1.5.09

Spargelzeit, Mollið, MBT, Júlía og sundið ofl

Þá er 1.maí runnin upp, ekki  það að ég hafi nokkurntíma haldið eitthvað sérstaklega upp á þennan dag.  Hér rétt hjá okkur er loksins búið að opna mollið(verslunarmiðstöðina), sem búin er að vera í byggingu síðan við fluttum hingað.  Það má segja að þetta sé alveg svakalega flott, og sérstaklega að vera búin að fá þetta hérna í grendina.  Þarna er stórmarkaður sem mér sýnist eiginlega hafa upp á að bjóða allt það sem hugurinn girnist, nema t.d maldon salt!  En þetta er risastórt og gott úrval, sem er frábært.  Ég hentist þangað í gær með ungfrúnna og verslaði spargel sem er einmitt í season núna, það hefur komið á óvart hversu virkilega góður matur þetta er þegar vel tekst til.  Okkur var einmitt boðið í mat hjá Janet í gærkvöldi þar sem við fengum soðin spargel með soðnum kartöflum, svo er það bara salt og pipar og smá smjör, það er algert rugl hvað þetta er góður matur, eins og hann hljómar lítið spennandi.  Hérna í kvöld koma svo Gunnar og Erla að njóta með okkur spargel :)
Ég fékk mér MBT skó í Svíþjóð og er þvílíkt ánægður með þá, þetta er í fyrsta skipti í yfir 3 ár sem ég splæsi á mig skóm og þessir voru svosem ekki gefins.  En eftir að hafa gengið á þessu í nokkra daga verð ég að segja að þetta er alveg svaklega þægilegt og tekur verulega í aftanverð læri og rass, maður finnur að þetta er að virka sem er stórfínt.  Ég hef svosem aldrei haft nein sérstök bak eða hné vandamál en finn að þetta gerir ekkert annað en að styrkja, og mér finnst þetta bæta líkamsstöðuna mjög mikið.  Ég mæli því sannarlega með þessum skóm fyrir þá sem ganga mikið og vilja nýta tímann til að fá smá brennslu og styrkingu á sama tíma.  Ég hefði líklega aldrei fengið mér þetta á Íslandi, þar sem ekki er eins sjálfsagt að fara út að ganga þar eins og hér, þar sem maður gengur nánast allt sem maður fer. 

Nú hér er bara dagur eftir dag sem skartar sól og yfir 20 stiga hita, þetta er vægast sagt stórkostlegur tími og maður er einhvernvegin alltaf í partýskapi :)  Ég var að lesa að þetta væri hlýjasti Apríl mánuður í þýskalandi síðan 1820!!!  Ég leyfi mér allavega ekki að kvarta, og vona bara að sumarið verði svona áfram.

Ungfrúin fór í sund í dag og skemmti sér konunglega sem fyrr.  Hún er rosa kát og skemmtileg og þroskast greinilega hratt þessa dagana.  En það er eins og það sé enn eitthvað að pirra hana á kvöldin, og það virðist vera versna.....allavega í mínum augum og eyrum.  Hún grenjar nánast eins og þegar hún var með kveisuna í þá gömlu góðu!   En það er ekki málið, eru þetta tennur, geðveiki eða eitthvað annað???  Það veit ég svei mér þá ekki, en þetta er verulega óþolandi.

Hérna er svo að lokum ein mynd af föður og dóttur í sundi :)  Gleðilega hátið

28.4.09

DK, SE, matur, blaðamannafundur, David Jones og eitthvað meira

Þá erum við komin heim aftur eftir góða skandinavíuför. En flogið var til DK á fimmdudagsmorgun, 40 mín flug og þá vorum við komin. Fjóla frænka þeirra mæðgna beið okkar á vellinum og við keyrðum sem leið lág í hini fögru Malmö. Þar komum við okkur vel fyrir og fórum svo á rölltið, leiðin lá í stórmarkað sem þar var og verð ég að segja að það er himin og haf á milli þess sem er í boði í Malmö og hérna í Berlín, þegar kemur að gæðum og vöruúrvali. Ég fann þarna langþráða sturtusápu sem fæst ekki Þýskalandi ásamt því að fá lakkrís og Maldon salt, sem allt eru nauðsynjavörur hér á bæ :) Allavega ég keypti bara birgðir til nokkurra vikna ef ekki mánaða. Svo var haldið til DK þar sem við hittum familíuna mína og varð úr því skemmtilegur dagur og góð kvöldstund þar sem Júlía fékk að umgangast eitthvað fólk annað en foreldra sína. Það var ekki að sjá annað en að hún kynni bara vel við það.

Það má með sanni segja að matur sá sem boðið var uppá hjá Fjólu var með ólíkindum góður, BBQ rif, Steikur og svo humar!! Þetta var bara eins og að borða á 5stjörnu veitingahúsi. Júlía lærði að sitja almennilega í Malmö auk þess sem hún var með rólegasta móti, og ekki ólíklegt að þar hafi næturkyrrðin hjálpað eitthvað.

Nú í morgun fór ég svo á blaðamannafund ásamt stjórnendum Kammeroper Schloss Rheinsberg, það var skrítin upplifun, ég sagði nokkur orð á bjagaðri þýsku minni en held að ég hafi nú ekki orðið mér til skammar. Þetta var mjög skrítin upplifun og stressið fyrir þetta var meira en ég hef fundið í langan tíma, svipað og þegar maður er að stíga á svið á frumsýningu eiginlega, en þetta reddaðist.

Nú David Jones er mættur til Berlína og ég á tíma hjá honum á fimmtudag, það verður mjög gaman að hitta kallinn að vanda, leiðinlegt að geta ekki hitt hann meira en svona er bara lífið. Svo er það bara ungbarnasund á fös og Wolfgang á Lau, jahérna, alltaf nóg að gera.

Hér er steikingarhiti þessa stundina og maður þarf að hafa sig allan við til að halda sér rökum svo maður þorni ekki alveg upp. Bjórinn fær nú að víkja fyrir vatninu og vonandi næ ég að halda mér góðum. Annars varð það nú ekki fleira í bili.

Komnar eru inn myndir frá síðustu dögum í albúmið hennar Júlíu

18.4.09

Af sem áður var

Lærdómur gengur upp og ofan, þó skellti ég mér í tíma hjá píanóleikara í gær og það gekk aðeins betur en ég þorði að vona, þetta er því allt á réttri leið...vonandi.   Framundan er svo nokkurra daga ferð til DK og SE.  Ekki endilega kærkominn lærdómstími, en það verður eflaust gaman. Það styttist óðum í Galatónleika, rétt rúmar 4 vikur og ég er eiginlega að verða tilbúinn með efnið fyrir það.

Þetta er því vonandi eins og það á allt að vera.

Júlía:
Í gær skellti ég mér með ungfrúnna í ungbarnasund, Soffía var illa sofin og er það farið að hafa áhrif á ónæmiskerfið, þar sem einhver létt veikindi höfðu gert vart við sig.  Við Júlía ákváðum þá að fara bara ein.  Það var nú bara gaman hjá okkur og hún var bara hin rólegasta, þó ekki þegar við komum uppúr, þá var grenjað.  Í bakaleiðinni var komið við í Toys'R' Us og keypt sólhlíf á vagninn hennar og hoppiróla.  Hoppirólan er strax orðin uppáhald hjá ungfrúnni og hún hefur það gaman af að hún helst róleg aðeins lengur.

Það má eiginlega segja það að hér sé farið að róast eilítið.  Og þá á ég við daglegt form ungfrúarinnar.  Það er þó fjarri lagi að segja að þetta sé orðið gott.  Hún er farin a purra og babbla, auk þess sem óþarfa pirringsgrátur yfir daginn hefur snarminkað.  Hún er samt ekki farin að sofa eðlilega og nánast minna en venjulega.......ef það er þá á annað borð hægt.  Við sátum hérna á miðvikudagskvöld og Júlía grét ekkert allt kvöldið, við sátum bara og störðum á hana og hlóum taugaveiklunarhlátri, því við skildum ekki hvað var að gerast.  Það var skrítin tilfinning.

15.4.09

Páskahelgi lokið

Hér var löng Páskahelgi í boði.  Á páskasunnudag var haldið í kökuveislu hjá skötuhjúunum að Dudenstrasse 15.  Vel var veitt og fórum við vel södd þaðan.  Þá var haldið heim á leið þar sem við tók svo undirbúningur matarveislu kvöldsins.  En það var nautafillet í marineringu með salt og hvítlauksmarineruðum kartöflum, salat og sósa að sjálfsögðu.  Hér mættu svo íslendingarnir uppúr klukkan 18 með góða skapið og hér var svo  heljarinnar gleðskapur fram eftir nóttu.  Mjög gaman!  Langt síðan maður hefur leyft sér svona nokkuð.

Daginn eftir tók svo við gönguferð í blíðskaparveðri um Treptow Park, sem er ekki langt frá.  Gunnar og Erla voru með í för og var gengið ansi mikið.  Á þriðjudeginum var svo lagt snemma af stað að ná í bílaleigubíl til að keyra í Tropical Islands, sem er í uþb 60km fjarlægð frá Berlín.  Komið var við á McDonalds í morgunmat og svo var haldið af stað.  Ungfrúin var nú ekki upp á sitt besta í bílferðinni en það lagaðist þegar við vorum komin vel af stað.  Þegar í TI var komið var heljarinnar biðröð fyrir utan og maður fékk smá sjokk yfir hvað þarna voru margir.  Við komumst þó inn á endanum og það verður að segjast að þetta er nú helvíti flott.  Við byrjuðum á að henda okkur á Sauna svæðið sem við vissum ekki að væri nektarnýlenda, en þar er semsagt bannað að vera með myndavélar eða í sundfötum, sérstaklega skemmtilegt, þar sem maður gat ekki alveg nýtt sér það sem var í boði þar.....kannski seinna :)   En restin var mjög fín, þó aðeins of mikið af fólki allsstaðar og því kannski ekki eins afslappandi og þetta gæti verið.   Svo var haldið heim á leið og komið við á "Gulastaðnum" 
sem heitir núna La Rosa, eða eitthvað svoleiðis.  Ekki klikkaði það frekar en fyrridaginn.  Hér er að hefjast spergiltími, þannig að hann verður í boði á öllum veitingastöðum í einhverju formi, ég fékk mér að sjálfsögðu svoleiðis með hollandaise og kengúrukjöti, klikkar ekki.

Svo var það bara læra, læra, læra í dag og á morgun er það Wolfgang, Eddy og ungbarnasund á Föstudag....... veit ekkert hvenær ég á að hafa tíma til að slappa af :)

Alllavega, það eru komnar inn nýjar myndir á myndasvæði Júlíu hérna

11.4.09

Hitinn hækkar og hækkar

Jæja í dag er það dagurinn sem farið verður á The Bird, sem ég hef reyndar farið 2svar á áður, en alltaf er tilhlökkunin jafn mikil.  Ég veit að fólk trúir því ekki að það geti verið satt að það séu til betri hamborgarar en það sem það hefur smakkað!  En þvímiður fyrir ykkur, þá eru þeir til, og þið eruð að missa af :)

Hér var verið að henda nautafillet í marineringu fyrir morgundaginn og ég er með smá upplýsingar fyrir ykkur sem eruð ekkert mikið að spá í mat, en þetta eru mikilvægir punktar:

1. Ef þú veist ekki fyrir víst að kjötið sem þú ert að fara borða sé nógu meyrt, þá er um að gera að henda því í marineringu í 24 tíma.  Til að ná fram meyringu er mikilvægt að notast við einhverskonar sýruvökva (vín, vínedik, appelsínusafa, sojasósu osfrv) Mitt uppáhald er Worcestershire sósa.

2.  Rósapipar er allt of lítið notað, að mínu mati.  Ég nota rósapipar mikið.  Bragðið gengur eiginlega með öllu.  Sérstaklega þótti mér hann fara vel með grilluðum túnfisk(rauðum), og svo svívirkar hann með kjöti líka.

3. Hvítlaukur segir sig nú bara sjálfur þegar maður fer að velta fyrir sér matargerð, alltaf að nota hvítlauk í marineringu :)

Ég er bara farinn að hlakka til á morgun, en þá fyllist hér húsið af fólki í matarveislu.  Bæði í kaffi og kvöldmat.  Við keyptum okkur lítið rafmagnsgrill í gær líka og það verður áhugavert að sjá hvernig það gagnast við grillun á kjötinu góða.

Svo er bara spáð allt að 25 stiga hita hérna eftir helgina, og það þýðir yfirleitt í kringum 30°C. þannig að það er margt að hlakka til :)

Júlíuhornið:
Júlía skellti sér í ungbarnasund í gær og þótti það nú bara hin besta skemmtun, allvega voru þau bara tvö sem busluðu alveg á fullu, og líklega var hún yngst þarna líka.  Þetta tekur nú ekki langan tíma en maður sá það að þetta var mjög góð skemmtun og afþreying fyrir hana.

9.4.09

Tumi

Tumi var hvers manns hugljúfi og hans verður sárt saknað,  Greftrun fór fram í dag í Sigrúnarlundi í Kvistholti.
Tumi fannst látinn að heimili sínu í Flétturima 10, eftir baráttu við erfið veikindi.


7.4.09

Í hita dagsins

Helgi lokið þar sem farið var yfir ýmis atriði er varða einbeitingu og raddbeitingu.  Námskeið gekk vel og þó ég hafi ekki lært neitt beint af námskeiðinu vakti það mig til umhugsunar um ýmsa hluti í mínu fari sem betur mega fara.  Ég er nefnilega afskaplega auðtruflanlegur, þ.e ef ég er að læra er margt sem truflar einbeitinguna, og að mestu leiti er það nú karakter galli, þar sem ég hef áhuga á svo gríðarlega mörgu.  Að einhverju leiti er það líka leti, en það er gífurlega erfitt að koma sér í og halda "lærdóms-ástandi", en í dag tókst það nú, með hjálp dáleiðslu og gífurlega einbeitts vilja til að gera vel.  Það er að koma betur og betur í ljós að ég má ekki leyfa mér að láta hugan reika, það verður bara að setjast niður og gera hlutina!!  Þetta er ekki alltaf það skemmtilegasta, en þarf að gerast til að eitthvað verði úr þessu.   Ég hef greint mig með AADD (Adult Attention Deficit Disorder) og það þarf bara að taka á því........ seinna :)

Hér er verið að skipuleggja páskana og það lítur út fyrir að kíkt verði á tropical islands á þriðjudag eftir páska, maður nennir nú ekki að fara um páskana þar sem líklegt er að það verði vel sótt.  "The Bird" er á planinu á Laugardaginn með Gunnari og Erlu, kannski fleirum, svo ætlum við líka að hittast á Sunnudag og vera búin að baka eitthvað fínt.  Þannig að þetta er allavega vel skipulagt.

Ungfrúin hefur verið óvenju slæm undanfarið, það má eiginlega segja að óværðin hefjust kl 18, stundvíslega og það er lítið hægt að hugga hana.  Best er eiginlega bara að láta hana grenja þangað til hún verður of þreytt, þá sofnar hún smá.  Æ þetta er eigninlega bara orðið óþolandi. Í þessari stöðu er bara hægt að vona að þetta fari nú að hætta, en ég hef grun um að þetta verði bara svona út árið!!  Kæmi mér alls ekkert á óvart.

Hér er annars bara mjög hlítt og hitatölur virðast haldast um og yfir 20°C eins langt og veðurspá nær.... sem er alltaf gott.  Ég er líka búinn að fá endanlegt plan fyrir Góðgerðartónleikana í Maí, sem er mikill plús, þá er allavega hægt að fara æfa fyrir  það líka.

Allavega hérna er ein mynd af ungfrúnni og það eru líka komnar inn nokkrar myndir á albúmið hennar

Guð blessi Ísland.