talar mjög mikið og syngur einnig mjög mikið, sem er gaman að heyra. Mikil lífsgleði í gangi og líklega gæti maður lært sitthvað af þeirri litlu. Það er búið að taka smá tíma að koma svefnmálum í samt lag, en það virðist nú allt vera komið núna. Ég sef hinsvegar verr, þá á ég við að gæði svefnsins virðast hafa minkað eitthvað. En það virðist nú líka vera jafna sig til hins betra. Eftir fréttir af heilsufari mínu, hefur reynst afar auðvelt að hætta áfengisdrykkju, bjór heyrir nú sögunni til og rauðvín tók við í einhvern tíma. En ég finn bara afar litla löngun í þetta og það virðist halda nokkuð vel. Þó veit ég ekki alveg hvað ég á af mér að gera á kvöldin, því þetta var komið í svo mikin vana. En sódavatn skilar sínu og vel það.
Við ákváðum að prufa að planta nokkrum fræjum af spínati og steinselju í þartilgerðan ílangan blómapott(veit ekki hvort slíkt ber eitthvað annað heiti). Það verður áhugavert að sjá hvort eitthvað komi útúr því. Hér sárvantar ferskt spínat, það er hvergi til hér í búðum. Skilst að það sé að mestu selt frosið í þýskalandi!!
Nú fer að styttast í að skila þurfi skattaskýrslu hér á bæ. Það er fínt að fá að gera það mitt í öllu stressinu, og á tungumáli sem þjóðverjar sjálfir eiga oft erfitt með að skilja. Eins og gefur að skilja veldur þetta mér talsverðu stressi, en einhverra hluta vegna finn ég ekki þennan óþægilega óútskýranlega kvíða sem ég er vanur. Skýringar er líklegast að leita í því að ég er á lyfjum sem lækka blóðþrýsting og er hættur að drekka áfengi! En maður veit aldrei!
Sumarið er enn á leiðinni, og fengu þær stöllur fyrsta almennilega sumarveðrið í dag, en það var mjög hlýtt og gott í dag og því var tekinn smá túr niður í bæ, þar sem skoðuð var nýja og stórglæsilega H&M verslunin á staðnum. Það er afar langt síðan ég hef séð H&M af þessari stærðargráðu. Þetta gladdi líka konuna á heimilinu meira en orð fá lýst, því nú er komin "óléttudeild" :)
Annars er það komið héðan í bili, komnar eru inn myndir á myndasvæðið hennar Júlíu, frá Íslandsför, og 2-3 myndbönd frá sömu för.
Líklegt þykir að næsta blogg verði um páska, sem að þessu sinni verða fátæklegir, því ég er að vinna! Annars hefði stefnan verið tekin eitthvað útúr borginni.
S&J eru mættar á svæðið, ungfrúin hefur vissulega bætt við sig í þroska síðan ég sá hana síðast. Hún talar mjög mikið og syngur einnig mjög mikið, sem er gaman að heyra. Mikil lífsgleði í gangi og líklega gæti maður lært sitthvað af þeirri litlu. Það er búið að taka smá tíma að koma svefnmálum í samt lag, en það virðist nú allt vera komið núna. Ég sef hinsvegar verr, þá á ég við að gæði svefnsins virðast hafa minkað eitthvað. En það virðist nú líka vera jafna sig til hins betra. Eftir fréttir af heilsufari mínu, hefur reynst afar auðvelt að hætta áfengisdrykkju, bjór heyrir nú sögunni til og rauðvín tók við í einhvern tíma. En ég finn bara afar litla löngun í þetta og það virðist halda nokkuð vel. Þó veit ég ekki alveg hvað ég á af mér að gera á kvöldin, því þetta var komið í svo mikin vana. En sódavatn skilar sínu og vel það.
| Ekki langt að sækja garðyrkjugenið :) |
Nú fer að styttast í að skila þurfi skattaskýrslu hér á bæ. Það er fínt að fá að gera það mitt í öllu stressinu, og á tungumáli sem þjóðverjar sjálfir eiga oft erfitt með að skilja. Eins og gefur að skilja veldur þetta mér talsverðu stressi, en einhverra hluta vegna finn ég ekki þennan óþægilega óútskýranlega kvíða sem ég er vanur. Skýringar er líklegast að leita í því að ég er á lyfjum sem lækka blóðþrýsting og er hættur að drekka áfengi! En maður veit aldrei!
Sumarið er enn á leiðinni, og fengu þær stöllur fyrsta almennilega sumarveðrið í dag, en það var mjög hlýtt og gott í dag og því var tekinn smá túr niður í bæ, þar sem skoðuð var nýja og stórglæsilega H&M verslunin á staðnum. Það er afar langt síðan ég hef séð H&M af þessari stærðargráðu. Þetta gladdi líka konuna á heimilinu meira en orð fá lýst, því nú er komin "óléttudeild" :)
Annars er það komið héðan í bili, komnar eru inn myndir á myndasvæðið hennar Júlíu, frá Íslandsför, og 2-3 myndbönd frá sömu för.
Líklegt þykir að næsta blogg verði um páska, sem að þessu sinni verða fátæklegir, því ég er að vinna! Annars hefði stefnan verið tekin eitthvað útúr borginni.
| Fyrsta sápukúlubaðið, nú kemst ekkert annað að :) |
10.4.11
Að vera sigurvegari í einhverju!
Þriðja sýning á Candide var í dag kl 15:00 og það gekk svosem ágætlega, en ég hef nú svosem sýnt betri takta á sviðinu. Einn tónn hjá mér gekk ekki eins og ég hefði óskað, og það er alltaf ákveðið tap, maður verður einfaldlega að vera fullkominn alltaf í þessum bransa, annars verður ekki mikið úr manni. Ég fór að sjá sýningu frá Metropolitanóperunni í gær með tenórnum Juan Diego Florez, sem söngkennarinn minn kallar "eggjalausan" :), hann var vægast sagt stórkostlegur, og það eru fáir sem geta sungið það sem hann er að syngja. EN á móti kemur að hann á ekki um margt að velja af því allra flottasta og þekktasta. Söngvararnir sem voru að syngja þarna eru vissulega á toppnum og á svipuðum aldri og ég! Þetta fær mann til að hugsa að baráttan um að verða einhverntíma eitthvað sé töpuð! Heimskuleg hugsun en læðist alltaf að mér af og til og gerir mér lífið leiðara.
Hér áttum við Gunnar saman ánægjulega viku saman að spila PS3 og náðum að klára tvo stóra leiki á þeim tíma, og ég hef sjaldan sungið betur! Ég fór því að velta því fyrir mér í dag hvort það að "berjast" eins og maður gerir í þessum leikjum og hafa alltaf betur eftir mikla vinnu geti haft það að verkum að geðslagið fari ansi vel upp á við? Ég held að það sé margt til í því, mér fannst ég ósigrandi áður en ég steig á svið og hef sjaldan verið eins öruggur með sjálfan mig! Mjög þægileg tilfinning sem mig langar að eiga meira af, en er það raunhæft? Er það einhver langtímalausn, að spila tölvuleik til að koma sér í baráttuástand? Það gæti verið það. Sú lausn kostar vissulega um 300 Evrur + tölvuleikir, sem er reyndar hægt að leigja hérna ekki svo dýrt. Ég held að þetta fái nú að fara í salt í dágóðan tíma, ég held ég muni svosem ekki hafa tíma fyrir þetta, en tilfinningin var verulega góð. Natural high....það er ef skilgreining nær yfir PS3 :)
Nú eru kona og dóttir að koma aftur til mín á morgun. Það verður gaman að fá þær aftur, sumarið að koma og allt byrjað að blómstra. Það eru því vonandi ánægulegir tímar framundan, þrátt fyrir stærsta kvíðahnút sem ég hef nokkurntíma fundið fyrir tónleikum sem ég þarf að syngja í Maí.
Að lokum langar mig að deil með ykkur litlu myndbandi af krónprinsessunni á hestbaki :)
https://picasaweb.google.com/egilsdaughter/LitlaHestakonan#5593922532834627154

3.4.11
Candide, sumarið og PS3
Í gær var frumsýnt verkið Candide eftir Leonard Bernstein, auðvitað með þýskum texta! Ég stóð mig bara vel og er nokkuð ánægður með þetta. Þó ekki með það hvað það virðist vera alltaf erfitt að muna texta, en það reddaðist einhvernvegin án mistaka í þetta skiptið sem er gott. Það getur verið pirrandi þegar velgengni á vinnustaðnum er eitthvað sem maður getur bara vonast eftir, en ekki beint unnið fyrir.
Hér má segja að vorið sé löngu komið. Frá síðasta bloggi hefur aldeilis snarhitnað, og í morgun sá ég hæstu tölur á mælinum sem ég hef séð á þessu ári. 18°C takk fyrir kl 10 um morgun :) Þetta kemur mér einhvernveginn alltaf jafn mikið á óvart og vekur alltaf upp jafnmikla gleði. En hitinn er búinn að vera í kringum 15 gráðurnar síðustu 4-5 daga, og það er ekki hægt að segja annað en að með sólinni kemur aukin gleði. Þó mikið hafi verið stressið síðustu daga. Næst hefjast svo æfingar fyrir La traviata en þar leik ég stóran þátt, en þvímiður ekki í sólóhlutverki, heldur er mikið um svokölluð "ensambles", þannig að það má eiginlega segja að ég sé í kórnum!
Ég er alveg að verða bilaður á ástandinu hérna við húsið. Eins og ég hef áður sagt frá hef ég verið að óska eftir því að ég fá stærri hlutverk við húsið, sem hefur verið mjög erfitt að gera fyrir mig. En það hefur leitt af sér að þeir hafa sagst vilja hlusta á mig til að meta það!!! Bíddu nú við, ég veit ekki betur en ég sé búinn að vera syngja fyrir þetta lið í heilt ár!!!!! Þeir vilja semsagt í raun annan fyrirsöng þar sem ég syng einhverjar aðalhlutverk! Ég er heyrði svo frá dramaturg, svokölluðum, hér í gær sem sagði mér að þeir vildu að ég syngi hlutverk Bürgermeister Schneck í Der Vogelhändler, sem kemur á næsta ári, fólki til upplýsinga, þá er þetta eitt af minnstu hlutverkunum í stykkinu!!! Af þremur tenórhlutverkum sem eru í boði fékk ég það langminnsta, ég var í raun búinn að sætta mig við að taka það næst minnsta því það er svosem ágætis hlutverk, þó það sé ekki aðalhlutverk. En þeir virðast ætla að ráða gestasöngvara í hin tvö hlutverkin! Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta!! Þetta er ekki til þess fallið að auka ánægju mína í starfi, nú eða gefa mér einhverja von fyrir framtíðina, en svona er þetta bara. Það eina sem ég get huggað mig við er að ég er næst launahæsti söngvarinn við húsið :) Það er þó búið að segja mér að þeir vilji að ég læri aðalhlutverkið bara til öryggis, þannig að það kann svosem eitthvað að gerast þar. En í grunninn er þetta samt mjög særandi fyrir mig og ég á bara ekki til eitt einasta orð til að lýsa vanþóknun minni á þessu skítaliði sem hér stjórna.
Að öllu jákvæðari fréttum: Gunnar vinur minn kíkti hér í heimsókn á Föstudaginn og ætlar að vera héna í nokkra daga, hann er þegar búinn að kíkja á tvær sýningar, og við spilum tölvuleiki þess á milli :) Fyrir valinu varð fyrst "Army of Two" sem er afar hressandi leikur þar sem tveir geta spilað í einu, sem er alltaf gaman :)
Svo á ég von á óléttu konunni minni og fjörugu dótturinni þann 11.Apríl, það er því margt að hlakka til.
Ég sendi sumarstrauma til allra komust hingað í lestri, og vona að næstu dagar verði ykkur góðir. Þangað til næst..

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)