Æfingar eru auðvitað á fullu, eða "í fullum gangi" eins og málhaltir kjósa að segja. Það gengur ágætlega held ég þar sem nú er loksins búið a fastsetja alltsaman. Hljómsveitin hefur átt erfitt uppdráttar og það verður smá samspil að fá þetta allt til að ganga upp, en það mun að sjálfsögðu gera það. Mín frumsýning verður á laugardaginn næsta (24.okt) og daginn eftir þarf ég að fara aftur til Braunschweig til að syngja, vonandi síðasta sinn, Liebesverbot eftir Wagner.
Júlía kom á óvart í kvöld og tók sín allrafyrstu skref, að sjálfsögðu með smá hjálp að standa upp, en að öðruleiti gerði hún þetta allt sjálf. Sjá videó hér fyrir neðan. Annars er sú littla búin að vera veik, með hor í nös og svo framvegis, auðvitað með tilheyrandi vöku á nóttunni. Við fengum vissulega að kynnast því hvernig er að eiga fullkomið barn í 2 vikur, en auðvitað fær maður ekki að njóta þess lengi. Sem betur fer gefur hún okkur fullt í staðinn og það er maður mikið þakklátur fyrir.
margspilað myndband - heldur í skemmtilegra lagi
SvaraEyðaJá þar hefur þú rétt fyrir þér, Þetta var víst Google translate að þakka!
SvaraEyða