23.1.10

Ferðalagið og að fá vinnu í útlöndum

Þá er ég kominn aftur til Berlínar, eftir aldeilis góðan tíma á Íslandi, maður getur mikið vellt sér uppúr gæðum þess að búa á landi ísa, en ég ætla ekki að gera það hér.
Ég komst með fyrsta flugi frá Akureyri í morgun og var lentur í RVK um 9:10. Ég fór svo í örstutta heimsókn í Flétturimann áður en ég hentist niður í bæ að útrétta smá hjá landsbankanum og svo fór ég örstutt að hitta Þröst félaga minn og svo til tannlæknis og svo á Kanann í Keflavík að hitta Ásgeir stuð, ég misreiknaði mig svo aðeins og var mættur klukkutíma fyrir brottför, en það kom svosem ekki að sök. Reyndar er ég ótrúlega hneykslaður á nýju öryggisráðstöfunum, og reyndir jaxlar eins og ég lentu í stökustu vandærðum, þar sem nú þarf að taka upp öll raftæki og meira að segja allar snúrur og tengi!!!! Hvaða rugli búim við eiginlega í þessa dagana?

Hvað með það, ég segi hér stolltur frá því að ég var rétt í þessu að undirrita tveggja ára samning hjá óperuhúsi hér í Þýskalandi!!, Þetta er draumurinn og nú kemur í ljós hvort hann sé þess virði eða ekki :) Ég er allavega glaður og ánægður með boðið og nú er bara að gera sitt besta!

Ég þakka þeim sem hafa sýnt mér stuðning og vona að ég fái áfram góða strauma frá vinum og ættingjum þarna úti.

Ekki meira í bili,
Allt það besta......Egill


3 ummæli:

  1. Hér telst vera ástæða til að senda hamingjuóskir með fullri trú á að þetta gangi vel.

    SvaraEyða
  2. Til hamingju !
    Bestu kveðjur
    Sesselja

    SvaraEyða
  3. Hjartanlega til hamingju hédan frá Ishøj ;o)

    SvaraEyða