Hér er að koma haust, laufin farin að gulna og losna af. Það er einnig komin svona haustlykt í loftið, sem er svosem allt í lagi, haustin eru ekki svo slæm, nema það að ég er viðkvæmur fyrir þessum breytingum í loftinu og á það til að veikjast á þessum tíma. Vona bar að það sé núna búið allt saman.
Hér í húsinu búa tvær fjölskyldur með unga krakka, þar á meðal eru stelpur sem eru áfjáðar í að fá aleika við Júlíu eða allavega taka hana með sér út að leika, ætli þær séu ekki á aldrinum 6-12 ára. Júlía var úti að leika sér í gær með þeim í rúma 2 tíma!! Og það var sko ekki að sjá að ungfrúin væri þreytt eftir hamaganginn heldur þvert á móti. Hún á það líka til að sofa ekkert á daginn, og það þýddi t.d í dag að hún fór út að leika og örmagnaðist svo þegar hún fór með pabba sínum að versla í matinn. Það var ekki hægt að vekja hana fyrr en heim var komið. Það versta er að hún er dálítið veik greyið og er núna með hita og líklega beinverki, þar sem hún barmar sér ægilega og maður sér að hún er ekki eins og hún á að sér. Ætli við hendumst ekki með hana til læknis í fyrramálið til öryggis. Hún er búin að vera með ljótan hósta og núna tvisvar hita með þessu öllu saman. Fengum að vísu einhverja hóstatillandi mixtúru handa henni sem hún vill alls ekki!! Vá hvað það kom á óvart!
Annars er hér mest lítið að frétta, lífið gengur sinn vanagang, og við að reyna að láta okkur vel líka :)
Þá sjaldan maður lendir í þeirri aðstöðu þar sem allt er fullkomið þá bara hlítur það að koma vel út. Ég er afar stolltur af mynd sem ég tók af krónprinsessunni nú á dögunum. Þetta er ein besta myndin sem tekin hefur verið af henni síðan hún fæddist að mínu mati, og mig langar mikið að láta prenta hana út á stóran strigaramma, það er mikil ró sem fylgir henni og eitthvað þægilegt á að horfa. Ég lýk pistlinum í dag á þessari mynd. Hægt er að smella til að sjá hana stærri fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Svo eru komnar fullt af myndum og videóum frá Íslandsferð og frá ágúst og septembermánuðum inn á mynda svæðið hennar Júlíu, fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Svo eru komnar fullt af myndum og videóum frá Íslandsferð og frá ágúst og septembermánuðum inn á mynda svæðið hennar Júlíu, fyrir þá sem hafa áhuga á því.
sko ég get nú alveg sagt þér það að ég er búin að prenta þessa mynd bara á venjulegan A4 pappír og hengja hérna við hliðina á tölvuskjánum og ég hugsa alltaf með mér þegar ég líta á hana "rófan þín þarna" og fer svo að brosa :)
SvaraEyðaSnilldarmynd á strigann með hana!
Kveðja
BKBen