28.10.10

Sveiflur og þétt dagskrá

Nú eru hafnar á fullu æfingar fyrir þýsku óperuna Tiefland sem frumsýnd verður eftir viku. Fyrsta æfing var alger hörmung fyrir mig og ég fékk skammir fyrir. Ekki verðskuldaðar samt sem áður, en svona er þetta víst í þessum bransa. Ég tók þetta afar nærri mér, eins og FB vinir hafa eflaust tekið eftir. Þegar maður er búinn að leggja hart að sér og fá svo skammir fyrir að vera illa undirbúinn sökum þess að ég er með mjög flóknar sviðshreyfingar og get ekki vel gert hvorutveggja í einu sérstaklega þegar er bara búið að fara yfir þetta tvisvarsinnum!!! Ég sagði auðvitað ekkert um það, bara gleypti það sem að mér var rétt og mætti svo mun betri daginn eftir. Taktlega er þetta ekki auðveld tónlist, og með flóknum sviðshreyfingum þar sem ekki er auðvelt að horfa alltaf á stjórnandann. Ég er ekki að koma með afsakanir, heldur einungis að setja fram staðreyndir :) Í dag voru svo fyrstu æfing með hljómsveit og ég fékk ekki eina gagnrýni fyrir það, sem er afar gott. En núna er ég líka búinn að læra hreyfingarnar og þá verður þetta allt einfaldara.

Í næstu viku er ég að frumsýna tvær sýningar sem verður mjög erfitt, á föstudag er tónleikar með ítalskri tónlist, sem er reyndar afar skemmtilegt, en ég ef þurft að læra 3 erfiðar aríur á stuttum tíma, reyndar lög sem mig hefur alltaf langað að læra en aldrei gefið mér tíma til, þannig að það er í fínu lagi. Næsta vika er svo undirlögð í æfingum fyrir Tiefland, og líklega þessa tónleika daginn áður. Á morgun er svo My Fair Lady og á laugardag er Carmen, þannig að þetta er nokkuð þétt í augnablikinu. Það sem gerir þetta aðeins meira stressandi en það þarf að vera, er að ég er kominn með einhvern skíthósta í hálsinn sem gerir það að verkum að ég er mjög sár og það vantar hæstu nóturnar mínar, þetta er líklegast tilkomið vegna þess að ég er að hjóla hér í miklum kulda og ég finn hvernig það brennur í hálsin. Ég fór svo til læknis í dag og fékk þar sýklalyf og hóstastillandi. Væri ekki fyrir sönginn myndi ég að sjálfsögðu ekki vera að eyða tímanum mínum og læknanna í þessa vitleysu, en nú er þetta vinna en ekki hobbý og því þarf ég að passa mig betur en áður.

Júlía er á afskaplega skemmtilegu tímabili núna, yfirleytt alltaf kát og glöð. Hún blaðrar alveg helling og er farin að byrja að mynda 2 orða setningar eins og: "takk (fyrir) matinn", "hátt (uppí)geim", "pabbi vinna" os frv, það er ótrúlega gaman að fylgjast með því hvað þetta gerist hratt. Það er erfitt að trúa því að núna fer hún að bursta tennurnar, svo er lesin stutt bók, og svo er hún bara lögð í rúmmið og þar við situr. Það er ekkert vælt eða eitthvað vesen, bara einfallt og ótrúlega þægilegt, við Soffía getum nú notið rólegra kvöldstunda eins og við gerðum fyrir um 2 árum síðan, og það er afskaplega þægilegt. Það liggur við að maður vilji aldrei losna við Júlíu af heimilinu, það er eitthvað svo þægilegt að vita af henni og fylgjast með henni þroskast og vaxa. Við erum sannarlega í forréttindahópi að hafa get leyft okkur að vera heima hjá henni alla hennar æfi. Það er svo bara að sjá hvaða langtíma áhrif það hefur, ég trúi ekki öðru en að áhrifin verði góð.

Jæja best að fara horfa á einhvern góðan þátt áður en maður líður inn í draumlandið. Góðar stundir.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli