14.3.10
Skítaveður í Berlín...
Ætlaði vart að trúa mínum eigin augum þegar þetta hófst, en svona er það nú bara....! Vonandi fer þetta nú að skána eitthvað.
13.3.10
Ruglið sem er enn til staðar
Það er nú langt síðan ég hef eitthvað verið að dirfast að blogga um "þjóðfélagsmál" en ég hef nýverið verið að rekast á nokkrar fyrirsagnir í blöðunum á Íslandi sem allar snúa að því hvað kerfið er ósveigjanlegt gagnvart fólki sem hefur misst ástvini og er nú í einhverskonar fjárhagserfiðleikum beint eða óbeint. Þó ég fari ekki að gera lítið úr missi fólks þykir mér ein ákveðin frétt afar fáránleg hvað þetta varðar, en það er kona með einhverfan dreng að fara halda fermingarveislu. Henni þykir ósanngjarnt að fá ekki áfram greiðslur vegna þess að pabbinn er dáinn!! Ok í fyrsta lagi þá eru þau augljóslega skilin og hún ætlaði sér bara að fá peningana sína í gegnum sýslumann, sem myndir þá neyða pabbann til að borga! En fyrst að hann er dáinn þá gengur þetta ekki upp hjá henni og hún þarf að standa straum af kostnaði risaveislu sem á greinilega að halda svo að einhverfi strákurinn upplifi sig ekki félagslega einangraðan............. eða er það kannski bara mamman sem upplifir sig einangraða?? Maður spyr sig. Sama hvað, miðað við stöðuna í þjóðfélaginu núna þá finnst mér alveg með ólíkindum að fólk skuli haga sér svona eins og algerir fávitar, góðærið er búið og við getum alveg lifað aðeins lægra. En mér sýnist á öllu að fólk sé einmitt ekki að gera það, heldur fer það bara í blöðin með allt þegar þau fá ekki peningana sína alveg saman hvað er í gangi. Ég vil taka það fram að ég þekki ekki aðstæður þessa fólks, ég er aðeins að bregðast við grein sem ég las, hvort sem hún er rétt eða ekki.
Svo eru allskyns fólk sem hefur ekki efni á að frema börnin sín!! Það er alveg hægt að komast af án þess að kaupa mat af veisluþjónustum eða vera með það dýrasta dýra í mat og drykk. Vissulega er erfitt að trappa niður gjafakaup en það eru alltaf til ráð, ekki alltaf bara að hringja á vælubílinn þegar eitthvað gengur ekki nákæmleg eins og fólk vill.
Púst dagsins,.....
11.3.10
9.3.10
Einn sá allra besti!!
Ég hreinlega verð að setja hérna inn eina bestu fiskuppskrift sem ég hef smakkað í langan tíma. Vandamálið við að gera þetta var að þetta leit ekki svo girnilega út og ég var ekki viss um ágæti hennar við fyrstu skoðun, en sökum tilraunaáráttu ákvað ég að slá til. Þessi uppskrift var valin besta fiskuppskrift í Gestgjafa síðasta árs ogþví hlaut eitthvað að liggja þar að baki. Hrikalega ódýrt(ef maður býr ekki á Íslandi :))
Eina sem þarf er:
-Nýr hvítur íslenskur fiskur (800 gr)
-Nýr hvítur íslenskur fiskur (800 gr)
-600gr hvítkál skorið fínt í strimla
-Ein lime (börkur og safi)
-2 dl hvítvín (ekki eitthvað ódýrt drasl, heldur það sem þig langar að drekka með)
-rósapipar (ekki í gestgjafa uppskrift, mér finnst hann bara fullkomna fiskrétti)
-Salt og pipar
-60gr smjör
Eins og sjá má lítur þetta ekki spennandi út!!! En andskotinn hvað þetta virkar samt.
Aðferð:
Skera hvítkál fínt, rífa börk af lime og henda saman í pönnu með loki eða stóran pott með loki.
Skera hvítkál fínt, rífa börk af lime og henda saman í pönnu með loki eða stóran pott með loki.
Skera fisk í góða stóra bita eða rúlla upp(eins og í gestgjafanum, þá er hægt að elda meira í einu).
Raða fiskstykkjum ofan á kálið. Blanda saman lime safa og hvítvíni og hella yfir fiskinn. Krydda með rósapipar, pipar og salti.
Svo er bara að setja á góðan hita undir og láta sjóða í 5-6 mín undir loki. Þá ætti fiskurinn að gufusoðna og verða fullkomlega eldaður. Þá skal taka fiskinn af kálinu og setja undir álpappír þannig að hann kólni ekki. Halda áfram að sjóða niður kálið í 6-8 mín taka svo af hitanum og bæta smjörinu við (gott að skera það í 6-8 teninga, þannig blandast það fyrr), hræra vel þangað til smjörið er alveg bráðnað, má alveg hafa pottinn á smá hita á meðan. Svo bara raða fiskbitunum ofan á og bera fram. Gott að gera heimagerðar franskar eða bar venjulegar soðnar kartöflur með.
Það er ekki oft sem maður rekst á eitthvað svona einfalt sem er svona rosalega gott!!! Verði ykkur að góður :) Væri gaman að heyra ef þið prófið þetta hvað ykkur fannst.
6.3.10
Þá sjaldan maður hefur tíma
Í kvöld er þorrablót Íslendingafélgasins hérna í Berlín. Ég ákvað að fara í þetta skiptið. Síðustu tvö skiptin hefur þetta einhvernvegin bara ekki gengið saman, held meira að segja að ég hafi bara ekki verið í Berlín í annað skiptið. En hvað um það þetta verður eflaust upplifelsi. Að þessu sinni verður skemmtunin í Admralspalast hjá Helga Björns, og það er meira að segja allt uppselt! Ótrúlega fínt :) Ragnheiður Gröndal flytur nokkur lög og ég veit ekki hvað. Ég eða við, höfum ekki verið dugleg að sækja Íslendingaviðburði hérna, enda eru þeir yfirleitt langt langt í burtu frá okkur þannig að maður hreinlega nennir því ekki. Nú er þetta aðeins nær eða við U6 lestarlínuna, þannig að ég þarf ekki að skipta um lest, og ferðin tekur bara um 40 mín :)
4.3.10
Að hafna og velja er erfitt
Frá því að síðast var skrifað hefur það gerst að inn á mitt borð barst verkefnið sem á að gera í Görlitz í Maí og Júní. Þetta er afar leiðinleg nútímatónlist, sem er alveg svakalega erfitt að læra, en þetta borgar reikningana, þ.e ef ég næ einhvertíma að læra þetta almennilega. Stressið og andleg vandamál tengd því að syngja eru svo yfirgengileg oft á tíðum að ég ramba á barmi þess að hætta bara í þessu og fara að vinna við eitthvað sem ég kann og get auðveldlega. En það er erfitt þegar allt er mér opið hérna eins og er en hversvegna að vinna við eitthvað sem veldur manni endalausum áhyggjum og kvíða??
Ég stóð frammi fyrir afar erfiðri ákvörðun í dag, en það var þannig að í gærkvöldi barst mér símtal frá stjórnanda árlegrar tónlistarhátíðar í Beeskow, þau voru að bjóða mér aðalhlutverk í lítt þekktri en fallegri óperu sem hefur ekki verið sett á svið lengi. Óperan heitir Casanova og er eftir Albert Lortzing (þektur fyrir Óperetturnar sínar Zar und Zimmerman og Der Waffenschmied). Hlutverkið var að sjálfsögðu Casanova sjálfur. Ég sagðist nú vilja sjá nóturnar og svona aður en ég tæki ákvörðun. Um kvöldið var svo komið með nóturnar til mín, og þá kom reiðarslagið, en það var að hlutverkið er RISA stórt, ekki einhver Tamínó í Töfraflautunni, heldur er Casanova á sviðinu að syngja 80% af tímanum og þetta er um 2 og hálfur tími. Æfingar eru einungis núna í mars og hófust 22.febrúar. Þeir misstu tenórinn sem átti að gera þetta og höfðu séð mig í Neuköllner Óperunni og vilja endilega fá mig. Ég myndi líka endilega vilja gera þetta ef ég hefði ekkert annað. Þau báðu mig að koma til Beeskow í morgun og ég fór þangað, en ákvað eiginlega á leiðinni að afþakka gott boð þar sem ég þarf líka að undirbúa næsta vetur hjá Görlitz og Classic Open Air hérna í Berlín. Þau voru afar vonsvikin eins og gefur að skilja, og ég hef á tilfinningunni að þetta sé ekki það síðasta sem ég heyri frá þeim :) Það er leiðinlegt að skipta út óháhugaverðu aukahlutverki fyrir mjög áhugavert aðalhlutverk, en svona er bara lífið!
25.2.10
Martröð sem ekki varð martröð og svo önnur til
Ég er haldinn ákveðnum framkvæmdarkvíða, eins og líklega margir, þ,e að láta hlutina bíða út í það óendanlega áður en ég fer af stað því ég HELD að það eigi eftir að vera eitthvað vesen, sem ég nenni ekki að standa í :) Eitt slíkt tilfelli kom upp fyrir nokkru og hef ég í lengstu lög reynt að klára ekki málið strax. Málið er semsagt það að mig vantar skattkort áður en ég fer að vinna næsta vetur og ég hef fram til maí að senda þá pappíra sem þarf. Við fórum svo í göngutúr í dag með Júlíu, meðal annars til að skoða sundlaug hérna í nágreninu, ég ákvað að skella mér á bæjarskrifstofuna og spyrja um þetta skattkortsmál, og hvort ég fengi þennan pappír yfir höfuð hjá þeim. Og jú þar gat ég fengið skattkortið, ég fékk bara miða eins og venjulega og svo á maður bara að bíða þar til röðin kemur að manni. Ég var númer 43 og á töflunni stóð 2!! Við nýttum þá bara tímann og fórum með Júlíu í nærliggjandi garð þar sem hún fékk aðeins að leika sér. Eftir um hálftíma fórum við aftur á skrifstofuna og viti menn þá stóð 41 á töflunni og aðeins nokkrar mínútur í að það kæmi að mér. Þegar bjallan klingir held ég af stað að þjónustuborði númer 4 og óska eftir skattkorti og framvísa skilríkjum. Med det samme prentar þjónustufulltrúinn út skattkortið og málið er dautt. Þetta tók semsagt ekki nema rétt rúmar 2 mínútur í afgreiðslu :) Maður ætti að panika oftar!
Ég fékk svo símtal í fyrradag frá hinum tenórnum í Görlitz þar sem hann tjáði mér að mitt nafn væri skráð á ensamble listann fyrir sýningu sem er að fara í gang í maí. Ég sagði að það gæti ekki verið, því minn samningur tekur ekki gildi fyrr en í ágúst. Ég tékkaði því á þessu og þá var þetta víst svo. Stuttu síðar fæ ég svo símtal frá leikstjóranum sem spyr hvort ég geti gert þetta eða ekki, ég sagði nú svo vera en þetta væri afar stuttur fyrirvari, þar sem verkið er víst nútímalegt og þá er erfiðara að læra það, auk þess veit ég ekki stærðina á því, en þetta er held ég nú bara aukahlutverk eitthvað. Þeir þurftu því að útbúa gestasamning við mig, sem ég á von á á næstu dögum. Það góða við það er að ég fæ ferðakostnað og gistingu greidda af húsinu og get því á þessum æfingatíma dundað mér að einhverju leiti við að skoða íbúðir fyrir næsta vetur, þ.e ef æfingaplanið verður ekki þeim mun strembnara. Þetta eru að vissuleiti góðar fréttir því nú fæ ég tekjur sem duga allavega fyrir tveimur mánaðarleigum, sem þýðir að ég þarf ekki að fá eins mikið lánað til að fleyta mér yfir sumarið.
Annars er bara svakalega gott að vera búinn að fá familíuna mína heim. Hér hækkar hitinn hratt og stendur núna í 10 gráðum. Allur snjór að verða farinn og bæjarstarfsmenn farnir að sópa upp ógrynni af möl sem búið er að dreifa hér á gangstéttar. Það er vonandi að koma sumar.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)