Júlía hefur þroskast aðeins á stuttum tíma, en ekki endilega til góðs, því hún er farin að væla mun meira en áður útaf engu. Hún veit núna hvað það er að vera með sár og þegar hún meiðir sig þannig að það sé sjáanlegt, þá eyðir hún dágóðum tíma í að benda á það og segja "meiddi" og svo vælir hún með, ótrúlega skemmtilegt. Hún er líka búin að þjást af mjög ljótum hósta síðustu daganna, en aðeins á nóttunni, og þetta er bara verulega ljótur og leiðinlegur blautur hósti sem heldur vöku fyrir okkur öllum. Við prufðum eitt internetráðið sem fólk sver að virki, en það er nudda góðu lagi af Vick Vaporub á iljarnar á henni áður en hún fer að sofa. Yfir það eru svo settir sokkar og þetta á að draga úr hóstaköstum, ég er ekki frá því að það hafi gert það að einhverju leiti, en maður veit aldrei :) Í gær var ákveðið að Júlía skyldi sofa í sínu eigin herbergi, það var afskaplega furðuleg tilfinning að hafa hana ekki inni í svefnherberginu okkar, og maður hugsaði með sér hvað það væri óþægilegt að heyra ekki í henni. Stuttu áður hafði maður séð fyrir sér þá gleði stund þegar hún væri komin í annað herbergi og maður fengi nú að hvílast almennilega :) Svona er þetta furðulegt alltsaman. Fyrsta nóttin gekk stórslysalaust fyrir sig og ungfrúin svaf til rúmlega 9 í morgun, sem verður að teljast nokkuð gott. Dagurinn í dag er svo búinn að vera dagur slysanna, þar sem ungfrúin er búin að vera detta af hinum og þessum stöðum og meiða sig. Það er ekki laust við að maður verði bara örlítið þreyttur fyrir hennar hönd á þessu öllu saman.
Ég er búinn leggjast í veikindi, og hef því þurft að hætta við mína fyrstu sýningu á ferlinum :) (byrjar vel). Það er nú bara þannig að undir flestum kringumstæðum getur maður sungið nema þegar veikindi hafa áhrif á röddina. Ég hef verið óvenju fljótur að ná mér, fékk sterk vítamín hjá lækni og vottorð um að ég mætti ekki syngja neitt fyrr en í fyrsta lagi á morgun. Ég er því búinn að vera heima að slaka á síðustu daga, sem er ótrúlega kærkomið.
Hér er áin aftur búin að flæða yfir bakka sína og gott betur, þó ekki eins mikið og síðast þó það líti alveg eins út. Þetta þýðir það fyrir okkur að við þurfum aftur að fara kaupa drykkjarvatn, nema að við nennum að sjóða allt vatn í 3 mínútur. Þetta er ótrúlega leiðinlegt ástand!!
Jæja nóg í bili, meira síðar, birti hérna eina góða af ungfrúnni. Á næstu dögum verða svo settar inn nýjar myndir í albúmið hennar Júlíu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli