31.10.09

Í Lüneburg er gleði og gaman fum fum fum

Sit hérna á ítölsku veitingahúsi að sampla bjór bæjarins "Lüneburger Pils", hann er bara nokkuð góður :) Söng fyrir óperuhúsið hérna í dag og það gekk bara ágætlega held ég. Ég get allvega ekki farið að væla yfir því að illa hafi gengið. Ég var vel undirbúinn og skilaði því sem þurfti að skila.

Nú tekur svo bara við bið í 2 og hálfan tíma þangað til ég þarf að taka lestina í tæpa 4 tíma heim á leið. Þetta er ekki draumastarf að þessu leiti, fyrirsöng! Alger horror. Eintómt vesen og stress, það er í raun ekkert við þetta sem er ánægjulegt, nema kannski að heimsækja mismunandi bæi og drekka local bjórinn.

Í gær var svo sýning í Neuköllnar Óperunni sem gekk bara sæmilega, nú fer ég í smá pásu frá fyrirsöng í svona tæpan mánuð en þá tekur næsta við. En það þýðir rúmir 6 tímar með lest og gisting á hóteli.

Á morgun er ég svo að skella mér á tónleika með þessum tenór, en hann hefur verið að gera það verulega gott í heiminum, og ég verð að segja að hann er með þeim betri af nýju tenórunum sem eru komnir fram á sjónarsviðið á síðustu ár.

Var rétt í þessu að fá matinn minn, sem er "quattro staggione pasta". vonbrigðin eru mikil, þar sem þetta lítur út eins og Knorr pasta, og er alls EKKI al dente. Sem er hriklegt á ítölskum stað, en svona er bara heimurinn í dag. Hlakka til að komast heim og aðeins að slaka á.

Meira var það ekki í bili, over and out frá Lüneburg.

27.10.09

Júlía F

Þá eru komnar inn fullt af nýjum myndum frá Októbermánuði inn á myndasvæðið hennar Júlíu. Hún svíkur ekki áhorfendur frekar en fyrri daginn. Ungfrúin er mikið farin að herma eftir okkur núna og það er alveg ótrúlegt hvað henni dettur í hug að gera. Hún hóstar t.d alltaf ef við hnerrum eða hóstum, og hristir alltaf hausinn ef við gerum það. Hún er líka farin að dansa án þess að halda sér í þegar einhver "spennandi" tónlist er spiluð.

Í öðrum fréttum er það að hér er fyrir alvöru komið haust núna og laufin nánast horfin af flestum trjám. Við eigum svo pantaðan bíl til að heimsækja Ásgeir Pál og frú í Halle aðra helgina í Nóvember, auk þess sem fyrirsöngur er í pípunum.

Stutt að þessu sinni, við ljúkum fréttatímanum með róandi mynd af ungfrúnni.

26.10.09

Helgin

Það er kannski best að setja inn status uppfærslu liðinnar helgar.

En hún hófst á söngtíma hjá Wolfgang, sem fyrri daginn klikkaði alls ekki. Mér finnst ég vera að nálgast innsta hring söngsins hægt og rólega og maður verður alltaf betri og betri :)

Nú sama dag fengum við heimsókn frá Ásgeiri Páli og frú sem voru komin til að skoða Berlín og kíkja á frumsýningu hjá undirrituðum. Frumsýning gekk mjög vel og maður fékk að heyra nokkur bravó úr salnum, líklega samt bara frá vinum og kunningjum :) Það var því farið varlega inn í nóttina því ég þurfti svo að hendast til Braunschweig til að ljúka síðustu sýningu af Liebesverbot, sem ég var samningsbundinn til að klara, daginn eftir. Þessi lokasýning var svosem ágæt og gekk ágætlega og ég fékk í fyrsta skipti mörg bravó úr fullum sal af fólki sem ég þekkti ekki neitt!! Sem er vissulega góðs viti. Ég sit semsagt núna inni á hótelherbergi á Hotel Wienecke að skrifa þetta blogg til að ljúka kvöldinu :)

Á morgun tekur svo við undurbúningur fyrirsöngs og ég veit ekki hvað :)

23.10.09

10 ár, helgin og google

Í dag eru liðin 10 ár síðan við Soffía kynntumst, nokkuð langur tími, en sem betur fer góður :) Það er auðvitað margt sem er hægt að rifja upp á þessum tíu árum og þá áttar maður sig á því hvað maður hefur það í raun gott og hversu vel giftur maður er :) Ég veit að Begga frænka á einhversstaðar mynd af okkur tveimur held ég meira að segja sama kvöldi og við kynntumst, það væri ansi gaman að fá afrit af því við tækifæri :) Dagur er semsagt að kveldi kominn og við nýttum daginn í að fara í Sushi á TaiShu á Kochstrasse, sem er í miklu uppáhaldi. Og auðvitað rann þetta ljúflega niður eins og fyrr með litlu glasi eða tveimur af Chardonnay staðarins sem er verulega gott.Júlía duglega var sem fyrr með allt sitt á hreinu og var alveg til í að smakka framtíðar uppáhaldsmatinn sinn :)
Helgin sem framundan er verður mjög erfið, en vonandi mjög skemmtileg líka. Hún hefst semsagt á frumsýningu hjá mér á morgun og lýkur á seinni sýningu Das Liebesverbot í Braunschweig. Þetta er mikil og erfið törn fyrir röddina og geðið. Sem betur fer á ég góða að, bæði söngkennara og fjölskyldu, þannig að þetta verður lítið mál.

Að lokum langar mig að prísa google og þjónustur þeirra, þá á ég sérstaklega við google calendar og google contacts, sem ég var í raun bara að uppgötva fyrir nokkrum dögum að hafa gríðarlegt notagildi. Sérstaklega núna þegar ég þarf virkilega að fara halda utan um dagsetningar og annað slíkt, þar sem maður er búinn að fá bókanir eitthvað fram í tímann ;) Þetta samstilli ég svo allt við símann minn og ef eitthvað kemur fyrir tölvurnar á heimilinu eða símann þá á ég allar upplýsingar miðlægt hjá google. Til að mynd hef ég birt hér hægramegin á blogginu söngdagatalið mitt ef þið eruð eitthvað á ferðinni í Berlín, þá kíkið þið á sýningu :)
Nóg um það, meira eftir helgi. Ljúkum þessu á einni mynd af mæðgunum.

20.10.09

Frumsýning og afar spennandi tilboð

I kvöld var að ljúka minni síðustu æfingu fyrir frumsýningu, sem er hjá mér á laugardaginn kemur. Þetta gengur bara ágætlega og held ég að maður þurfi ekkert að skammast sín fyrir frammistöðuna. Þetta hefur verið verulega þreytandi æfingaferli sökum endalausra breytinga og virðingarleysis gangvart tíma þáttakenda, en það er loksins á enda. Nú taka bara við um 16 sýningar eða svo fram að áramótum. Og svo er maður laus og liðugur aftur.

Í dag átti ég svo samtal við mann sem sér um MJÖG stóra og virta hátið hérna í Berlín á hverju ári síðan 1991 held ég að hann hafi sagt :) En þeir vilja fá mig til liðs við sig fyrir næsta sumar. Þetta er mikill heiður ef af verður og ég er auðvitað mjög glaður með það. Þetta helgast af meðmælum góðra manna sem ég hef kynnst á síðustu 4 mánuðum. Það á þó enn eftir að staðfesta þetta 100%, en ég er vongóður miðað við það sem ég hef heyrt frá þessum ákveðna manni. Þetta eru því góðar fréttir, en þvímiður eru það ekki góðar fréttir sem borga reikningana. Og eins og staðan er núna er ekki ólíklegt að við þurfum að fara huga að heimferð á næstu mánuðum. Ég vil koma sértstökum þökkum til Alþingis Íslendinga sem ég held að sé mesta skítaappart sem fyrirfinnst á jarðkúlunni. Takk fyrir að vera illa upplýstasta og spilltasta samkoma vestræns ríkis!!! Það er erfitt að horfa fram á að það geta hugsanlega ekki klárað þetta ferðalag vegna þess að hálfvitar eru búnir að vera "stjórna" landinu. (**Hér koma svo orð sem ekki eru prenthæf**)

Ég reyni því núna bara að taka næstu dögum og ekki að hugsa um allt það ömurlega sem er í raun í gangi. Ég hef það gott ennþá og á góða að. Auk þess sem mér gengur vel. Það er því ekki allt ömurlegt. Aðeins það að vita ekki hverju maður má eiga von á á næstu 6 mánuðum eða svo.

Þangað til eftir helgi......


16.10.09

Afmæli, æfingar og þín fyrstu skref.

Fyrst langar mig nú að óska litla bróður til hamingju með daginn. Sendi honum SMS í tilefni dagsins og fékk svar á óaðfinnanlegri þýsku. Ég hef ástæðu til að ætla að hann hafi ekki notfært sér menntaskóla þýskuna til að svara mér :) En hvað veit ég svosem.

Æfingar eru auðvitað á fullu, eða "í fullum gangi" eins og málhaltir kjósa að segja. Það gengur ágætlega held ég þar sem nú er loksins búið a fastsetja alltsaman. Hljómsveitin hefur átt erfitt uppdráttar og það verður smá samspil að fá þetta allt til að ganga upp, en það mun að sjálfsögðu gera það. Mín frumsýning verður á laugardaginn næsta (24.okt) og daginn eftir þarf ég að fara aftur til Braunschweig til að syngja, vonandi síðasta sinn, Liebesverbot eftir Wagner.

Júlía kom á óvart í kvöld og tók sín allrafyrstu skref, að sjálfsögðu með smá hjálp að standa upp, en að öðruleiti gerði hún þetta allt sjálf. Sjá videó hér fyrir neðan. Annars er sú littla búin að vera veik, með hor í nös og svo framvegis, auðvitað með tilheyrandi vöku á nóttunni. Við fengum vissulega að kynnast því hvernig er að eiga fullkomið barn í 2 vikur, en auðvitað fær maður ekki að njóta þess lengi. Sem betur fer gefur hún okkur fullt í staðinn og það er maður mikið þakklátur fyrir.