30.1.10

In fernem Land

Í kvöld hljómuðu þessi orð af munni Ben Heppner í Deutsche Oper hér í Berlín. Þvímiður var maðurinn ekki alveg í toppformi, en ég naut þess engu að síður. Engu minna hlutverk var í höndum Kristins Sigmundssonar sem stóð sig það vel að maður var stoltur afþví að vera Íslendingur. Í óperunni Lohengrin eftir Wagner hljómaði margt fallegt, og þar er kannski þekktast brúðarmarsinn sem hljómar við nánast öll brúðkaup. Að lokinni óperunni hittum við stuttlega á Kristinn og héldum svo í mat á nálægum stað sem kallast Papageno, svona upscale ítalskur staður. Ég fékk mér svakalega gott tortelone með trufflum!!! MMMMMMMM. Þeir gerðu það svo enn betra með hinni skotheldu pasta eldunaraðferð að dreypa yfir garlic infused butter (hvað sem það kallast nú á íslensku) :)

Að maður sé að fara hendast í þetta starf er skrítið, og MIKLAR efasemdir sækja nú að, sérstaklega þegar litið er til þess að ég álít mig eiginlega ennþá nemanda í söng. Ég er ekkert tilbúinn í þetta!! En hvenær er maður það svosem?

Allavega ég sendi samninginn af stað í dag og því verður ekki aftur snúið :) Ég reyni að framkalla tilhlökkun en það er afar erfitt á stundum.

Bis nächstes mal.....

26.1.10

Höfuðverkurinn

Eins og fram kom í síðasta bloggi er ég búinn að skrifa undir samning við óperuhús hér í þýskalandi. Þetta er rétt, en það sem ekki kom fram er að ég er ennþá með samninginn í höndunum og hef ekki sent hann ennþá til baka. Þetta helgast af ákvæði sem ég rak augun í sem mér hafði áður verið sagt af umboðsmanni að væri ekki í samningum! Ég sendi því bréf á umboðsmanninn minn þar sem ég tjáði þessar áhyggjur mínar. Ákvæðið hljóðar einhvernvegin svona " Söngvari er með xxxx í laun. Þessi laun lækka svo í samræmi við Húsgjald" !!! Þetta er einmitt það sem var búið að vara mig við!
Ég fékk svo símtal frá umboðsmanninum þar sem hann var búinn að kanna þetta og fullyrti við mig að þetta húsgjald væri um 2%, sem er svosem allt í lagi ef rétt er. En ég hef enga fullvissu fyrir því að þetta sé rétt, nema orð umboðsmannsins og hússins. Ég hef svosem ekki áhyggjur af því að það sé verið að ljúga að mér, en mér þykir afar skrítið að þessi upphæð sé ekki sett í samninginn, og að mér hafi ekki verið sagt frá þessu í byrjun.

Vandamálið hér er það að ég hef eiginlega ekki efni á að skrifa ekki undir og gangast við því sem er verið að bjóða. Ég sagði við umboðsmanninn að ég vildi annaðhvort fá þessa prósentu setta í samning eða í að minnst að fá skriflegar upplýsingar um þetta "húsgjald", þ.e hvað þetta er og hvað þetta er mikið. Þegar þessar upplýsingar berast mun ég senda undirskrifaðan samning.
Einnig þarf ég að fylla út allskyns pappíra með upplýsingum um trygginganúmer, lífeyrissjóðsnúmer osfrv osfrv, hlutir sem ég er ekki með og veit ekkert hvað eða hvort ég eigi að fá einhversstaðar. Þetta er að gera mig geðveikann.

Ég er ekki búinn að vera mjög framleiðin síðustu daga sökum þessar þar sem þetta liggur á mér eins og mara. Eins hefur þetta afar neikvæð áhrif á geðslagið og heldur mér svolítið niðri. En ég veit að þetta blessast allt og verður fínt á endanum. Það er bara ekki að hjálpa ákkúrat núna :)

Ég sendi hlýjar kveðjur til ykkar allra héðan úr 14 stiga gaddinum í Berlín.

23.1.10

Ferðalagið og að fá vinnu í útlöndum

Þá er ég kominn aftur til Berlínar, eftir aldeilis góðan tíma á Íslandi, maður getur mikið vellt sér uppúr gæðum þess að búa á landi ísa, en ég ætla ekki að gera það hér.
Ég komst með fyrsta flugi frá Akureyri í morgun og var lentur í RVK um 9:10. Ég fór svo í örstutta heimsókn í Flétturimann áður en ég hentist niður í bæ að útrétta smá hjá landsbankanum og svo fór ég örstutt að hitta Þröst félaga minn og svo til tannlæknis og svo á Kanann í Keflavík að hitta Ásgeir stuð, ég misreiknaði mig svo aðeins og var mættur klukkutíma fyrir brottför, en það kom svosem ekki að sök. Reyndar er ég ótrúlega hneykslaður á nýju öryggisráðstöfunum, og reyndir jaxlar eins og ég lentu í stökustu vandærðum, þar sem nú þarf að taka upp öll raftæki og meira að segja allar snúrur og tengi!!!! Hvaða rugli búim við eiginlega í þessa dagana?

Hvað með það, ég segi hér stolltur frá því að ég var rétt í þessu að undirrita tveggja ára samning hjá óperuhúsi hér í Þýskalandi!!, Þetta er draumurinn og nú kemur í ljós hvort hann sé þess virði eða ekki :) Ég er allavega glaður og ánægður með boðið og nú er bara að gera sitt besta!

Ég þakka þeim sem hafa sýnt mér stuðning og vona að ég fái áfram góða strauma frá vinum og ættingjum þarna úti.

Ekki meira í bili,
Allt það besta......Egill


21.1.10

Að lokast inni

Í dag ætlaði ég að hendast til Reykjavíkur til að vera útsofinn fyrir tannsa á morgun og svo flug til Berlínar um miðjan dag. EN nei nei, það er bara búið að fella niður allt innanlandsflug þangað til í fyrsta lagi 8 í fyrramálið!!! Algerlega er það nú frábært! Ég vona núna bara að það verði flogið í fyrramálið, það lítur nú allt út fyrir það, en maður veit aldrei.

Hér höfum við haft það ansi gott og vel gert við okkur í mat eins og venjulega :) Í gærkvöldi elduðum við Soffía fyrir gestgjafana og varð humar fyrir valinu. Eða ölluheldur humar í raspi með steinselju og hvítlaukssmjöri! Algerlega dásamlega gott, svo var panna cotta með Dumle sósu í eftirétt og með þessu var drukkið hið dásamlega Bin 65 Chardonnay frá Lindemans.

Nú tekur við endalaus bið eftir hinu og þessu og svo hvílist maður loksins í fínu íbúðinni í Berlín.

Tvær fínar myndir héðan úr Skagafirðinum í lokin:

Við fengum við þessi svakalega fínu norðurljós í gærkvöldi
Humarrétturinn rosagóði

18.1.10

Á hraðferð

Þá er ég staddur í Skagafirðinum, hjá tengdó. Við lentum á Akureyri í gær eftir góða viku í Laugarási. Mér líður bara eins og ég hafi aldrei farið héðan, þó ég geti varla sagt að ég sakni þess eitthvað sérstaklega að búa á Íslandi. En fjarlægðin frá fjölskyldunni er auðvitað það sem maður saknar mest og mun alltaf gera. En söngvaralífið er það sem ég hef valið mér að gera, allavega svona til að byrja með og það ætla ég líka þá að gera almennilega, og gefa því séns. Fjölskyldan mín litla fylgir mér eins og er en spurning hvort það verði til þolinmæði fyrir því mjög lengi. Ég er allavega mjög þakklátur fyrir að fá loksins að upplifa drauminn sem hófst fyrir um 8 árum síðan, þegar ég ákvað að fara læra að syngja, en það er að hafa sönginn að atvinnu. Á næstu vikum mun ráðast hvað gerist.

Eftir einungis fjóra daga mun ég halda heim á leið (til Berlínar), þar sem ég þarf að fara taka mér smá taki í að læra og koma mér aftur í form. Ég hef ekkert sungið í tvær vikur núna, aðallega vegna svæsinna veikinda sem hafa algerlega gert mig raddlausan. Ég er að endurheimta röddina smátt og smátt aftur, en bara það að byrja að syngja aftur getur tekið rúma viku að komast í samt lag. Það er því smá andlegur þröskuldur framundan, þolinmæði.

Soffía og Júlía verða eftir á Íslandi til loka febrúarmánaðar og það verður erfitt, en ég reyni að halda mér uppteknum þannig að það á vonandi ekki eftir að verða allt of hræðilegt. Svo á maður alltaf gamla góða fyrirbarnafrelsið, og þess ber að njóta á meðan kostur er :)

Það er margt sem hægt er að gleðjast yfir í lífinu og hef ég aðeins verið að reyna að taka mig á í jákvæðnideildinni, og það gengur svona upp og ofan, en það skilar árangri það litla sem mér tekst að þvinga fram :) Nú ber að gleðjast yfir litlum frænda í Noregi sem ég hef kosið að kalla Böðvar Fannar þangað til nafn fæst :) En miklar hamingju óskir fara þangað frá okkur Berlínarfólki.

Hér er svo heimasætan að tala við langafa

11.1.10

Á Íslandi

Þá erum við stödd í Laugarási, Soffía var í Reykjavík um helgina og við Júlía hérna í ró og næði á meðan. Á planinu er að fara svo í sund með ungfrúnna á morgun á Selfoss. Og svo ætlum við Soffía að vera í Reykjavík á föstudaginn, þar sem planið er að hendast á tónleika og jafnvel út að borða einhversstaðar.

Svo verður haldið norður í land á sunnudag til að hitta tengdó og co. Þar verður stoppað stutt við hjá mér allavega, því ég á svo flug til Reykjavíkur á fimmtudeginum og svo fer ég til tannlæknis og svo beint í flug til Berlínar á föstudeginum.

Stutt og hnitmiðað í þetta skiptið :)

Að tala við mömmu í símanum.

6.1.10

Síðustu verk fyrir stutta heimferð

Í kvöld skellti ég mér á Avatar í 3D. Engin smá kvikmynd þar á ferð og ég átti bara ansi bágt með mig yfir fallegu landslagi og hrikalegum hraða, hæðum og lægðum. Myndin er dálítið löng, um 3 tímar, en að sjá hana í 3D skemmdi ekki fyrir, þar sem maður var gapandi yfir því sem þarna bar fyrir augu. Án efa besta flottasta mynd sem kom út árið 2009!!

Nú eru kvefveikindin sem búin eru að vera plaga familíuna loksins búin að ná tangarhaldi á mér og það er ekki gaman. Vona að ég verði nú að mestu laus við þetta fyrir Íslandsferð.

Hér í Þýskalandi eru miklar frösthörkur og mikill snjór, hér óttast menn að ef áfram heldur sem horfir verði allt salt á götur uppurið á örfáum dögum. Þetta teflir einnig heimferð í tvísýnu þar sem útlit er fyrir meiri snjó hér á næstu dögum.

Við sjáumst allavega þegar við sjáumst, verið þið sæl

Komnar eru inn Jóla og Áramóta myndir héðan fyrir þá sem hafa áhuga á slíku