19.6.09

Youleigha


Fyrirsögnin vísar að þessu sinni til listamannsnafns dóttur minnar þegar hún verður fræg söngkona, sem mér sýnist ætla að verða af þessari mynd að dæma :)

Annars er ég bara að skófla í mig einni beikon pylsu áður en ég hendist af stað til Braunschweig, þar sem æfingar hefjast í dag. Ég og sópraninn sem syngur aðalhlutverkið erum á æfingum alla daga og flest kvöld fram að sýningu!! Þetta verður ansi mikið verð ég að segja en svona er það nú bara, ég hlakka allavega til að takast á við þetta.
17.júní hentist ég í partý hjá sendiherrahjónunum og það var ágætasta skemmtun, hitti þar fyrir nokkra sem ég kannaðist aðeins við frá veru minni á Íslandi.

Jæja má ekki hangsa svona í tölvunni. Ef ég finn "internetið" í Braunschweig þá er aldrei að vita nema maður hendi inn einni færslu eða svo.

Hér er svo mynd af sendiherrabústaðinum í Berlín séð úr garðinum

17.6.09

1.árs í gær..... 17.Júní í dag!

Að sjálfsögðu er ekki komið ár síðan Júlía fæddist heldur er hér um að ræða 1.ár frá því að gengið var inn á skrifstofu sýslumanns á Selfossi og gengið í það lagalega ......hið heilaga er eftir :)

Á þessu ári eru líka liðin 10 ár frá því að við Soffía kynntumst, og til stóð að hafa almennilegt kirkjubrúðkaup í tilefni þess en ekki er útlit fyrir að það verði að svo stöddu, allavega ekki í ár.

Lífið hefur verið ósköp áreynslulítið hér í Berlín síðan þær mæðgur snéru til Íslands, jafnvel hálf einmanalegt, þar sem hér vantar, auk þeirra, alla Íslendinga sem ég þekki og umgengst reglulega. Þó hefur mér tekist að syngja á einum tónleikum, auk þess að hanna efnisskrá og plakat fyrir tónleikana, fara á tónleika, læra, þvo þvotta og fara í ræktina. Framundan er svo að fara í undirleikstíma í dag og heimsækja sendráðsbústaðinn í tilefni dagsins, söngtíma á morgun og söngtíma á föstudaginn svo verður lagt af stað til Braunschweig þar sem æfingar munu hefjast á fullu fyrir Das Liebesverbot.

Nóg að gerast þó ekkert sé að gerast, alveg merkilegur andskoti það!

Þess er mikið saknað að sjá ekki þá litlu þroskast á ógnarhraða. Mér er sagt að hún sé farin að borða Cheerios og hlæja! Jæja ég hef þá bara margt að hlakka til þann 7.júlí.

Nóg um það hér er "Zueignung" eftir Richard Strauss sem ég söng núna um helgina.

Gleðilega þjóðhátíð öllsömul!


10.6.09

Langur tími og söknuður....

Þetta er líklega það lengsta sem hefur liðið á milli blogga hjá mér, og  það á sér skýringar í ýmsu sem ég ætla mér ekki að fara tíunda hérna.   En allavega þá er ótrúlega góðri helgi lokið og við tekinn tími sem verður erfiður en skemmtilegur engu að síður.

En svo ég reki nú í stuttu máli það sem hér hefur gerst síðan síðast....
Ég fór að sjá nýjustu Terminator myndina, hún var nokkuð góð, ég held samt að ég þurfi að sjá hana aftur þar sem ég dottaði örlítið undir lokin, ekki vegna leiðinda heldur ofþreytu.  Ekki nóg með að ungfrúin vakni nokkrum sinnum á nóttu heldur þurftum við að vakna snemma þennan dag til að fara með hana í ungbarnaskoðun.  Sú skoðun gekk mjög vel og læknirinn var ánægður með það hvað hún var sterk miðað við aldur.  Hún stækkar hægt og rólega og verður líklegast engin risi frekar en foreldrar  hennar :)  

"Kórinn sem kallaði sig áður Skálholtskórinn" kom til Berlínar á fimmtudagin var og Þorvaldur kom svo á föstudeginum, það var  því kátt í kotinu um helgina, að vanda fannst manni fólk stoppa allt of stutt, en svona er það!  Maður getur ekki alltaf verið í fríi.   Við drifum okkur á tónleika með "kórnum sem kallaði sig áður Skálholtskórinn" sem söng tvær messur ásamt kór Gethsemanekirkjunnar, það var svaka gaman að sitja og hlusta á þetta, báðar messurnar mjög flottar að mínu mati.  Það er líka svakalega góður hljómburður í kirkjunni, þó ekki sé mjög auðvelt að syngja þar.  Svo á mánudagskvöldið voru aðrir tónleikar og þar fékk ég að koma fram með kórnum og einvala liði hljóðfæraleikara, það heppnaðist bara mjög vel að mínu mati og ekki hægt annað en að vera bara ánægður.

Mæðgurnar og foreldrarnir flugu svo heim á þriðjudaginn og ég er einn eftir í kotinu með það stóra hlutverk að læra fyrir tónleika sem eru á Sunnudaginn kemur að loknu námskeiði hjá Janet og svo að sjálfsögðu þarf ég að læra af mikilli alvöru fyrir sumaróperuna sem hefst á föstudaginn næsta.  Þá hefjast æfingar og mér sýnist að viðvera á æfingum sé 10-18 alla daga fram að frumsýningu sem er 27.júní.

Ég sakna orðið strax móður og dóttur, og það er skrítið að vera hérna einn og þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinum öðrum en sjálfum mér, en það er afskaplega þægilegt líka.

Nýjasta nýtt hjá ungfrúnni áður en hún hélt til Íslands er afar sérstakur svipur, og hann má sjá hér :)  

31.5.09

Ekkert kemur fyrir hornið....

Eins og fyrirsögnin ber með sér er ekkert að gerast, það er nákvæmlega þannig og búið að vera þannig síðustu daga.  Rigning kalt og ekkert að gerast!  Ég sest ekki niður og læri, heldur förum við í mollið, komum heim og ég hef farið að horfa á vídeó!  Þetta er svona spírall sem ég ræð ekkert við, því þegar heim er komið er ég allt of þreyttur og annars hugar til að geta sest niður að læra.  Ég fékk þó einn dag í vikunni þar sem ég sat nánast allan daginn að læra og það var afskaplega gott.

Næsta vika verður talsvert atburðameiri en sú sem liðin er.  En þar má nefna að ég fer í tvo söngtíma einn meðleikstíma, StudioClass, Terminator, Læknisheimsókn með Júlíu og svo má ekki gleyma foreldrunum sem koma ásamt Skálholtskór til að halda tvenna tónleika, og mun ég koma fram með þeim á öðrum tónleikunum.   Það er því alveg nóg að gerast.

Í rigningunum sem hafa verið hér undanfarið hefur eitthvað borið á því að það leki eitthvað inni á baðherbergi hjá okkur, eða ölluheldur virðist leka úr pípum sem koma úr loftinu, en ég tel að það leki einhversstaðar inn í allri þessari rigningu og það flæði hér einhversstaðar eftir sprungum í steypunni.  Ég hreinlega nenni ekki að hringja útaf þessu þar sem þetta er ekki það mikið, þó pirrandi sé.  Merkilegt að maður er búinn að vera hérna í eitt og hálft ár og veigrar sér samt við að nota þýskuna.   Það er nú kannski líka afþví að maður talar eiginlega bara íslensku og ensku hérna, þannig er nú bara það.  

Júlían er við sama heygarðshornið, og sefur svosem ágætlega á nóttunni, en pirringur á daginn hefur aukist margfallt, og ef maður er ekki stanslaust að hafa ofanaf fyrir henni, þá er hún vælandi sem er alveg einstaklega lýjandi, og veit ég að það er hluti af því afhverju ég á svona erfitt með að koma mér að því að læra.  Þó gerist það (2x á hennar stuttu ævi) að hún sofnar alveg ein og alveg sjálf án þess að þess sé beinlínis ætlast til af henni.  Það er alltaf magnað og í tilefni síðasta lúrs var þessi mynd hérna tekin.......  
Það er ekki laust við að gaman væri að skreppa heim og taka þátt í veislu sem þar á sér stað í dag, en ég er ekki almáttugur útrásarvíkingur með botnlausa vasa af peningum, því verður  það að bíða eitthvað.

Enn og aftur til hamingju með daginn kæri bróðir.

30.5.09

Til hamingju með útskriftina bróðir sæll


Hann Binni litli bróðir er að útskrifast í dag.  Maður er auðvitað afskaplega stoltur af þeim litla að vera loksins búinn með þennan áfanga, mig minnir að það hafi verið afskaplega mikill léttir :)

Við komumst að sjálfsögðu ekki í veisluna en vildum óska að við kæmumst, því verður þvímiður ekki komið við. 

Ég henti því hérna inn nokkrum myndum sem eiga erindi við það erfiði sem að baki er :)













23.5.09

Lítið bloggað en mikið ringt

Hér hefur nú fátt markvert gerst annað en það að við erum byrjuð á stífu svefnprógrammi fyrir dömuna og ekki annað hægt að segja en að það hafi fljótt skilað góðum árangri.

Ég fer með hana inn í rúm klukkan 22:00 og þar held ég í hendurnar á henni þangað til hún sofnar (yfirleitt á 10-15 mín), en þangað til er grenjað stíft.  Svo hefur hún bara sofið yfir 4 tíma í einu allar síðustu nætu, sem verður að teljast met fyrir hana.  Eina nóttina svaf hún til að verða hálf 6 um morguninn!  Það er nánast að maður trúi þessu ekki, en loksins eitthvað farið að gerast.  Ég á svo von á því að þegar þetta er allt orðið fast og fínt, þá fara tennurnar að koma og allt raskast upp á nýtt.  Sumir myndu kalla þetta svartsýni, en ég kalla þetta "lögmál Murphys", margreynt og viðurkennt lögmál.

Ég er að hefja undirbúning á fyrstu Einsöngstónleikum mínum hérna í Berlín, og þar verður m.a dusta rykið af ljóðaflokk eftir R.Strauss og jafnvel æfður upp einn Vaughan Williams, en það þarf að bíða og sjá með hversu auðvelt er að læra það :)  Svo bara eitthvað klassískt óperu rep.  Þetta er allavega á hugmyndastiginu núna og fær að vera þannig eitthvað áfram.

Hér er búið að vera leiðinda veður síðustu vikuna, vindur og frekar kallt (flíspeysuveður), af og til svakaleg rigning.  Það sem hófst sem stórkostlegt sumar er líklega lokið :) (aftur lögmál Murphys)

Annars gengur allt sinn vana gang hér, raddlega er ég í besta formi sem ég hef verið, og Wolfgang skilar sínu allduglega í hverri viku, það er ekki hægt að kvarta yfir því!

Þangað til næst, Guð blessi Ísland

18.5.09

Helgin er liðin með tilheyrandi.....

Begga frænka kíkti hér í heimsókn um helgina og ekki er hægt að segja annað mikil skemmtun varð úr því eins og alltaf þegar svo er.

Eurovision vita allir hvernig fór, og ég ætla því ekki að tjá mig neitt um það, þrátt fyrir sterkar skoðanir á því sem þar fór fram.  Við vorum að sjálfsögðu með létt partí hér á bæ þar sem við fylgdumst spennt með þessu öllu saman.  Ekki mikil spenna fyrir þesssu hérna í Berlín þar sem Hertha Berlín var að vinna einhvern leik og það virðist svona  hafa verið aðal málið.  Ekki það að það skipti einhverju máli.

Það er í raun frá litlu að segja, nema kannski því að þessi vika hefst með því að svefnþjálfun skal hefjast fyrir ungfrúnna af einhverri alvöru!   Ég þarf að fara taka mig verulega á í lærdómi fyrir óperuna miklu í sumar og vonandi gengur að samræma þetta alltsaman svo best sé.  

Ég er búinn að henda inn nokkrum myndum í albúmið hennar Júlíu fyrir þá sem hafa áhuga á því.  

Það styttist svo í komu foreldranna og kórsins góða frá Íslandi sem kennir sig enn við Skálholt. Það verður flott ferð, ég vona bara að veðrið verði eins gott að og það lítur út fyrir að verða næstu daga.

Hér var gaman og þessi mynd er til vitnis um það (skál og góða ferð Begga)