23.10.09

10 ár, helgin og google

Í dag eru liðin 10 ár síðan við Soffía kynntumst, nokkuð langur tími, en sem betur fer góður :) Það er auðvitað margt sem er hægt að rifja upp á þessum tíu árum og þá áttar maður sig á því hvað maður hefur það í raun gott og hversu vel giftur maður er :) Ég veit að Begga frænka á einhversstaðar mynd af okkur tveimur held ég meira að segja sama kvöldi og við kynntumst, það væri ansi gaman að fá afrit af því við tækifæri :) Dagur er semsagt að kveldi kominn og við nýttum daginn í að fara í Sushi á TaiShu á Kochstrasse, sem er í miklu uppáhaldi. Og auðvitað rann þetta ljúflega niður eins og fyrr með litlu glasi eða tveimur af Chardonnay staðarins sem er verulega gott.Júlía duglega var sem fyrr með allt sitt á hreinu og var alveg til í að smakka framtíðar uppáhaldsmatinn sinn :)
Helgin sem framundan er verður mjög erfið, en vonandi mjög skemmtileg líka. Hún hefst semsagt á frumsýningu hjá mér á morgun og lýkur á seinni sýningu Das Liebesverbot í Braunschweig. Þetta er mikil og erfið törn fyrir röddina og geðið. Sem betur fer á ég góða að, bæði söngkennara og fjölskyldu, þannig að þetta verður lítið mál.

Að lokum langar mig að prísa google og þjónustur þeirra, þá á ég sérstaklega við google calendar og google contacts, sem ég var í raun bara að uppgötva fyrir nokkrum dögum að hafa gríðarlegt notagildi. Sérstaklega núna þegar ég þarf virkilega að fara halda utan um dagsetningar og annað slíkt, þar sem maður er búinn að fá bókanir eitthvað fram í tímann ;) Þetta samstilli ég svo allt við símann minn og ef eitthvað kemur fyrir tölvurnar á heimilinu eða símann þá á ég allar upplýsingar miðlægt hjá google. Til að mynd hef ég birt hér hægramegin á blogginu söngdagatalið mitt ef þið eruð eitthvað á ferðinni í Berlín, þá kíkið þið á sýningu :)
Nóg um það, meira eftir helgi. Ljúkum þessu á einni mynd af mæðgunum.

4 ummæli:

  1. Þú ert bókaður ansi langt fram í tímann sýnist mér - til 3039, eða svo ;) kv. væntanlegur gestur

    SvaraEyða
  2. Til hamingju með árin 10. Það verður gaman að fara með frænku minni á Asia Chan einn góðan veðurdag..

    SvaraEyða
  3. Til hamingju öll sömul með áratuginn :)

    SvaraEyða
  4. Til hamingju með árin 10 .... frekar góð ending :)
    Kv, Begga.

    SvaraEyða