S&J eru mættar á svæðið, ungfrúin hefur vissulega bætt við sig í þroska síðan ég sá hana síðast. Hún talar mjög mikið og syngur einnig mjög mikið, sem er gaman að heyra. Mikil lífsgleði í gangi og líklega gæti maður lært sitthvað af þeirri litlu. Það er búið að taka smá tíma að koma svefnmálum í samt lag, en það virðist nú allt vera komið núna. Ég sef hinsvegar verr, þá á ég við að gæði svefnsins virðast hafa minkað eitthvað. En það virðist nú líka vera jafna sig til hins betra. Eftir fréttir af heilsufari mínu, hefur reynst afar auðvelt að hætta áfengisdrykkju, bjór heyrir nú sögunni til og rauðvín tók við í einhvern tíma. En ég finn bara afar litla löngun í þetta og það virðist halda nokkuð vel. Þó veit ég ekki alveg hvað ég á af mér að gera á kvöldin, því þetta var komið í svo mikin vana. En sódavatn skilar sínu og vel það.
| Ekki langt að sækja garðyrkjugenið :) |
Nú fer að styttast í að skila þurfi skattaskýrslu hér á bæ. Það er fínt að fá að gera það mitt í öllu stressinu, og á tungumáli sem þjóðverjar sjálfir eiga oft erfitt með að skilja. Eins og gefur að skilja veldur þetta mér talsverðu stressi, en einhverra hluta vegna finn ég ekki þennan óþægilega óútskýranlega kvíða sem ég er vanur. Skýringar er líklegast að leita í því að ég er á lyfjum sem lækka blóðþrýsting og er hættur að drekka áfengi! En maður veit aldrei!
Sumarið er enn á leiðinni, og fengu þær stöllur fyrsta almennilega sumarveðrið í dag, en það var mjög hlýtt og gott í dag og því var tekinn smá túr niður í bæ, þar sem skoðuð var nýja og stórglæsilega H&M verslunin á staðnum. Það er afar langt síðan ég hef séð H&M af þessari stærðargráðu. Þetta gladdi líka konuna á heimilinu meira en orð fá lýst, því nú er komin "óléttudeild" :)
Annars er það komið héðan í bili, komnar eru inn myndir á myndasvæðið hennar Júlíu, frá Íslandsför, og 2-3 myndbönd frá sömu för.
Líklegt þykir að næsta blogg verði um páska, sem að þessu sinni verða fátæklegir, því ég er að vinna! Annars hefði stefnan verið tekin eitthvað útúr borginni.
| Fyrsta sápukúlubaðið, nú kemst ekkert annað að :) |
