Ég stóð frammi fyrir afar erfiðri ákvörðun í dag, en það var þannig að í gærkvöldi barst mér símtal frá stjórnanda árlegrar tónlistarhátíðar í Beeskow, þau voru að bjóða mér aðalhlutverk í lítt þekktri en fallegri óperu sem hefur ekki verið sett á svið lengi. Óperan heitir Casanova og er eftir Albert Lortzing (þektur fyrir Óperetturnar sínar Zar und Zimmerman og Der Waffenschmied). Hlutverkið var að sjálfsögðu Casanova sjálfur. Ég sagðist nú vilja sjá nóturnar og svona aður en ég tæki ákvörðun. Um kvöldið var svo komið með nóturnar til mín, og þá kom reiðarslagið, en það var að hlutverkið er RISA stórt, ekki einhver Tamínó í Töfraflautunni, heldur er Casanova á sviðinu að syngja 80% af tímanum og þetta er um 2 og hálfur tími. Æfingar eru einungis núna í mars og hófust 22.febrúar. Þeir misstu tenórinn sem átti að gera þetta og höfðu séð mig í Neuköllner Óperunni og vilja endilega fá mig. Ég myndi líka endilega vilja gera þetta ef ég hefði ekkert annað. Þau báðu mig að koma til Beeskow í morgun og ég fór þangað, en ákvað eiginlega á leiðinni að afþakka gott boð þar sem ég þarf líka að undirbúa næsta vetur hjá Görlitz og Classic Open Air hérna í Berlín. Þau voru afar vonsvikin eins og gefur að skilja, og ég hef á tilfinningunni að þetta sé ekki það síðasta sem ég heyri frá þeim :) Það er leiðinlegt að skipta út óháhugaverðu aukahlutverki fyrir mjög áhugavert aðalhlutverk, en svona er bara lífið!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli