Í gær fór ég í tíma hjá Wolfgang, og sá tími endaði með því að kallinn bauð mér upp á nokkra bjóra og vodka :) Ég verð reyndar að viðurkenna að ég hef ekki smakkað vodka síðan ég var í menntaskóla og verð að segja að þetta var afar gott! Vodkinn var semsagt íslenskur, Reyka, verulega góður. Ég hélt bara að þetta væri allt eins og "eldur ís" ógeðið sem foreldrar mínir eiga inni í búri :) Þetta var reyndar serverað beint úr frysti og var afar bragðmilt. Ég mæli með að þeir sem hafi efni á vodka á annað borð að prufa þennan hann er verulega góður, ef það hefur ekki komið fram áður :)
Ég eldaði mér svo svakalega gott pasta í gær samkvæmt grunnuppskrift sem ég hef áður birt, við grunnuppskriftina bætti ég svo rjómaosti, hvítvíni, ferskri steinselju, graslauk og basil. Algerlega hrikalega ferskt og bragðgott.
Lýk þessu á því að sýna hvað dóttir mín er sterk.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli