Ég fékk svo símtal í fyrradag frá hinum tenórnum í Görlitz þar sem hann tjáði mér að mitt nafn væri skráð á ensamble listann fyrir sýningu sem er að fara í gang í maí. Ég sagði að það gæti ekki verið, því minn samningur tekur ekki gildi fyrr en í ágúst. Ég tékkaði því á þessu og þá var þetta víst svo. Stuttu síðar fæ ég svo símtal frá leikstjóranum sem spyr hvort ég geti gert þetta eða ekki, ég sagði nú svo vera en þetta væri afar stuttur fyrirvari, þar sem verkið er víst nútímalegt og þá er erfiðara að læra það, auk þess veit ég ekki stærðina á því, en þetta er held ég nú bara aukahlutverk eitthvað. Þeir þurftu því að útbúa gestasamning við mig, sem ég á von á á næstu dögum. Það góða við það er að ég fæ ferðakostnað og gistingu greidda af húsinu og get því á þessum æfingatíma dundað mér að einhverju leiti við að skoða íbúðir fyrir næsta vetur, þ.e ef æfingaplanið verður ekki þeim mun strembnara. Þetta eru að vissuleiti góðar fréttir því nú fæ ég tekjur sem duga allavega fyrir tveimur mánaðarleigum, sem þýðir að ég þarf ekki að fá eins mikið lánað til að fleyta mér yfir sumarið.
Annars er bara svakalega gott að vera búinn að fá familíuna mína heim. Hér hækkar hitinn hratt og stendur núna í 10 gráðum. Allur snjór að verða farinn og bæjarstarfsmenn farnir að sópa upp ógrynni af möl sem búið er að dreifa hér á gangstéttar. Það er vonandi að koma sumar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli