7.11.10

2 frumsýningar, djúpsteiking og áfram heldur lífið

Frá síðasta bloggi er ég búinn að djúpsteikja allt sem hugurinn girnist, djúpsteikti fisk, franskar, laukhringi, basil, fyllta sveppi og mars. Núna held ég að ég sé kominn í djúpsteikingapásu, en það verður að segjast eins og er að þegar kemur að því að hafa franskar með mat, þá verða þær alltaf djúpsteiktar hér eftir, það er bara fáránlegt hversu miklu betur þær smakkast eftir djúpsteikingu!

Ég er núna búinn að frumsýna tvær sýningar í viðbót í Görlitz, sem þýðir að frumsýningar síðan í ágúst eru nú komnar í 5 stykki (6 ef talin er með sýningin í sumar). Þá er bara ein frumsýning eftir fram að jólum og þá á held ég að maður sé orðin góður :)
Í gær var verið að sýna Tiefland eins og ég hef áður sagt frá, og það gekk svosem stóráfallalaust fyrir sig, en ég skar mig á einhverju á sviðinu sem varð til þess að það blæddi og blæddi úr puttanum á mér, ég taldi þetta ver gerfiblóð sem var í notkun á sviðinu á sama tíma og hugsaði því ekki mikið um það, og þurrkaði það einfaldlega af, en skömmu síðar var það komið aftur, þetta var ansi súrrealískt, þar sem ég hafði ekki hugmynd um hvað var að gerast. En þetta held ég hafi nú ekki sést mikið úr sal. En það verður samt einhver að þrífa þetta úr hvíta dúknum og servíettunum á morgun :) Á föstudag var ég að syngja ítalska söngva fyrir fullu húsi ásamt kollegum mínum og það gekk bara nokkuð vel, var allavega stórskemmtilegt. Ég er ekki alveg búinn að ná mér af þessum helvítis hósta sem hefur verið að plaga mig, og það er þvímiður aðeins að taka sinn toll af röddinni sem er óþolandi.
Nú tekur við létt hvíld með einstaka músíkæfingum fyrir jólatónleikana og Candide sem er ekki frumsýnd fyrr en 2.apríl! Þannig að ég næ vonandi að jafna mig alveg.

Hér reynum við að spara í hvívetna þessa dagana til að eiga nú efni á jólunum og vorum komin með smá pening í sparnað, en þá kom auðvitað bakreikningur frá fyrri leigjanda okkar í Berlín, þar sem var verið að reikna saman hita, vatn og eitthvað fleira sem er alltaf reiknað eftir á, við þurftum semsagt að borga rúman helming af sparnaðinum okkar í þetta helvíti, það er alveg magnað hvað er hægt að eyðileggja fyrir manni með einhverju svona rugli. EN svona er það bara, áfram heldur þetta stórkostlega líf.

Júlía í nærmynd
Ungfrúin tók allt í einu upp á því á einum degi að fara mynda setningar, 3-4 orð eða fleiri í einni setningu, það er ótrúlega fyndið að heyra hana raða saman orðum á ótrúlega rökréttan hátt, og með fullum skilningi, hún er líka farin að nota orð sem við notum ekki mikið, þannig að hún er líklega að taka það úr barnaefninu. Við reynum að kenna henni smá þýsku með, en það er ekki ennþá komið í fulla notkun, hún segir stundum autobíll og zuglest. Hún er líka byrjuð að syngja, og það er ótrúlega gaman, reyndar byrjaði hún að raula eitthað fyrir þó nokkru síðan, en það var allt frekar mónótón, en núna er hún farin að syngja með öllu því sem tilheyrir. Við fórum í búðina um daginn og þar var Bubbi byggir dagatal og hún fór að syngja byrjunar stefið aftur og aftur með réttum tónum. Pabbinn var afar stolltur :)
Hún á það líka til taka sængina sína og koddann og leggja sig á grjóthörðu gólfinu, maður trúir því ekki beint að henni líði vel þannig, en þannig getur hún legið heillengi að "hvíla sig". Hún er reyndar orðin aðeins leiðinlegri í búðarferðum, en við höfum passað okkur vel á því að kaupa aldrei neitt handa henni í búðinni. Ef hún fær á annað borð nammi, þá er það hérna heima. Ég get bara vona að það sé til góðs :) En hún hefur tekið svona öskur/frekjukast í búð, og eins fyndið og klassískt það er nú, þá getur það verið pínulítið pirrandi. EN svo bætir hún það allt upp með því að kveðja pabba sinn á hverjum degi þegar hann fer í vinnuna með því að kyssa og knúsa, og segja bless bless og nótt (góða nótt).

1.11.10

Tiefland, Quarkbällchen, myndir og tíminn

Þá styttist óðum í frumsýningar á O sole mio-konsertinum og þýsku óperunni Tiefland. En hvorutveggja á sér einmitt stað næstu helgi. Sem fyrr er haft mikið fyrir því að breyta útliti mínu og ekki alltaf til hins betra, en að þessu sinni er ég bara nokkuð sáttur við breytinguna :)
Þessa vikuna eru því stífar æfingar kvölds og morgna, og lítil hvíld fyrir röddina sem ég þarf ákkúrat á að halda núna sökum helvítis hóstans sem ég er búinn að vera með í tæpa viku. Þetta virðist vera að skána, eða allavega er þetta hætt að trufla röddina eins og það gerði þannig að ég get sungið en betra væri að fá hvíld. Það góða sem kemur út úr þessu er að ég er búinn að fá upplýsingar um hin og þessi lyfin sem eiga að vera voða góð fyrir söngvara :)

Í dag prufaði ég svolítið sem ég hef alltaf ætlað mér og alltaf langað til að gera, en það er að djúpsteikja eitthvað :) Það sem varð fyrir valinu voru svokallaðir Quarkbällchen, en þeir eru kannski hvað líkastir ástarpungunum svokölluðu. Það má með sanni segja að djúpsteiking er nákvæmlega eins einföld og hún lítur út fyrir að vera. Afraksturinn bragðast vel og verður líklega sitthvað prufað í djúpsteikingu næstu misserin. M.a djúpsteikt mars í orly, fiskur og franskar og svo framvegis.

Við fórum á vetrartíma hérna í gær og erum nú komin aftur einum tíma á undan Íslandi. Það gekk að sjálfsögðu ekki áfallalaust fyrir sig því ungfrúin vaknaði uppúr 6:30 hér í morgun, sem vakti sérstaka kátínu hjá mér þar sem ég var á Píanóaðalæfingu í dag. Hún gekk reyndar ágætlega en ég finn að þegar ég er ekki búinn að hvílast þá kemur leiðinlegur einbeitingarskortur inn sem skemmir fyrir mér. En svona er það nú bara.

28.10.10

Sveiflur og þétt dagskrá

Nú eru hafnar á fullu æfingar fyrir þýsku óperuna Tiefland sem frumsýnd verður eftir viku. Fyrsta æfing var alger hörmung fyrir mig og ég fékk skammir fyrir. Ekki verðskuldaðar samt sem áður, en svona er þetta víst í þessum bransa. Ég tók þetta afar nærri mér, eins og FB vinir hafa eflaust tekið eftir. Þegar maður er búinn að leggja hart að sér og fá svo skammir fyrir að vera illa undirbúinn sökum þess að ég er með mjög flóknar sviðshreyfingar og get ekki vel gert hvorutveggja í einu sérstaklega þegar er bara búið að fara yfir þetta tvisvarsinnum!!! Ég sagði auðvitað ekkert um það, bara gleypti það sem að mér var rétt og mætti svo mun betri daginn eftir. Taktlega er þetta ekki auðveld tónlist, og með flóknum sviðshreyfingum þar sem ekki er auðvelt að horfa alltaf á stjórnandann. Ég er ekki að koma með afsakanir, heldur einungis að setja fram staðreyndir :) Í dag voru svo fyrstu æfing með hljómsveit og ég fékk ekki eina gagnrýni fyrir það, sem er afar gott. En núna er ég líka búinn að læra hreyfingarnar og þá verður þetta allt einfaldara.

Í næstu viku er ég að frumsýna tvær sýningar sem verður mjög erfitt, á föstudag er tónleikar með ítalskri tónlist, sem er reyndar afar skemmtilegt, en ég ef þurft að læra 3 erfiðar aríur á stuttum tíma, reyndar lög sem mig hefur alltaf langað að læra en aldrei gefið mér tíma til, þannig að það er í fínu lagi. Næsta vika er svo undirlögð í æfingum fyrir Tiefland, og líklega þessa tónleika daginn áður. Á morgun er svo My Fair Lady og á laugardag er Carmen, þannig að þetta er nokkuð þétt í augnablikinu. Það sem gerir þetta aðeins meira stressandi en það þarf að vera, er að ég er kominn með einhvern skíthósta í hálsinn sem gerir það að verkum að ég er mjög sár og það vantar hæstu nóturnar mínar, þetta er líklegast tilkomið vegna þess að ég er að hjóla hér í miklum kulda og ég finn hvernig það brennur í hálsin. Ég fór svo til læknis í dag og fékk þar sýklalyf og hóstastillandi. Væri ekki fyrir sönginn myndi ég að sjálfsögðu ekki vera að eyða tímanum mínum og læknanna í þessa vitleysu, en nú er þetta vinna en ekki hobbý og því þarf ég að passa mig betur en áður.

Júlía er á afskaplega skemmtilegu tímabili núna, yfirleytt alltaf kát og glöð. Hún blaðrar alveg helling og er farin að byrja að mynda 2 orða setningar eins og: "takk (fyrir) matinn", "hátt (uppí)geim", "pabbi vinna" os frv, það er ótrúlega gaman að fylgjast með því hvað þetta gerist hratt. Það er erfitt að trúa því að núna fer hún að bursta tennurnar, svo er lesin stutt bók, og svo er hún bara lögð í rúmmið og þar við situr. Það er ekkert vælt eða eitthvað vesen, bara einfallt og ótrúlega þægilegt, við Soffía getum nú notið rólegra kvöldstunda eins og við gerðum fyrir um 2 árum síðan, og það er afskaplega þægilegt. Það liggur við að maður vilji aldrei losna við Júlíu af heimilinu, það er eitthvað svo þægilegt að vita af henni og fylgjast með henni þroskast og vaxa. Við erum sannarlega í forréttindahópi að hafa get leyft okkur að vera heima hjá henni alla hennar æfi. Það er svo bara að sjá hvaða langtíma áhrif það hefur, ég trúi ekki öðru en að áhrifin verði góð.

Jæja best að fara horfa á einhvern góðan þátt áður en maður líður inn í draumlandið. Góðar stundir.

23.10.10

Furðulegt, 11.ár, kuldi og kátína

Það má með sanni segja að ég hafi verið að upplifa furðulega hluti á síðust 2 vikum. Ég hef hingaðtil ekki verið að blogga eitthvað um það vegna þess að ég skildi ekki og bjóst ekki við að þetta væri eitthvað sem myndi endast en svona er það nú bara. Það sem ég hef verið að upplifa er ákkúrat engin löngun í áfenga drykki, bara ákkúrat ekki neitt. EIns og ég hef áður sagt frá, þá var ég nánast farinn að hafa áhyggjur af drykkunni :) En eitthvað hefur gerst sem engin skilur, ég hef reynt að leita svara í því að ég er búinn að vera vera taka náttúrulyf gegn kvíða og þunglyndi, og ég er á sama tíma búinn að fá ávísað hjá lækni nýrri tegund af magasýrutöflum, sem eru helmingi sterkari en þær sem ég hef verið að taka. Eins gæti hérna verið um að ræða meiri slökun, og þá vissu að nú höfum við náð tökum á fjármálunum þannig að þau eru okkur ekki lengur ofviða, heldur vitum við að nú kemur inn ákveðin evrutala um hver mánaðarmót og það passar ágætlega til að framfleyta okkur, þó ekki sé nú mikill afgangur, þá vitum við allavega hvernig þetta lítur allt saman út. Eins gæti verið á ferðinni það að andlega sé ég bara búinn með þetta í bili, ég hef í raun enga trú á að löngunin sé algerlega horfin, en ég fagna því að hún sé allavega farin í bili. Ég sef orðið mun betur og á líka auðveldara með að sofna.

Í gær fögnuðum við því að 11.ár eru liðin frá því að við Soffía kynntumst á náttfataballi í Menntaskólanum að Laugarvatni. Ansi magnað að pæla í því, en svona er það bara, árin líða og það er ekkert sem maður getur gert í því. Núna 11 árum, 4 íbúðum og einu barni seinna erum við enn saman og fyrir það er ég þakklátur.

Æfingar eru hafnar á fullu aftur, 3 og hálfur tími í dag. Og svo verður haldið áfram í næstu viku, að auki er ég að sýna tvær sýningar næstu helgi, þannig að þetta er alltaf að sveiflast upp og niður.

Veturinn heldur áfram að detta inn, en við höfum samt fengið nokkra góða daga. Fengum heimsókn frá vinum okkar Telmu, Gumma og Emilíu frá Berlín, sem komu hérna og gistu hjá okkur og við áttum góðar stundir. Þá var þessi svaka fína mynd af þeim vinkonum tekin :)

15.10.10

Vetur, Júlía og vinnubúðir nasista

Hér er kominn blússandi kuldi og ég á nánast í erfiðleikum með að hjóla í vinnuna sökum þess. Haustlitirnir eru dotnir inn og laufin að byrja að hrynja af trjánum. Ætli það fari ekki að styttast í að maður fari að nota lest á hverjum degi. Síðan síðast hef ég verið boðaður á eina 40 mínútna æfingu og önnur er fyrirhuguð í kvöld. Núna er ég dottinn í hinn pólinn, þ.e að finnast ég vera að gera of lítið :) Aldrei skal maður vera ánægður. En það ætti nú að breytast eitthvað í næstu viku vonandi. Ég er búinn að fá í hendurnar nóturnar af Candide sem sett verður upp á næsta ári, og ég verð að segja að ég er nokkuð ánægður með hlutverkin sem ég fæ, þ.e ég fæ báðar flottu tenór aríurnar í verkinu :) En ég er samt ekki að syngja aðalhlutverkið, þetta er vissulega gleðilegt, nú er bara að gera það vel svo ég fái nú eitthvað grande í næsta season :)

Júlía er enn að hósta, en það hefur dregið allverulega úr því, við höfum ekki farið með hana til læknis aftur, því hún er hress og kát og hitalaus, og við tökum eftir því að hóstinn eykst með áreynslu, sem gæti þýtt að þetta sé astmi, sem kæmi svosem ekki á óvart þar sem slíkt er þekkt innan fjölskyldunnar. Ungfrúin er byrjuð að blaðra enn meira og lærir ný orð mjög hratt, það er afskaplega gaman að heyra hana tala. Stundum stendur hún fyrir framan mann með svip sem mætti túlka sem "þetta er svo merkilegt, skilurðu mig ekki?" og blaðrar og blaðrar :) Svo finnst henni allt í einu gaman að "fljúga" aka, að láta pabba sinn henda sér hátt upp í loft. Þetta fannst henni fyrir viku síðan hræðileg upplifun og vildi alls ekki láta gera þetta. Magnað hvað þetta breytist fljótt. Hún er afar dugleg að hjálpa mömmu og pabba við ýmis heimilsstörf, hún fékk meðal annars það verkefni að raða hnífapörum í hnífaparaskúffuna og kláraði það verkefni með stæl. Eins og sjá má á videói hér að neðan :)

Af öðrum málum er það að frétta að inni í svefnherberginu okkar er kamína, svona týpískt fyrir þessi gömlu hús í þýskalandi, ég stakk upp á því í morgun að við myndum kaupa kol eða tréstubba til að brenna og fá smá hita í húsið. Þá varð eldri ungfrúinni það að orði að kamínan minnti sig á brennsluofna nasista sem við sáum í Buchenwald, þar með var útrætt mál að fara nota þetta í eitthvað nytsamt :) En ég mun halda áfram að reyna.

From 2010 Julia raðar hnífapörum

9.10.10

Frumsýning nr.5

Í gær frumsýndi ég mína 5 sýningu hér í Görlitz, ég var í hlutverki Remendado í Carmen. Það þekkasta sem sá karakter syngur er Smygglarakvintettinn. Sýningin gekk vel þrátt fyrir að ég vissi ekki alltaf hvað ég var að gera :) Ástæðan að baki því er að þessi sýning er búin að ganga allt síðasta ár, og allir sem þarna eru að syngja eru búnir að gera það nokkrum sinnum áður :) Nema ég, ég fékk örfáar æfingar án hljómsveitar og án meðleikara, það er því meira en að segja það að mæta allt í einu á svið með stórum kór og öllum meðleikurum og hljómsveit og stjórnanda sem maður þarf að bregðast við og leika og syngja eins og maður hafi aldrei gert annað. EN þetta gekk allt upp og ég er þess fullviss að miðaðvið undirbúning gekk þetta stórkostlega vel. Í kvöld er svo My Fair Lady. Æfingar eru hafnar á fullu fyrir Tiefland sem frumsýnt verður í lok Nóvember. Það er ótrúlega þægileg tilfinning að vera búinn með þennan stóra byrjunar kafla hérna í óperunni. Núna tekur við aðeins þægilegra líf, með eðlilegu æfingaferli og reglulegum sýningum. Ekki skemmtileg og auðveld fæðing, en ég tel mig aðeins hafa grætt á þessu fyrir vikið.

Hér hefur ekki fallið dropi úr lofti í rúma viku, sólin alltaf á lofti og mjög fallegt gluggaveður, það er frekar kallt en birtan er það mikilvægasta eins og er.

Þær gleðifréttir bárust svo í vikunni að nánast öll tryggingin okkar var endurgreidd að undanskildum 40 Evrum eða svo, það verður nú að teljast nokkuð gott, enda má segja að við höfum unnið fyrir því, því við skiluðum íbúðinni betri en við fengum hana. Það sem aftur á móti er neikvætt er að tryggingin fer öll í að greiða niður skuldir sem hafa verið að safnast upp á Íslandi :( En svona er það nú bara, einhvernvegin þarf að brúa bilið og svona gerist það. Fyrsti launaseðillinn var um 100 Evrum hærri var búið að segja mér og það var ákveðið gleðiefni líka. Svo erum við að bíða eftir svörum varðandi barnabætur hérna úti. Ef við fáum bætur hér og frá hvaða tíma þær verða greiddar út skiptir máli, því ef við fáum einungis bætur frá byrjun árs 2010 nú eða bara frá deginum í dag, þá eigum við rétt á barnabótum frá Íslandi fyrir árið 2009. Þetta er allt eins leiðinlegt og óhagstætt fyrir okkur eins og hugsast getur og mér þykir síður en svo gaman að hugsa um þetta en svona er þetta nú bara alltaf.

Júlíuveikindin halda áfram, og þrátt fyrir að hafa fengið fyrir hana sýklalyf þá virðist það ekki hafa slegið mikið á ljóta hóstann sem hún er með. Hún var reyndar rosalega hress í gær og fór því út að leika sér, en það virðist hafa verið óráðlegt því að í nótt hóstaði hún og hóstaði greyið litla. Það er erfitt að halda svona litlum orkubolta innandyra sérstaklega þegar það er fullt af krökkum sem vill leika við hana og bankar her uppá nokkrum sinnum á dag. Auk þess er veðrið betra en það hefur verið lengi og alger synd að leyfa henni ekki að fara út að leika sér. Þannig að við, hræðilegu foreldrarnir, þurfum að fara með hana enn og aftur til læknis á mánudaginn. Óþolandi!!

5.10.10

Langt frí, og nýjar myndir.

Síðustu vikuna hef ég verið í fríi, að hluta vegna veikinda og að hluta vegna þess að ég er búinn að vera svo duglegur :) Ég er semsagt að mestu búinn að læra allt mitt utanbókar og þar því núna aðeins að mæta á sviðsæfingar, sem er heldur ekki mikið þar sem ég er ekki í það stórum hlutverkum. Á morgun er semsagt fyrsta æfingin mín í rúma viku, ég er reyndar búinn að fara sjálfur síðustu daga og æfa mig og rifja upp texta, þannig það er nú ekki eins og ég sé ekkert búinn að vera gera :)

Hér er að koma haust, laufin farin að gulna og losna af. Það er einnig komin svona haustlykt í loftið, sem er svosem allt í lagi, haustin eru ekki svo slæm, nema það að ég er viðkvæmur fyrir þessum breytingum í loftinu og á það til að veikjast á þessum tíma. Vona bar að það sé núna búið allt saman.

Hér í húsinu búa tvær fjölskyldur með unga krakka, þar á meðal eru stelpur sem eru áfjáðar í að fá aleika við Júlíu eða allavega taka hana með sér út að leika, ætli þær séu ekki á aldrinum 6-12 ára. Júlía var úti að leika sér í gær með þeim í rúma 2 tíma!! Og það var sko ekki að sjá að ungfrúin væri þreytt eftir hamaganginn heldur þvert á móti. Hún á það líka til að sofa ekkert á daginn, og það þýddi t.d í dag að hún fór út að leika og örmagnaðist svo þegar hún fór með pabba sínum að versla í matinn. Það var ekki hægt að vekja hana fyrr en heim var komið. Það versta er að hún er dálítið veik greyið og er núna með hita og líklega beinverki, þar sem hún barmar sér ægilega og maður sér að hún er ekki eins og hún á að sér. Ætli við hendumst ekki með hana til læknis í fyrramálið til öryggis. Hún er búin að vera með ljótan hósta og núna tvisvar hita með þessu öllu saman. Fengum að vísu einhverja hóstatillandi mixtúru handa henni sem hún vill alls ekki!! Vá hvað það kom á óvart!

Annars er hér mest lítið að frétta, lífið gengur sinn vanagang, og við að reyna að láta okkur vel líka :)

Þá sjaldan maður lendir í þeirri aðstöðu þar sem allt er fullkomið þá bara hlítur það að koma vel út. Ég er afar stolltur af mynd sem ég tók af krónprinsessunni nú á dögunum. Þetta er ein besta myndin sem tekin hefur verið af henni síðan hún fæddist að mínu mati, og mig langar mikið að láta prenta hana út á stóran strigaramma, það er mikil ró sem fylgir henni og eitthvað þægilegt á að horfa. Ég lýk pistlinum í dag á þessari mynd. Hægt er að smella til að sjá hana stærri fyrir þá sem hafa áhuga á því.

Svo eru komnar fullt af myndum og videóum frá Íslandsferð og frá ágúst og septembermánuðum inn á mynda svæðið hennar Júlíu, fyrir þá sem hafa áhuga á því.